miðvikudagur, ágúst 04, 2010

Sund og sæla

Undanfarnir dagar hafa gengið vel hjá fjölskyldunni. Hún Sigga Bára er svo ljúf og góð við systur sína og við sjáum mikinn dagamun á þeim hvað þær sækjast meira í félagsskap hvor við aðra. Við erum búin að fara í sund með góðum vinum bæði í gær og í dag. En óvænt hittum við Ingvar Wu ásamt fjölskyldu í Laugardalslaug í dag sem var gaman og svo hittum við líka Önnu Kristínu og fjölskyldu í sömu sundferð - ekki amalegt að hitta ferðafélaga úr báðum Kínaferðum á sama degi!!
Auður Edda er fyndin lítil stúlka sem hermir eftir öllu - er sérstaklega hrifin af símanum og talar við alla "Allo bæ bæ" hlær og vill endurtaka leikinn. Sigga Bára er líka aðalkennarinn en það er sama hvað hún gerir þá vill Auður Edda herma eftir. Í kvöld gerði hún samt eitt sem okkur Siggu Báru fannst pínu fyndið (Auður Edda heyrði ekki flissið í mömmu og stóru systir) en þegar mamma var að lesa kvöldsögu fyrir dæturnar uppi í rúmi tók Auður Edda lúmskt í hönd systur sinnar, bara hana að enninu og þóttist hafa meitt sig - eða kannski að Sigga Bára hafi verið að meiða hana - þarna var daman að sækjast eftir vorkun og knúsi sem er gott en auðvitað ekki á kostnað stóru systur. Mikið var Siggu Báru samt létt að mamma var vitni að þessum atburði hjá litlu systur sem hún endurtók nokkrum sinnum.
Við erum ríkir foreldrar!!
Bless í bú
Myndir hér

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já þið eruð sko ríkir foreldrar og stelpurnar ykkar heppnar að eiga svona flotta foreldra.
Æðislegar myndir af systrunum sætu og manni finnst sem Sigga Bára hafi elst ótrúlega - orðin svo stór og alltaf jafn glæsileg.
Litla skottið er auðvitað bara dásemdin ein og myndirnar af henni frábærar, algjör grallararófa - meiri skottan.
Hlakka til að hitta ykkur
knús og enn og aftur hamingjuóskir til ykkar elsku fjölskylda.

Nafnlaus sagði...

hæ aftur gleymdi að kvitta,
kv. Día og co