miðvikudagur, ágúst 11, 2010
Áfram heldur gleðin
Auður Edda Jin er algjör perla og unnir sér vel hjá okkur. Undanfarnir dagar hafa verið virkilega skemmtilegir og gefandi fyrir okkur með Auði Eddu. Hún er skemmtilegur orkubolti sem er alltaf á fullu og líka dugleg að dunda sér og skoða hlutina ef þannig stendur á. Helst vill hún vera úti og þá helst hlaupandi nú eða í sundi. Búið er að fara í fyrstu heimsókn til Ömmu og Afa þar sem hún tók vel til matarins sem gladdi afa mikið. Hún borðar vel og nýtur þess að smakka og ekki síður að taka þátt í því að búa til mat sem er alveg eins og Sigga Bára hefur líka alltaf gert. Sigga Bára er virkilega góð við litlu systir og skilningsrík og leikur sér við hana og leiðbeinir eins og búast mátti við af henni. Þrátt fyrir að við höfum mest verið heimavið og tekið á móti gestum þar eins og aðstæður leyfa þá leyfðum við okkur að fara og hitta hóp 12 um síðustu helgi , en hópurinn frábæri hittist að þessu sinni í Elífsdal í Kjósinni. Það vantaði ekki gleðina þar og stúlkurnar skemmtu sér virkilega vel og nutu þess besta sem hægt er, góðum félagsskap, fallegu umhverfi og ótrúlega góðum mat (og mikið af honum). Sú stutta var virkilega þreytt eftir daginn og sofnaði í bílnum á leiðinni sem er fyrsta skipti sem það gerist. Við höfum svo verið að gera smá aðlögun á herbergjum hjá okkur til að tryggja að skólastelpan sem er að fara í fyrsta bekk eftir nokkra daga verði tilbúin í nýtt umhverfi, annars verður að segjast eins og er að lífið leikur við okkur og dömurnar eru báðar alveg frábærar og gera gömlu hjónin yngri ef eitthvað er....
Aurður Edda er líka farin að skilja alveg ótrúlega mikið, fara eftir tilmælum, sækja hluti og tala smá þó kínverskan sé auðvitað númer eitt!!
Myndir birtast bráðum kannski í næsta pósti - tæknin aðeins að stríða okkur.
Bless í bú
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


5 ummæli:
Frábært að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur, þessar tvær stelpur ykkar eru svo ótrúlega flottar, fallegar og duglegar :)
Bestu kveðjur, Unnur V
Ahhh - ég var komin með smá fráhvarf! Það hefur verið yndistíminn minn að lesa fréttir af fallegu systrunum og foreldrum þeirra.
Yndislegt að allt gengur svona vel.
kær kveðja úr Á-4
Sigurlaug
Ahhh - ég var komin með smá fráhvarf! Það hefur verið yndistíminn minn að lesa fréttir af fallegu systrunum og foreldrum þeirra.
Yndislegt að allt gengur svona vel.
kær kveðja úr Á-4
Sigurlaug
enn og aftur gaman að heyra og sjá hve yndislegar stelpurnar eru og hversu ótrúlega dugleg hún Auður Edda hetja er að aðlagast, efast ekki um að þar eigi Sigga Bára stóran hlut að máli þótt foreldrarnir séu reyndar ágætir líka :-)
Okkur G.E. langar að fá að kíkja á ykkur svona þegar þið teljið að það henti litlu prinsessunni vel einhvern tíman á næstu vikum.
bestu kveðjur
Día og G.E.
Kæra fjölskylda.
Mikið lifandi, skelfingar, ósköp er gaman að heyra hve vel gengur hjá ykkur. Njótið samverunnar.
Bestu kveðjur, Hildur Björg og foreldrar.
Skrifa ummæli