mánudagur, september 28, 2009

Sigga Bára hjólaði ein og óstudd

Í dag eftir leikskóla fóru mamma og Sigga Bára út í skóla á hjólinu hennar Siggu Báru. Það sem er stórkostlegast við þessa ferð er að daman ákvað að hjóla ein og gekk svona vel. Hún þarf hjálp við að komast af stað en svo er hún óstöðvandi og hjólaði hring eftir hring. Mikið var mamma stolt af dömunni. Svo er hún líka svona klár í að stoppa, dettur út á hlið en stendur samt.
Þú ert bara snillingur Sigga Bára Min!!!!
Bless í bú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Snillingur!!!:)
Sigga Bára Min verður án efa flottasta fiðlustelpan!:)
Knús og kveðjur frá Akureyri,
Gígja og co.

Heiða Árna sagði...

Hjól og fiðla...bara allt að gerast!!! Svo skemmtilegt að fylgjast með þessum skrefum sem þau taka :)
kv Heiða Árna
p.s. annað barn á leiðinni hérna megin í apríl ;) Þá verð ég nánast orðin 3ja barna móðir (með fóstursynininum), nóg af skrefum að fylgjast með! Stuð á bæ...