laugardagur, júní 24, 2006

Hún Sigga Bára Min á afmæli í dag




Elsku hjartans dóttir okkar á afmæli í dag og er orðin tveggja ára!!!!! Foreldrarnir eru núna að bíða eftir því að gestirnir banki á dyrnar - stoltir og ánægðir. Hún Sigga Bára fattar alveg að hún á afmæli - búin að opna nokkra pakkana og fengið s.s. vörubíl (frá Þórhildi feminista), útilegustól, garðáhöld og ekki má gleyma stóra sandkassanum sem afi og amma gáfu prinsessunni af tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn hjartans dóttir okkar!!!!!!!

fimmtudagur, júní 22, 2006

Komin heim





Fjölskyldan er komin heim úr sumarfríinu. Við skelltum okkur til Ítalíu í tvær vikur og dvöldumst þar ásamt Palla og fjölskyldu á yndislegum stað í Toscana héraði. Hitinn var góður og naut Sigga þess að vera léttklædd, skoða maurana, eðlurnar og svo auðvitað að borða kirsuber - þau voru í miklu uppáhaldi. Við létum ekki staðar numið þar og heimsóttum vinkonu okkar hana Ágústu, Floris manninn hennar og yndislegu dóttur þeirra hana Katrínu Ágústu. Þau búa semsagt í Amsterdam og fengum við frábæra leiðsögn um borgina, fórum á markaði en toppurinn í ferðinni fyrir hana Siggu var dagur sem farið var í fallegan garð þar sem hún fékk að fara á hestbak - ekki bara einu sinni - nebb - hún fékk að fara tvisvar eftir að hafa sannfært pabba sinn um það. Hún vissi að hún var eins og Lína eða LUWE eins og hún ber það fram af miklum krafti. Sigga hefur engu gleymt frá síðustu flugferðum var eins og ljós - eða réttara svaf eins og ljós í öllum þeim flugum sem við fórum í. Þetta var sem sagt draumur í dós enda ekki annað hægt með svona líka frábæra ferðafélaga þau Palla, Höllu, Védísi og Steinunni Völu - takk fyrir okkur!!!!
Jæja látum þetta duga í bili
Bless í bú
gydao@simnet.is

fimmtudagur, júní 01, 2006

Eitt ár liðið frá því við fengum myndirnar!!!




Hugsa sér að það sé liðið eitt ár síðan við Kalli fengum upplýsingamyndirnar frá Kína af henni Siggu Báru okkar. Við erum að tala um 365 daga sem hafa liðið ótrúlega hratt en einhvernveginn samt svo langt síðan því okkur finnst hún Sigga hafa verið með okkur alveg frá upphafi. Við erum þakklát fyrir að lífið hafi verið svona gjafmilt og leitt okkur öll saman . Hér eru myndirnar frá því fyrir akkúrat einu ári síðan og svo dömunni í dag. Þú ert best Sigga Min!!!

mánudagur, maí 29, 2006

Sauðburður yfirstaðin og Björn bóndi kominn í borgina



Sigga er búin að vera mjög dugleg frá síðustu skýrslu hér á síðunni. Hún fór nefnilega í sveitina og fékk að fylgjast með nýfæddum lömbum - gaf þeim meira að segja nebbaknús sem ekki allir fá frá frökeninni. Það var tekið á móti okkur á Hvammi í Landsveit eins og höfðingjum hjá Pálma og fjölskyldu - þúsund þakkir fyrir okkur kæra fjölskylda.
Nú síðan liðu dagarnir og kosningar voru á næsta leiti. Hann Hemmi frændi hennar Siggu var í framboði fyrir Vinstri græna og tókst honum að snúa öllum í fjölskyldunni sér í hag og vann flokkurinn mikin sigur - til hamingju Hemmi frændi :-) Við tölum svo ekki um nýmyndaða borgarstjórn þar sem það á ekki heima hér á síðu fallegrar stúlku.
Svo verður að minnast á heimsókn í nýja húsið hennar Elvu Gests en það var svo gaman að heimsækja hana og Heiðrúnu vinkonu sem er að bíða eftir að lítill ungi komi í heiminn ;-) Spennandi Heidi eða hvað!!!!
Nú pabbi hennar Siggu Báru er að útskrifast á laugardaginn og erum við að hefjast handa við að undirbúa móttöku hér á bæ - Sigga Bára er búin að vera svo dugleg að vinna í garðinum og er hann bara orðinn flottur hjá henni. Mamma er ánægð með skottu.
Jæja höfum þetta ekki lengra í bili og takk fyrir allar kveðjur kæru vinir!!!!!!
Bless í bú

mánudagur, maí 15, 2006

Núna er það bara hjóla, hjóla og hjóla



Já hún Sigga Bára fékk að upplifa um helgina að sitja aftaná hjólinu hennar mömmu og var það gleði, gleði, gleði, gleði alla tíð................ Hún er annars að þroskast mikið eða bara góð að herma efitr því um leið og þau gömlu segja "jæja það eru að koma fréttir" rýkur hún af stað skríður upp í sófa á besta staðinn og liggur þar og flatmagar og segir "frétttir"!!!!!
Í dag var farinn maraþon hjólreiðahringur með þeim mæðgum Kristínu og Matthildi sem endaði þannig að dæturnar ákölluðu kerrurnar sínar og þegar heim var komið og kerrurnar komnar í augsýn komu tár á hvarma og þær hlógu uppgefnum hlátri - jú hviss og bang sofnaðar á nóinu.
Jæja höfum það ekki lengra í bili
Bless í bú

föstudagur, maí 12, 2006

Cherry blossom eða hérumbil





Við mæðgur fórum í morgun snemma út að labba - það var svo fallegt veður - en kalt. Við mælum með því að fá sér göngutúr í Grasagarðinn þar sem tré eru farin að blómgast og mannlífið með. Kellurnar tvær tóku með sér nesti og settust inn í tjaldið stóra í Húsdýragarðinum lásu Moggann og spjölluðu. Núna er litla daman sofandi og mamma að fara að mannna sig upp í að vekja hana, því það er sama hve blíðlega við foreldrarnir vekjum hana þá er mín alltaf stúrin svona fyrsta stundarfjórðunginn eða svo!!!!
Bless í bú

mánudagur, maí 08, 2006

Pikknikk



Í dag fór Sigga eldsnemma í mjólkumjaltirnar í Húsdýragarðinn með pabba sínum. Kom svo alsæl heim og uppgefinn. Eftir lúrinn var haldið aftur af stað í dalinn en þar hittust nokkrar Kínasystur úr hópi 12 og höfðu með sér nesti - jú pikknikk var það. Mikið er gaman að vera með þessum frábæru stelpum og upplifa vorið með þeim!!!! Þegar maður byrjar verður að halda áfram ekki satt!!!! Ekki var hægt að skilja fulgana útundan og fengu þeir brauðið sitt og svo fengu bæði mæðgur og dætur sér sundsprett í Laugardalslaug.
Lífið er yndislegt ..........................................
Bless í bú

laugardagur, maí 06, 2006

Vorið er komið



Mikið er nú skemmtilegt þegar vorið kemur. Tvær stórar frænkur voru í næturgistingu og ekkert smá gaman að fylgjast með öllu sem þeim datt til hugar. Eftir skemmtilegt kvöld sofnuðu þær frænkurnar undir meistarastykkinu um súkkulaðiverksmiðju Kalla og vöknuðu kátar og hressar í morgunverkin. Þá fórum við öll í laugina þar sem Sigga Bára var á heimavelli og naut sín reglulega vel enda orðin mikil sundgarpur. Eftir lúrinn var farið í Hreyfiland þar sem við hittum fullt af skemmtilegum krökkum og nutum þess svo vel að hoppa og skoppa og síðan er ekki slæmt að eiga þokkalega útisinnaða foreldra því eftir garðskoðun hjá frænkunum í Grafarholtinu þá tóku við garðverkin með Pabba þar sem við byrjuðum vorverk og lögðum línuna fyrir næstu daga. Sigga Bára er alveg klár á því að þegar kjóll eða skokkur er dreginn fram þá er afmæli í gangi. Svo mikið hefur verið í gangi að undirbúa afmælin undanfarið að Sigga Bára er búinn að syngja afmælissönginn í tíma og ótíma. Foreldrarnir voru hálf vandræðanlegir þegar nágrannar fóru að óska okkur til hamingju með afmæli hennar og þurfti smá útskýringar um að söngurinn hjá SBM væri bara undirbúningur fyrir afmæli hennar í sumar, en ætti ekki við rök að styðjast. En kvöldið endaði síðan með skemmtilegu kvöldboði hjá Palla og Höllu þar sem undirbúningur var hafinn fyrir Ítalíuferðina í sumar. Ammmalída

fimmtudagur, maí 04, 2006

Bólusetningar loksins búnar - í bili


Í dag lauk bólusetningum í bili hjá Siggu Báru og eru bæði foreldrar og hún mjög fegin. Hún lagði glöð í bragði af stað upp á heilsugæslu mjög stolt, leiðandi hann Níels apa. Svo þegar búið var að mæla hana og vigta leist henni ekki á blikuna - svo stungan - ég ætla ekki að lýsa augnaráðinu sem barnið gaf móður sinni. En við sluppum lifandi frá Krisínu frábæra hjúkrunarfræðingnum sem hefur fylgt okkur í gegnum þetta allt saman. Að því loknu fór Sigga með baukinn sinn í bankann og fékk "æmmælisgjöööö" var mín ánægð eða hvað. Fékk kúta sem við ætlum að fara með í sund á eftir!!! Smá statistik - Sigga er núna 10, 4 kg og 82, 5 cm en þegar hún kom til landsins þann 20. júlí sl. var hún 7,7 kg og 71 cm. Drottningin......................bara blómstrar.
Bless í bú

mánudagur, maí 01, 2006

Fyrsti maí og maður bara mokar og mokar



Hæ hó jibbý jei og jibbý jei það er kominn fyrsti maí!!!! Mikið er nú gaman þegar fjölskyldan fær svona auka dag og getur notið hans í þvílíkri veður blíðu í Garðabæ á ylströndinni. Við höfum eytt síðustu tveimur dögum þar að moka, láta bát sigla í litlum læk og skoða fallegar skeljar sem eru þar í þúsundatali. Amma hennar Siggu Báru og afi búa þarna rétt við ströndina og njótum við þess að koma þangað, fara út og svo heim þar sem afi og Siggi frændi hafa útbúið eitthvað gómsætt!!! Heppin eða hvað?
Þar sem mamman er að jafna sig eftir bruna er lítið um sundferðir þessa dagana/vikurnar og biðjum við því að heilsa sundfélögugum okkar sem munu hittast á morgun í Salarlaug - hugur okkar verður hjá ykkur :-(
Bless í bú

þriðjudagur, apríl 25, 2006

Hjálmurinn kominn á kollinn


Jú það var á sunnudaginn sem litlu dömunni datt í hug að það væri nú kannski í lagi að prufa þennan hjálm - það var svo ekkert slæmt. Það sést vel á myndinni hvað pabbinn var stoltur þar sem hann hefur verið sveittur við að prufa ýmiskonar ráð til að fá hana Siggu Báru til að nota hjálminn. Í dag hefur hún farið út að hjóla nokkrum sinnum og berst ekkert gegn því að setja hjálminn á sig - við krossum bara fingurna og vonum að það breytist ekki!!!

föstudagur, apríl 21, 2006

Forvarnarfulltrúi og barnið sem ekki vill hjálminn!!!


Gleðilegt sumar!!!! Sigga Bára sést hér á myndinni nývöknuð með sumargjöfina sína. Hún fékk þríhjól sem hún er voða hrifin af og hefur verið dugleg að hjóla á því úti sem og inni. Það er bara eitt lítið en samt stórt vandamál - hún neitar algjörlega að setja á sig fallega Bangsimon hjálminn!! Pabbinn er varla vaknaður og skellir á sig hjálminn áður en hann eldar grautinn til að sína dóttur sinni að það er cool að vera með hjálm en sú stutta er lítið að fyrir það að fylgja tískunni og stendur fast við sitt - ENGAN HJÁLM TAKK!! Kannski finnst henni bara ekki cool að vera eins og pabbi eða ..........
Ekki veit ég hvaða trix lögreglan mun nota næst til að telja dömunni trú um að hjálminn verður hún að hafa til að getað hjólað úti en því get ég lofað ykkur að það verður fest á filmu og sett hér inn!!!!!
Bless í bú

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Sólríkir dagar


Það er búið að vera svo gott veður hér í höfuðborginni undanfarna daga og hefur Sigga Bára því verið úti við frá morgni til kvölds. Í gær vorum við svo heppnar að Þórey og Þórdís stóru frænkur eyddu deginum með okkur. Það var farið í Laugardalinn og öndunum gefið brauð, svo á róló og heim að borða. Þórhildur frænka kom við og fékk sér kaffi og sá stelpunum fyrir skemmtun á meðan mamma og Sigga Bára lögðu sig. Eftir hádegi var farið í Vesturbæjarlaug en þar hittist sundhópurinn mikili frá sundnámskeiðinu - en mikið söknuðum við Önnu Kristínar og Ragneiðar. Vonandi koma þær næst en þá verður hist í Grafarvogslaug ;-) Svo enduðum við þennan fallega dag í bestu ísbúð bæjarins í Vesturbænum mmmmmmmmmmmmmm. Á morgun er svo sumardagurinn fyrsti og þá ætla allar Kína dömur á landinu að hittast í Fram heimilinu og heilsa upp á kínverska sendinefnd frá CCAA og hvor aðra.
Þar til næst
Bless í bú

föstudagur, apríl 14, 2006

Ljósmyndafyrirsæta


Í gær var loksins riðið á vaðið og Aldís ljósmyndari mætti á svæðið og tók myndir af prinsessunni. Við höfum verið að trassa það að láta fagmann taka myndir af heni og vorum farin að hræðast það að ekkert yrði gert fyrr en á fermingardaginn hennar Siggu Báru- en hjúkk og púff og sjúkk þetta hefur verið gert og lítur vel út. Sigga Bára var bara alls ekkert feimin við hana Aldísi sem kom hingað heim og leyfði Siggu Báru meira að segja að taka nokkrar myndir. Hún Aldís er sannkarlaður proffs. Svo var farið í afmælisveislu til Sigga Vals en ykkur að segja þá er hann Siggi frændi ekta veislu maður því þetta var önnur veislan hans í tilefni af afmælinu þetta árið. Eftir að hafa borðað vel þar á bæ löbbuðum við í kirkjugarðinn og settum páskaliljur á leiði ömmu Gunnu og afa Olla og héldum svo heim á leið. Um kvöldið var svo farið í grill til Olgu frænku og haldið þið að Sigga Bára hafi verið þreytt eftir daginn? Já, hún vaknaði kl. 9 í morgun og hefur verið værukær í náttfötum að leira og leika við pabba sem er enn í náttfötunum núna kl. 12!!!
Bless í bú

miðvikudagur, apríl 12, 2006

Kiðlingar, lömb og Sigga Bára


Halló vildum bara láta alla vita að það var æðislegt í Húsdýragarðinum. Það eru þrír sætir kiðlingar fæddir og fengum við að klappa þeim. Þeir voru svo gæfir og mjúkir að okkur langað mest til að halda á þeim heim. Svo voru líka tvö lömb fædd í fyrradag sem voru ekki síður gæf og lölluðu sér til okkar til að láta knúsa sig. Svo klikkar ekki að enda góða ferð á kaffihúsinu og fá sér heitt kakó og skúffuköku ( með rjóma)!!!!!
Settum nýjar myndir inn á albúmið.
Bless í bú

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Allir í fríi


Þessa dagana er gaman að vera til og fullt að gera, eiginlega pínu upphitun fyrir sumarið. Þannig er að Sigga á tvær móðursystur sem eru kennarar og núna eru þær báðar í páskafríi og hafa litið við í heimsókn og við til þeirra auk þess sem ein móðursystirin er að vinna vaktavinnu og er mikið heima þessa dagana - þetta er bara ein stór hátíð!!! Svona verður sumarið systurnar með ungana að leika !! Sigga er semsagt mikið að hitta fjölskylduna sína þessa dagana og er stefnan sett á húsdýragarðinn á eftir með frændsystkinum að skoða nýfædda geita unga - góð íslenska væri auðvitað að skoða nýfæddu kiðlingana en ekki "geitungana"!!!!!!!! Jú það er líka búið að vera gaman hjá henni í fermingum - fjórar að baki og tvær eftir. Síðasta ferming var hjá Steinunni Völu stóru frænku sem var svo falleg og fín í fermingarkjólnum og með nýju hárgreiðsluna. Því miður gleymdum við myndavélinni heima og því eru ekki til neinar myndir frá þeirri stórveislu.
Setjum inn myndir af geitungaferðinni inn á apríl albúmið.
Bless í bú

mánudagur, apríl 03, 2006

Fermingarvertíð hafin



Já hún Sigga er mikið bókuð þessa dagana og sér hún varla fram úr fermingarveislu flóði þessa árs. Hún fór í sína fyrsu fermingarveislu hjá honum Gunnari Agnars Margrétarsyni. Hún var að vísu látin halda að hún væri að fara í afmæli því það finnst henni voða gaman og hlakkaði henni mikið til að fara í þessa "ammæli" veislu. Þar sem það var síðasti skóladagur föðursins og vinkonu hans (Eddu Huld) vorum við svo heppnar að fá skemmtilega fylgdarfjölskyldu með í veisluna- engann annan en Kobba (manninn hennar Eddu) og börnin þeirra tvö. Sigga var að lita mestan part veislunnar ( móðir fermingarbarnsins er nefnilega kennari og veit hvað þarf að hafa fyrir börn í veislum - húrra ) og hesthúsaði ekki minna en 5 upprúlluðum pönnukökum ( nei hér er ekki verið að ýkja). Svo var hún farin að kunna svona vel við sig í afmælisveislunni að mín tók sporið og dansaði nákvæmlega eins og amma er búin að kenna henni (þið sem hafið séð það vitið hvernig sá dans er og geri aðrir betur). Þegar þessari gleði lauk var brunað heim og haldið áfram að fagna - en pappinn var búinn í skólanum og var því skálað af tilefni dagsins með ömmu, afa og foreldrunum. Afi og amma fóru svo með dömuna út að borða með frændsystkinum og enduðu skemmtiferðinni í Perlunni að borða ís. Já hún er heppin þessi dama að eiga ömmu og afa með orkuna í botni og alltaf til í stuð og endalaust stuð. Foreldrarnir fóru nefnilega út að fagna með skólafélögum Kalla. Þegar heim var komið var tátan sofnuð í SÍNU rúmi og allt "under control" hjá Ernu og Val. Það er ekki hægt að segja bara sannleikan hér : foreldrarnir voru ánægðir með hvað Siggu líður vel hjá ömmu og afa en um leið pínu svekkt yfir því að hún grét ekkert yfir því að við værum ekki heima!!!! Hún er orðin svo örugg með ömmu og afa sem við erum mjög þakklát með.
En nóg um það hennar bíður þrjár veislur til viðbótar og Sigga er til í fjörið með taktana tilbúna til að tjútta.
Bless í bú

þriðjudagur, mars 28, 2006

10 kílóa múrinn rofinn


Í dag var merkisdagur hjá Siggu Báru en við fórum í sund seinnipartinn í dag með sundfélögum úr hópi 12. Það er fastur liður áður en farið er út í laug að skella dömunum á vigtina og svo er mikið spekúlerað í þyngd hverrar og einnar. Sigga hefur verið sú eina sem ekki hefur komist í tveggja stafa tölu en það gerðist í dag - ekki lengur níu komma eitthvað heldur hreint og flott 10 hvorki meira né minna!!!!! Varð bara að skrásetja þetta hér á þessa síðu svo við gleymum ekki þessum degi. Það var svo haldið upp á þetta með því að fara í Vesturbæinn eftir matinn í þá bestu ísbúð í Reykjavík og keyptur "gamli ísinn" og heit karamellusósa to go!!!
Sigga er svo sofnuð núna kannski tíu komma eitt (eftir ísinn)
Bless í bú
Gyða

fimmtudagur, mars 23, 2006

Fimmtudagar eru aktivitet dagar


Jú dagurinn í dag var kraftaverk eins og allir aðrir dagar. Hún Sigga er kúrari og þarf svona að liggja og kúra í hálfa klukkustund áður en litlir fætur eru tilbúnir að snerta kallt parketið. Hver man ekki eftir því þegar maður var lítill hve gólfið var oft kallt. Nema við tók að setja Línu tígó í hárið og undirbúa sig fyrir komu ömmu og afa. Þau eru svo skemmtileg þessi afi og amma sem Sigga á að það hálfa væri nóg. Þau hitta snúllu á hverjum fimmtudagsmorgni og gera eitthvað skemmtilegt með henni. Í dag var farið í Grasagarðinn og öndunum gefið að borða. Því næst var labbað í Húsdýragarðinn og heilsað upp á Snorra sel og fleiri kunningja. Þessu lauk svo með góðri heitri súpu á veitingarstað Húsdýragarðsins en þar sér um matseldina hann Óli kokkur og klikkar hann aldrei. Við fórum svo í okkar síðasta skipulagða Ungbarnasundtíma á Reykjalundi. Það var skrítið að þessi fasti punktur í tilverunni væri horfinn - allaveganna í bili. Mæðgurnar höfðu í nóg að snúast og brunuðu því næst í Ingunnarskóla þar sem frænkur okkar voru með nemendasýningu - Afríku þema. Mikið gaman að fylgjast með vinnunni þeirra í skólanum. Eftir það var farið í mat til Bínu frænku og voru það þreyttar mæðgur sem brunuðu aftur í borgina nokkrum tímum síðar.

Bless í bú