MyndirÞar sem við höfum fengið nokkrar kvartanir yfir því að hafa hætt að segja fréttir af okkur, þeas mest þeirri stuttu, á netinu var ákveðið að setja nokkra nýja punkta um hvernig miðar. Sigga Bára en nátturulega búin að vera alveg frábær finnst okkur og allt hefur gengið ljómandi vel. Hún hefur aukið styrk sinn mikið enda mikið matargat en þó vandlát á hvað henni er boðið uppá þannig er hún t.d. ekki hrifin af "vegalambi" spýtir því útúr sér og vill frekar eitthvað annað en rolluna. Kannski er hún bara matgæðingur og við höfum ekki verið að bjóða henni rétta bragðið.
Við förum með hana í góða göngutúra á hverjum degi og erum að verða búin að ganga um allan bæ og sú stutta situr eins og keisaraynja í kerrunni sinni og baðar út höndum ef sá háttur er á henni en annars situr hún og horfir vel í kringum sig skoðar umhverfið.
Við fórum aftur í sund í dag, núna í laugardalslaugina, og þar var mikið buslað og skemmt sér og ekki mikil hræðsla við vatnið hjá henni.
Hennar hátign féllst loks í dag á beiðni yfirvalda að láta í té þvagsýni en formleg beiðni barst henni fyrir um tveimur vikum síðan og allmargar tilraunir yfirvalda til að ná niðurstöðu í málinu hafa farið út um þúfur. Hún er sem sagt þrátt fyrir allt kona sátta!
Núna bíðum við spennt eftir að hún sleppir sér og kannski standi ein en við teljum að það geti verið stutt í slíka stund hjá henni. Hún hreinlega vill ganga með stuðningi okkar um alla íbúð og foreldrarnir eru orðnir ansi hreint "bognir" í baki og verða að skipta þessu hlutverki á milli sín.
Látum nægja að sinni