Halló við verðum bara að láta vita hvað það var ótrúlega gaman á furðufataballinu í gær. Sigga Bára skemmti sér konunglega og sýndi mikið sjálfstæði og öryggi á ballinu. Hún skokkaði um allt dansgólfið, dansaði og dillaði sér í takt við frábær lög. Svo var þetta allt toppað með því að um kvöldið kom Erna Hrun frænka og passaði hana - mikið fannst Siggu Báru það gaman. Í morgun vaknaði snjóátari Íslands, varla búin að opna augun þegar rokið var út í glugga og lítil hendi stakk fingrunum út á gluggakarminn og náði sér í vænan lófa af snjó - já það var borðað mikið af snjó í dag.
Bless í bú
sunnudagur, nóvember 19, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hæ, bara að láta vita að ég er að skoða síðuna ykkar :)) en það vantar inn nýjustu myndirnar/ Kv. Júlíana
Halló Sigga Bára, fallega fiðrildi.
Takk fyrir samveruna á ballinu, það var sannarlega saman og þú glæsileg að vanda.
Sjáumst vonandi fljótlega - kanski í sundi á morgun ?
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.
Halló fallega fiðrildi
Takk fyrir samveruna á ballinu á laugardaginn, við flögruðum svo sannarlega um svæðið.
Þegar mamma sýnir mér myndirnar í tölvunni, bendi ég á þig og segi roggin með mig "setta Sigga Dára".
Hafðu það sem best og skemmtu þér vel á leikskólanum.
Bæjó, Anna Bíbí og mamman
Hæ hæ Gyðaog þið öll!
Gaman að fylgjast með ykkur og hitta ykkur mæðgur í sundi í sumar :)
Kveðja,
Katrín
Skrifa ummæli