Jæja kæra fjölskylda og vinir. Núna fer að líða að því að við komum heim og erum við farin að hlakka til að koma litlu Siggu heim í sitt örugga skjól. Því miður getum við ekki sett inn myndir eins og staðan er hjá okkur en hótelið sem við gistum á núna er ekki vel búið þ.e. það tekur svooooo langan tíma að setja myndirnar inn á netið og viljum við frekar nýta þann tíma til að dást að fegurðinni sem liggur sofandi niðri í herbergi núna.
Reynum að setja inn nýjar myndir á morgun ef sambandið verður eitthvað betra þá. Annars sendum við ykkur öllum þúsund kossa yfir hafið og þökkum fyrir falleg orð og hugsanir þann tíma sem við höfum verið hér.
Ykkar Sigga Bára, Kalli og Gyða ( þetta er forgangsröðunin hér hjá fölskyldunni núna).
mánudagur, júlí 18, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
18 ummæli:
Við hlökkum til að sjá ykkur og gangi ykkur sem best á leiðinni heim (í hreiðrið á Hofteignum).
Kv. Við í Gvendargeisla 78
Æ var ný búin að setja inn á hitt bloggið geri það bara aftur hér , góða heimferð og hlakka til að sjá þessa rúslu :)
Endilega ef þið hafið ekkert að gera (hehe) kíkið á síðuna hjá Bjarti og Freyju bjarturogfreyja.barnaland.is
Gerður
Gott að heyra að allt gengur að óskum.
Hlakka til að hitta ykkur úti á velli þann 20.
Óver end át...
Don.
flott mál hlakki hlakk líka eins og don sjálfur og allir´hér á djöflaeyjunni eins og gunna segir :)
fer á hofteiginn á morgun með bínu og geri klárt
xx þórhildur
Óskum ykkur góðrar heimferðar og enn betri heimkomu. Hlökkum til að sjá ykkur öll.
Helgi og Co.
Mikið er frábært hvað allt hefur gengið vel. Óska ykkur góðrar heimferðar. Baddý og Dóra biðja að heilsa. Ég er búin að margskoða myndirnar. Bið að heilsa Jóni og fj.í Peking. Það væri ómetanlegt ef þið mynduð blogga áfram eftir að heim er komið, svona annað slagið svo maður geti fylgst Siggu Báru frænku sinni. Veit að allir eru svoooo spenntir að hitta hana og ykkur auðvitað. Ég veit að það færir mer og öðrum svo mikla gleði að fá að "taka þátt" í þessu ævintyri með ykkur. Kæra fjölskylda, góða ferð heim.
Kristbjörg Hrund og SKapti
Góða ferð heim elsku litla fjölskylda og þakka ykkur fyrir að leyfa okkur að fylgjast svona vel með ykkur á framandi slóðum. Við bíðum svo bara rólega eftir græna ljósinu og hittum ykkur þegar allir eru tilbúnir en laumið fimm kossum á knúsynjuna litlu frá okkur!
HK og PV og dætur
Elsku krakkar mínir. Ég er svo hamingjusöm, myndirnar tala sínu máli. Óskaplega hefur allt gengið vel hjá ykur. Guð veri með ykkur.
Dora
elsku fjölskylda Sigga Bára Min Gyða og Kalli við afi er orðin mjög spennt að fá ykkur öll heim afi búinn að hreinsa bílinn og ætlar að ná í barnastólinn á Hofteig veðrið er gott og 15 stiga hiti í dag. Siggi Valur hress í Hollandi semsagt allt tilbúið í móttöku fjölskyldunnar. Kveðjur amma og afi
Kæru vinir. Við erum svo spennt á stöðinni að fá ykkur heim. Allir að spyrja um ykkur og gleðin er mikil. Hugur okkar er hjá ykkur og biðjum ykkur allrar blessunar á heimferðinni.
Allir að stikna á stöðinni, það er svo svakalega heitt og glaða sólskin.
Biðjum öll að heilsa ykkur
Geir Jón
Góða ferð og hlakka til að sjá ykkur :D
ætlaði að gera allt klárt í dag fyrir ykkur en of gott veður og bjór og rauðvín kallaði svo það gengur fyrir þið fattið!!elfur og arndís á svölunum hahha en lofa að klára þetta á morgun meina gott að reiða sig á mig-haldið því áfram:))góða ferð heim og gangi allt best þangað til .........sjáumst þokkalega fyrst lofa því
xx þórhildur
Menn í Laugarneshverfi eru farnir að bíða..og bíða... eftir að fá Sigríði Báru heim ásamt fjölskyldu.
Menn eru jafnvel farnir að taka til í görðum sínum.Hjartanelga velkomin heim öll sömul.
Fjölskyldan Sigtúni 25
Innilega til hamingju aftur. Litla daman er svo mikill sjarmur að maður fær kökk í hálsinn!! Vægast sagt yndisleg. Hlakka til að fá að sjá hana einn góðan dag!
Kv, Ásta Sigga (nafna hehe)
Innilega til hamingju aftur. Litla daman er svo mikill sjarmur að maður fær kökk í hálsinn!! Vægast sagt yndisleg. Hlakka til að fá að sjá hana einn góðan dag!
Kv, Ásta Sigga (nafna hehe)
Innilega til hamingju aftur. Litla daman er svo mikill sjarmur að maður fær kökk í hálsinn!! Vægast sagt yndisleg. Hlakka til að fá að sjá hana einn góðan dag!
Kv, Ásta Sigga (nafna hehe)
Elsku Gyða og Kalli
Til hamingju með dótturina, það er gaman að fá á fylgjast með. Vonandi fær maður að sjá gleðigjafann Siggu Báru einhverntímann fljótlega.
Kv.
Auður Sig
Elsku Gyða og Kalli
Innilega til hamingju með litlu prinsessuna, hún er algjört krútt.
kveðja Jóhanna Lilja Eiríksdóttir og fjöldskylda Vestmannaeyjum
Skrifa ummæli