Deginum í gær og í dag var að mestu varið utanhúss. Í gær var farið í sund (aftur!) og svo grasagarðurinn þar sem sú stutta tiplaði á tánum í grasinu á meðan stóra systir og Elísabet vinkona hennar stóðu fyrir leikhússýningu á styttunum. Í dag kom Blómvangsfjölskyldan í heimsókn og eftir gott morgunkaffi var farið í Húsdýragarðinn þar sem Matthildur og Sigga Bára nutu sín ekki síður en Karólína og Auður Edda.
Svo var haldið heim, Sigga Bára og Matthildur léku sér það sem eftir var degi á meðan Auður Edda tók sér lúr og tók á móti þeim Palla, Höllu og Steinunni Völu.
Auður Edda er ótrúlega lífsglöð stúlka, hún veit hvað hún vill, er feimin við ókunnuga en þar sem hún er öruggust já þá á Duracell viðurnefnið vel við!! Sigga Bára stóra ljósið okkar er svo þolinmóð og góð við nýjan fjölskyldumeðlim - hefur eiginlega stækkað mikið á þessum tveimur vikum - kannski of mikið finnst mömmu.
Jæja hér er meira af þvotti en var áður og okkur ekki til setunnar boðið ....
Bless í bú
Myndir eru hér
sunnudagur, ágúst 01, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Takk fyrir frábæra stund í gær. Auður Edda er náttúrulega bara engill...en samt algjör púki ;-) Átti erfitt með mig á köflum þegar þið voruð að reyna að aga hana til...hehe
Stóru englarnir okkar eru náttúrulega bara svoooo miklar vinkonur, yndislegt alveg :-)
Við erum rík, endalaust rík !!!
Blómvangsfjölskyldan
Elsku Gyða, Kalli, Sigga Bára og Auður Edda velkomin heim.
Enn og aftur innilegar hamingjuóskir með ykkar flottu dætur. Mikið er gaman að fylgjast með Auði Eddu og Siggu Báru og yndislegt hvað allt hefur gengið vel hjá ykkur.
Tóta er mikið að velta fyrir sér hvernig systurnar léku sér í Kína. Hún situr nú og teiknar mynd handa Siggu Báru, Auði Eddu og fjölskyldu.
Knús og kveðjur.
Kristín, Reynir og Tóta
Seinasta myndin í albúminu sem fylgir þessari færslu er bara sú sætasta í heimi!:D***
erna hrund og alli
Skrifa ummæli