föstudagur, júní 11, 2010

Það er erfitt að bíða

Það verður að segjast eins og er að biðin eftir litlu systir er farin að verða löng hér hjá okkur öllum. Sérstaklega þegar nýju myndirnar bárust okkur í fyrradag. Við hugsum daglega til Auðar Eddu Jin, biðjum fyrir henni og vonum að það skili sér alla leið til Kína í litlu sálina hennar.

Mamman vonar að ferðaleyfið komi í næstu viku því hún gæti ekki hugsað sér betri afmælisgjöf en grænt ljós til Shanghai.
Bless í bú

miðvikudagur, júní 09, 2010

Nýjar upplýsingar um Auði Eddu Jin

Það var mikil gleði í morgun þegar tölvuskeyti barst frá Kína með nýjum upplýsingum um dömuna okkar og að auki tvær nýjar myndir. Hún hefur stækkað mikið litla ljósið frá þeim tíma sem hinar upplýsingarnar voru gerðar. Auður Edda er núna 82,5 cm. á hæð, vegur 10,5 kíló og hefur 20 tennur!!
Það kemur fram að hún labbar en er óvön að labba í stigum. Hún er dugleg að leika sér og farin að tala en þó ekki mikið. Hún er hrædd við ókunnuga og grætur ef þeir nálgast (svolítið mikið lík stóru systur þar).
Svo beið líka í pósthólfinu staðfesting frá Brian í Bandaríkjunum en hann hefur fundið mynd af Auði Eddu sem kornabarni, hann fann líka fyrir okkur mynd af Siggu Báru á sínum tíma.
Það verður að segjast að það er mikill systra svipur með Siggu Báru og Auði Eddu og sagðist Sigga Bára ætla að leyfa henni alltaf að vera með sér, líka þegar hún væri með vinkonum sínum. Það leið samt ekki langur tími þar til hún kom með fyrirvara - "Mamma en ég þarf sko líka stundum að fá frí!" Við erum svo viss um að hún Sigga Bára verður besta stóra systir sem hægt er að eignast og hún er alveg tilbúin í það hlutverk.
Lífið er gott og núna er beðið eftir laugardeginum en þá ætlar Sigga Bára að halda upp á 6 ára afmælið (á afmæli 24.júní) með vinkonum frá leikskólanum og búið að vera að undirbúa það í kvöld og dag enda stór áfangi að vera 6 ára.
Lífið er gott og mikið þakklæti hér hjá okkur öllum
Bless í bú

fimmtudagur, maí 27, 2010

Útskrift Siggu Báru Min úr leikskóla



Í dag var útskriftardagur Siggu Báru úr leikskólanum. Dagurinn var stórkostlegur hjá henni en allur hópurinn fór í útskriftarferð á Skagann og nágrenni sem lauk með busli á Langasandi. Svo kl. 18 var hin eiginlega útskrift þar sem allir mættu í sínu fínasta pússi í hátíðarskapi. Börnin gengu svo fram ganginn við undirleik Michael Jackson og sungu og dönsuðu, fleiri söngatriði komu svo í kjölfarið, ræður, pizzu veisla og muffur sem þau bökuðu í gær. Vá hvað við erum búin að vera þakklát fyrir þessa stórkostlegu kennara sem Sigga Bára hefur haft undanfarin ár - það verður seint fullþakkað öll sú hlýja og hvatning sem hún hefur fengið þar svo ekki sé minnst á faglega starfið þar.
Mamman táraðist - viðurkenni það fúslega en þetta er bara stórt skref!!
Litla stóra ljósið okkar er sofnað svo óendanlega glöð.
Bless í bú
Posted by Picasa

miðvikudagur, maí 19, 2010

Það er lítil stúlka sem bíður

Núna er hægt að greina frá því að fjölskyldan stækkar bráðum. Við skrifuðum undir í dag LOA eða samþykki fyrir að ættleiða yndislega stúlku sem við höfum nefnt Auði Eddu Jin, en kínverska nafnið hennar er Wu Jin Fang. Hún er fædd þann 19.desember árið 2007 og býr í Shanghai.
Við erum núna orðin mikið spennt yfir að fá að hitta hana þó svo að allt ferlið okkar hafi gengið ótrúlega hratt hingað til. Upplýsingarnar bárust okkur á síðasta vetradag þannig að hún er stóra sumargjöfin okkar.
Sigga Bára er ofboðslega spennt og stolt. Getur varla beðið eftir því að fá litlu systir í fangið en aðal málið hjá henni er hvort hún geti ekki örugglega haldið á henni. Auðvitað getur hún það enda að byrja í grunnskóla í haust!
Núna biðjum við til guðs að allt gangi vel í framhaldinu hjá okkur og að við fáum fljótt að hitta litla ungann okkar.
Bless í bú

laugardagur, maí 15, 2010

Fyrsta fótboltaæfingin - Áfram Þróttur

Hún Sigga Bára fór í morgun á sína fyrstu fótboltaæfingu (mamman búin að grátbiðja hana lengi að fara á æfingu) hjá Þrótti. Hún á góða vinkonu sem heitir Elísabet sem skoraði á hana að mæta og viti menn, inn á völlinn gekk Frammari en út af vellinum gekk Þróttari, búin að skora sitt fyrsta mark, búin að taka Þróttarahring með félögunum og öskra saman LIFI ÞRÓTTUR!!
Bless í bú

fimmtudagur, maí 13, 2010

Vortónleikar yfirstaðnir

Sigga Bára tók þátt í vortónleikum tónlistarskólans í gær og stóð sig eins og sannur fagmaður allan tímann. Hún er búin að vera svo dugleg að æfa sig og foreldrarnir skilja bara ekki hvernig hún getur munað öll þessi lög í fallega kollinum sínum. Amma og afi komu og fylgdust með og svo afhentu þau henni fallega rós að tónleikum loknum - þau kunna að koma fram við prinsessu - enda amma drottning!!
Það er komið mikið vor í hug og hjarta. Pabbi er að fara til Stykkishólms í dag með afa og fleirum að spila golf en við mæðgur munum hitta Matthildi, Karólínu og Kristínu sem verður bara gaman.
Heimilið er búið að vera undirlagt en verið er að mála og snurfusa því ekki gefst tími til þess þegar hugsa þarf um fleiri dömur hér á bæ!!
Bless í bú

laugardagur, apríl 24, 2010

Milljón hjörtu

"Það eru milljón hjörtu inni í mér núna. Jörðin er hjarta og pláneturnar eru hjarta"
Svona segir hamingjusöm lítil stúlka.

fimmtudagur, apríl 22, 2010

Gleðilegt sumar

Sigga Bára Min óskar öllum gleðilegt sumar. Hún kvaddi veturinn í gær með því að syngja með yfir 200 jafnöldrum sínum í Háskólabíói, á vegum Menningarhátíðar Barnanna, en það var stórkostleg upplifun að hlusta á ungmenni landsins svona stillt, prúð og fjölhæf. Þarna sást líka hvað Sigga Bára er heppin með kennara en þær stöllur eiga mikið hrós skilið.

Núna er Sigga Bára að hoppa á trampólíninu með Agnesi vinkonu sinni, en þær eru búnar að vera þarna úti í 2 klukkutíma og ekkert fararsnið á þeim!!! Sigga Bára fékk ósk sína uppfyllta í morgun en sumargjöfin var þáttaröðin Jörðin, en hún elskar að horfa á dýralífs- og náttúruþætti, að auki allt með íslensku tali. Núna verður bara rætt um dýr á næstunni.

Á eftir verður farið í skírn fröken Karolínu, móðir Siggu Báru fékk þann heiður að verða guðmóðir hennar, kæra þakkir fyrir það.

Veturinn kvaddi með fyrirheit um dásemdar sumar.
Bless í bú

sunnudagur, apríl 18, 2010

Í gær missti Sigga Bára Min tönn númer tvö

Í gær fyrir utan Laugaveg 3 voru tvær vinkonur með lausar tennur að labba þegar ein sagði hissa við mömmu sína "Mamma ég var að missa tönn!!" hin horfði á og sótti eina tönn og sagði "Ég var líka að missa tönn!!" Svona eru vinkonurnar tengdar - Matthildur missti tönn nr. 2 fyrst og svo var keppnisandinn í Siggu Báru sem rak hana áfram!! Þetta var ótrúlega fyndið að fylgjast með þessu. Á meðan þessu stóð voru Kalli og Gústi að sækja trampolín fyrir Siggu Báru á Þingvelli og við Sigga Bára og Matthildur vorum á Laugaveginum ásamt Kristínu og Karolínu eðaldömu þar sem leitað var stíft að skírnarkrossi. Tennur fuku, krossinn fannst og svo var bara hoppað það sem eftir lifði dags.
Vorið er komið og sumarið alveg að koma - þarf kannski keppnisskapið hennar Siggu Báru
Bless í bú

sunnudagur, apríl 04, 2010

Gleðilega páska








Fjölskyldan byrjaði þennan páskadag mjög snemma. Mamman var mætt í kirkjuna kl. 7 til að undirbúa morgunkaffi fyrir kirkjugesti eftir morgunmessuna. Mikil stemming sem því fylgir. Amma kom og svo mætti prinsessan og faðirinn akkúrat þegar kaffið var komið á borð. Það var svolítið mikið brauð eftir þannig að brunað var í morgunsólinni niður á Tjörn og það voru margar fuglafjölskyldur sem mettuðu litlu maga sína úr hendi Siggu Báru. Sundlaugin var heimsótt og auðvitað var farið til frændsystkina í Holtinu þar sem Sigga Bára prufaði í fyrsta sinn að aka um í kassabíl - núna er það efst á vinsældarlistanum - held að allir viti hver þyrfti að ýta...það yrði ekki mamman!! Kvöldið var svo fullkomnað með ömmu, afa og Sigga Val þar sem ungfrúin stjórnaði skemmtilegum leik sem hún fann alveg upp á sjálf.
Ein tönn laus þessa dagana og 6 ára jaxlinn kominn nánast alveg upp, litla stóra stelpan okkar dafnar vel.
Bless í bú

miðvikudagur, febrúar 10, 2010

Fyrsta tönnin farin

Jæja þá er það byrjað, fyrsta barnatönnin datt í dag og skottan er núna að byrjar að vera tannlaus. Þetta er auðvitað eitt merkið um aukin þroska og kemur í sömu viku og foreldrarnir fengu bréf frá borginni um að skrásetja skyldi dömuna í skóla sem fyrst. Siggu Báru fannst þetta auðvitað alveg frábært að fara í alvöru skóla með skólatösku og getur ekki beðið eftir haustinu.
Spennandi tímar og kannski þarf fjölskyldan bara að vera á fljótandi fæði um páskana því fáar tennur verði eftir, nei varla

fimmtudagur, desember 24, 2009

Gleðileg jól


Sigga Bára og fjölskylda óskar öllum gleðilegra jóla.

Aðventan hefur verið róleg og notaleg. Búið er að baka smákökur, búa til konfekt og gera jólaföndur. Sigga Bára er líka búin að taka þátt í tveimur tónleikum í fiðlunni og staðið sig eins og hetja, er farin að spila 8 lög!

Fyrsta tönnin losnaði líka á aðventunni og núna er pínu skrýtið að bíta í matinn finnst henni þannig að búast má við að lítil tönn verði eftir í einhverjum karamellubitanum um hátíðarnar.

Jólasveinninn kom í morgun og heimsótti Siggu Báru og söng daman fyrir hann Jólasveinar einn og átta. Núna er stefnan tekin til ömmu og afa í möndlugraut og svo verður það kirkjan í kvöld.

Gelðileg jól kæru vinir og fjölskylda

Sigga Bára Min og foreldrar

sunnudagur, nóvember 29, 2009

Fyrsti í aðventu



Góðan og gleðilegan hvítan sunnudag. Nýfallinn snjór er úti og Sigga Bára með pabba að sjá um að fuglarnir fái nóg að borða. Epli sett í tréin og fræpokar hanga eins og jólakúlur í trjánum.

Það er búin að vera skemmtileg stemming hjá Siggu Báru undanfarna daga. Piparkökumálun hjá ömmu er yfirstaðin, piparkökuhúsið skreytt og svo er búið að baka eina sort. Hún Sigga Bára er sannkallaður héraðsstubburbakari, mömmu til mikillar gleði. Hún deilir áhugamáli móðurinnar og kallar hástöfum þegar Nigela eða Jóhanna Vigdís birtast á skjánum!

Nema hvað hún er líka búin að hitta merkilega manneskju í mánuðinum og tók mamma mynd af því tilefni. Palli frændi hennar - sá mikli snillingur - hefur skrifað ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur og bauð Siggu Báru í hóf til að fagna útgáfu bókarinnar. Þegar Sigga sér þessa mynd segir hún það sem Vigdís sagði þennan dag " Það sem kom fyrir mig getur komið fyrir allar litlar stúlkur líka!" og með þessi orð í huga labbar sú stutta teinrétt út í lífið.

Bless í bú!

föstudagur, október 30, 2009

Tíminn flýgur áfram

Það er svo gaman að vera til. Sigga Bára er búin að vera í Ensku húsunum með vinkonum sínum Matthildi, Stínu, Sunnu, Söru, Önnu Kristínu og Tótu. Auðvitað má ekki gleyma litlu englunum þeim Karólínu og Högnu. Já við vorum umvafin prinsessum þessa helgina.
Svo er Sigga Bára búin að vera mjög dugleg að æfa fiðluna og mamma má hafa sig alla við svo daman rjúki ekki á undan henni í lærdómnum. Hún er líka búin að fara á Söngvaseið með Þóru frænku - ekki amalegt það og svo fór hún líka í bíó með Matthildi - sáu myndina um hana Skellibjöllu.
Núna vorum við að koma frá Blómvangi. Fengum dýrindis súpu og sætan eftirmat. Alltaf gaman að hitta góða vini - við erum rík.
Bless í bú

mánudagur, september 28, 2009

Sigga Bára hjólaði ein og óstudd

Í dag eftir leikskóla fóru mamma og Sigga Bára út í skóla á hjólinu hennar Siggu Báru. Það sem er stórkostlegast við þessa ferð er að daman ákvað að hjóla ein og gekk svona vel. Hún þarf hjálp við að komast af stað en svo er hún óstöðvandi og hjólaði hring eftir hring. Mikið var mamma stolt af dömunni. Svo er hún líka svona klár í að stoppa, dettur út á hlið en stendur samt.
Þú ert bara snillingur Sigga Bára Min!!!!
Bless í bú

þriðjudagur, september 22, 2009

Byrjuð í nýjum skóla

Sigga Bára er byrjuð að læra á fiðlu og það er mjög spennandi. Mæðgurnar fóru í síðustu viku og versluðu fiðlu sem er lítl og falleg, alveg eins og tónlistarneminn. Foreldrarnir eru líka í námi til að byrja með og finnst þeirri stuttu gaman að fylgjast með sarginu í þeim en svo koma bara fallegir tónar frá henni.
Þetta verður spennandi vetur.
Bless í bú.

þriðjudagur, ágúst 25, 2009

Síðasta leikskólaárið hafið

Sigga Bára er stór stelpa um þessar mundir. Góðir vinir á leikskólanum farnir í barnaskóla og hún því orðin stóra stelpan í leikskólanum. Þetta er ábyrgðarmikið starf , daman labbar teinrétt og skilur vel að hún er fyrirmynd og á leið í skólahóp. Það er ekki nóg að vera elst heldur er annað spennandi í nánd - tennurnar fara að detta!! Oft á dag koma spurningar spurningar hvenær hún missi fyrstu tönnina, ýtir svolítið á þær í neðrigóm og fylgist með örhreyfingum tannanna í speglinum. Jú maður er bara ekki frá því að þær hreyfist pínu, eða hvað? En daman er líka að hefja nám í fiðluleik sem er mjög spennandi. Fyrsta mæting er í næstu viku og mikið búið að spegulera. Eitt er víst að fingur eiga að vera hreinir og auðvitað eru allar fiðlustelpur í kjól með hárið uppsett. Búið er að týna mikið af rifsberjum og sulta, hún er svo iðin þessi stúlka og svo bíður okkar rabbabari sem daman og mamma eiga eftir að ákveða hvað skal gera með. Hún amma fór nefnlega með okkur mæðgur í sveitina um helgina og fylltum við poka af rabbabara - heppnar við.
Daman er sofnuð og á morgun er prinsessudagur með ömmu sem engann svíkur.
Bless í bú

föstudagur, júlí 10, 2009

Fjögur ár síðan við sameinuðumst

Lífið með Siggu Báru eru eintómir hátíðardagar og í dag er enn einn slíkur. Það eru í dag fjögur ár síðan við fengum hana Siggu Báru fyrst í fangið á Gloria Plaza hóteli í borginni Jiangxi. Litla píslin sem var létt eins og fjöður, með fallegu augun sín sem voru svo lífsreynd. Þakklætið er óendanlega mikið hjá okkur foreldrunum.
Gleðin heldur áfram. Í dag er fyrsti dagurinn okkar í fríi - tilhlökkunin hefur verið mikil. Það á að gera margt þessar fjórar vikur og því fékk daman nýja strigaskó því nú skal gengið, hjólað, sippað og hlaupið! Já hátíðardagar ótrúlega margir hér á bæ!!
Við pabbi erum svo heppin!!!
Bless í bú

miðvikudagur, júní 24, 2009

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....



hún á afmæli hún Sigga Bára, hún á afmæli í dag. Elsku hjartans dýrgripurinn okkar varð fimm ára í dag. Stórkostlegur dagur, sólin skein úti sem inni. Daman vaknaði hálf sjö stærri, vitrari og þroskaðri en kvöldið áður. Hún fór að skreyta kökur fyrir fjölskylduafmælið, fór í afmælisbaðið en lét ekki þar við sitja. Hún varð að fá Carmen rúllur líka fyrir leikskólann!! Það var því tekinn upp hárblásari og allt var sett á fullt, rúllurnar hitaðar, fundið pils sem snýst mikið og svo var mín tilbúin. Tilbúin til að vera stjarna dagsins og það var hún svo sannarlega. Fáninn dreginn að húni á leikskólanum og þar bakaðar pönnukökur fyrir afmælisbarnið. Svo tók næsta veisla við, vinkonur úr leikskólanum og Matthildur mættu í sannkallað prinsessu afmæli - þær voru allar svo flottar, það var dansað, farið í pakkaleik, út í garð og hoppað á trampolini. Svo tók næsta veisla við, öll ættin og vinir mættu til að fagna þessum merkis áfanga. Frændsystkini og vinir voru úti í garði að leika og pabbinn grillaði hamborgara. Þegar kominn var tími til að fara að hátta var FIMM ára daman orðin þreytt, svo ánægð með hvað margir komu og samfögnuðu með henni. Fyrir hönd dömunnar í draumaheimi þökkum við ykkur öllum fyrir frábæran dag.

Bless í bú

þriðjudagur, júní 23, 2009

Afmælið er á morgun







Ef þetta er ekki búið að vera stórkostlegt að fylgjast með og taka fullan þátt í þessum spennandi aðdraganda afmælisins !!!! Sigga Bára er búin að baka, skreyta kökurnar, smakka nammið ( sumt oftar en einusinni ), fara í gegnum morgundaginn í huganum og þykjustinni og meira að segja semja lag um eina stelpu sem á afmæli í júní!!!! Hve maður er ríkur að fá að upplifa tæra einlæga og sanna tilhlökkun með Siggu Báru



Þú ert bara best og flottust Sigga Bára!



Bless í bú