Við fórum fjölskyldan í gær niður í bæ eins og svo margir. Búið var að skrá Siggu Báru í Latabæjarhlaupið og var mikil stemming yfir þátttökunni, síðast þegar hún fór í það var hún þriggja ára og man ekkert eftir því!! Þarna hittum við marga vini og var mikil gleði. Sigga Bára vissi það að það myndu allir vinna í þessu hlaupi og var sú setning endurtekin nokkrum sinnum við ráslínuna þar sem hún stóð auðvitað fremst. Mamma hljóp með henni þessa 1,5 km. á meðan pabbi og Auður Edda voru í hópi hvetjara á hliðarlínunni. Til að gera langa sögu stutta þá við marklínuna bauðst Sigga Bára til að draga mömmu í mark – jebb hún hefur þolið í lagi hún Sigga Bára.
Eftir hreyfinguna var labbað niður á torg, drukkið kaffi í Ráðhúsinu með Olgu, Olla og Eyþóri en þar sem vindur hafði rokið upp og kuldi farinn að hrjá mannskapinn var farið á skyndibitastað borðað mikið óhollt, brunað á videoleigu og svo var horft á Harry Potter með popp í skál. Sigga Bára er nefnilega að byrja á Harry Potter bókunum – pabbi les fyrir mæðgurnar á kvöldin og svo er horft á viðeigandi mynd. Hann kann að dekra við dömurnar sínar hann Kalli!
Bless í bú
2 ummæli:
Já, Kalli Potter kann nú að dekra við dömurnar sínar ;-)
Sigga Bára....þú ert ekkert smá flott og dugleg með verðlaunapeninginn þinn....og Auður Edda...ég held barasta að þú hafir verið sætasti áhorfandinn í hlaupinu...hehe
knús
Kristín og kó
Fallegustu systurnar* Hlakka til að busla með stóru systur í læknum í Suðursveit:D
svo vitið þið að allar Harry Potter bækurnar eru til á Miklubrautinni á íslensku;)
knús í hús
Skrifa ummæli