sunnudagur, nóvember 29, 2009

Fyrsti í aðventu



Góðan og gleðilegan hvítan sunnudag. Nýfallinn snjór er úti og Sigga Bára með pabba að sjá um að fuglarnir fái nóg að borða. Epli sett í tréin og fræpokar hanga eins og jólakúlur í trjánum.

Það er búin að vera skemmtileg stemming hjá Siggu Báru undanfarna daga. Piparkökumálun hjá ömmu er yfirstaðin, piparkökuhúsið skreytt og svo er búið að baka eina sort. Hún Sigga Bára er sannkallaður héraðsstubburbakari, mömmu til mikillar gleði. Hún deilir áhugamáli móðurinnar og kallar hástöfum þegar Nigela eða Jóhanna Vigdís birtast á skjánum!

Nema hvað hún er líka búin að hitta merkilega manneskju í mánuðinum og tók mamma mynd af því tilefni. Palli frændi hennar - sá mikli snillingur - hefur skrifað ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur og bauð Siggu Báru í hóf til að fagna útgáfu bókarinnar. Þegar Sigga sér þessa mynd segir hún það sem Vigdís sagði þennan dag " Það sem kom fyrir mig getur komið fyrir allar litlar stúlkur líka!" og með þessi orð í huga labbar sú stutta teinrétt út í lífið.

Bless í bú!

4 ummæli:

Kristín Vald sagði...

Halló elsku vinir

Flott mynd af flottri stelpu og flottri konu....og það á sko eftir að verða eitthvað úr henni Siggu Báru, hún á eftir að ná langt í lífinu :-)

knús á ykkur og hlökkum til að hitta ykkur á fimmtudaginn!

Blómvangurinn eins og hann leggur sig

Nafnlaus sagði...

Æðisleg mynd af tveimur flottum!!!:)
Knús og kveðjur inn í aðventuna ykkar,
Gígja, Tommi, María Mist og Burpees:)

Nafnlaus sagði...

Vá ekki amalegt að hitta "frú" Vigdísi :) Glæsileg mynd...njótið aðventunnar.
kv Heiða (fyrrv. Útl.)

Nafnlaus sagði...

Flottar saman Sigga og Vigga.
Hafið það sem best á aðventunni, vonandi sjáumst við fljótlega, alltaf svo gaman að hitta flottar stelpur.

Bestu kveðjur frá Hildi Björgu og fjölskyldu.