
Varð að setja þessa fallegu mynd af Óla Prik sem Sigga teiknaði alveg ein með nýja pennanum frá honum afa - Jólasveina penna, jebb...... Það er margt framundan hjá stúlkunni næstu daga en það verður farið í piparkökumálun í leikskólanum, hittum vinkonurnar úr hópi 12 og svo er það aðventukaffið hjá Hemma frænda ;-D Mamman verður bara þreytt á öllu þessu plani en svona er það að eiga selskapsljón eins og hún Sigga Bára er - það líka tilheyrir þessu listamannalífi.
Blessi í bú
3 ummæli:
Kæra Sigga Bára.
Mikið er þetta fín mynd hjá þér, sjálfsagt ekki verra að nota nýja jólasveinapennann til listsköpunarinnar. Gangi ykkur vel með allt planið og jólaundirbúninginn.
Bestu kveðjur frá Hildi Björgu og fjölskyldu.
rosalega er þetta flott mynd hjá þér Sigga Bára:) nú styttist í afmælis/innfluttnings heimboð í vesturbergið..nánari dagsetning auglyst síðar. vonast til að sjá ykkur öll
kv írishuld gamlafrænka:)
En yndisleg mynd :)
alltaf gaman að sjá listaverk barna - þau eru bara langflottust slík verk.
Bestu kveðjur í aðventunni,
Kitta á leiðinni til Kína - lokisins ;)
Skrifa ummæli