MyndirÓhætt er að segja að það sé fjörugt lífið á Hofteignum og enginn vafi hver ræður þar ríkjum. Ungfrú Sigríður Bára Min hefur tekið við stjórnartaumum og heldur fast um þá og örugglega. Svefn og vaka á bænum fer eftir hennar ákvörðun og tekur þá jafnt til hennar og foreldrana sem snúast í kringum þá stuttu enda ekki annað hægt. Við höfum fengið mikið af heimsóknum en við fylgjumst vel með þegar við sjáum þreytumerki á henni því ekki má fara of hratt í hlutina til að þetta aðlögunarferli verði sem best.
Við vorum að skoða eldri myndir af Siggu og sjáum að hún hefur dafnað mikið og þyngst enda mátti hún við því. Einn frændinn sem kom á matmálstíma missti út úr sér að "það væri eins og að koma á Múlakaffi" að lenda hjá okkur í hádeginu. Þá var á boðstólum, grautur, lifrapylsa, rúgbrauð og kæfa svo fátt eitt sé talið upp. Allt er þetta auðvitað gert með ráðnum hug til að koma nokkrum kílóum á Siggu en hún hefur styrkst mjög mikið undafarna daga.
Í gærdag fórum við í heimsókn til Afa á spítalann og sú stutta rak upp öskur þegar pabbinn settist með hana á sjúkrarúmið hjá afa, hélt ábyggilega að þarna stæði til að fara í einhverja læknisaðgerð og var ekki tilbúin að taka þátt í því. En við sáum að það lyftist brúnin á Afa við að sjá hana og við förum næst í heimsókn til afa þegar hann er kominn heim aftur.
Annars gengur allt vel og mikið er frábært að geta átt svona góðan tíma með henni þessar fyrstu vikur