Lífið er yndislegt það er ekki hægt að segja annað. Litla daman er svo ótrúlega skemmtileg að það hálfa væri nóg. Hún var greinilega “löt” í morgun og svaf til 6:30 og þá vildi hún bara aftur koma uppí til okkar og kúrði sig hjá okkur og greinilega vissi að við voru bæði frek á hana þannig að hún skipti sér jafnt á milli.
Annars er það að frétta að það er mjög heitt hérna í Nanchang í dag og frekar hreint loftið eftir miklar þrumur, eldingar og rigningar í gærkvöldi og fram á nótt. Í dag fórum við að skoða Pavillion eða eins konar sýningarhöll sem fyrst var byggð um 650 eftir krist en hefur verið endurbyggð 29 sinnum síðan þá af ýmsum ástæðum bæði nátturhamförum (flóð) og af mannavöldum. Það var einhver fylkisstjóri hérna sem var mikill fræðimaður og skáld og fleira sem lét byggja þetta hús í upphafi sem var svo eingöngu fyrir fyrirfólk og var fyrst opnað almeningi um 1999 ef við náðum þessu rétt. Vorum við ekki stórveldið í norðri (Ísland og Noregur) að reyna að okkur á þvi þá hvort við gætum grafið okkur inn í moldarhauga á þeim tíma er þetta var byggt? Hér voru menn þá að mála málverk meðal annars með því að nota fiðrildi sem litagjafa og eins sem grunnþátt í verkinu sjálfu, auk þess að yrkja ljóð og búa til keramik. Það má gera grín að okkur ekki satt!
Það er alveg ótrúlega skemmtilegt og fróðlegt að fá fræðslu um þá menningu sem hefur ríkt hér um aldir og sérstaklega þá frá keisaratímum þessa stórveldis. Nú önnur menning er ekki síður merkileg en jafnframt sú hættulegast sem við höfum upplifað og það er umferðarmenningin. Það rifjast bara upp fyrir pabbanum samtöl við Gunnlaug heitinn Þórðarson dr. júris sem þekktur var fyrir frjálslegar skoðanir sínar á umferðarreglum því umferðarljós hafa enga þýðingu hérna, þau bara kveikna og slökkna eftir ferli sem enginn fer eftir. Menn keyra bara eins og þeim hentar og fara þá leið sem þeir telja best (hljómar bara svolítið íslenskt líka). Umferð á hraðbrautum getur þurft að stöðva skyndilega því einn gamall með allt sitt hafurtask á handvagni (jú auðvitað með minnst þrjár hænur líka í búri) hefur ákveðið að ganga eftir götunni betfættur og finn. Hér bara geng ég og hvað með það! Mest er þó hættan fyrir gangandi því þeir eru fullkomlega réttlausir hér og við höfum nær því verið ekin niður af lögreglubíl á gangbraut og fengið flaut fyrir að dirfast að ganga á þessum Zebrabrautum. Hér ægir líka öllu saman og andstæður ótrúlegar, það er splúnkunýr Audi eða BMW hugsanlega númerslausir sem aka við hlið ökutækja sem maður veit eiginlega ekki síðan hvenær eru eða þá eru dregin áfram af handafli. En þetta er alveg ólýsanlegt og flott að upplifa. Að vísu nota menn minna flaut hérna en í Peking en þar held ég þeim hafi verið kennt að í hvert sinn sem eknir hafi verið 5 metrar þurfi að flauta minnst tvö flaut og siðan halda áfram. Við myndum ekki fyrir okkar litla líf þora að keyra hérna um í borgunum svo mikið er víst.
En úr þessu til dömunar litlu sem braggast svo vel og er alveg yndisleg. Hún hefur svoleiðis sjarmerað okkar upp úr skónum og hlær núna og skemmtir sér, setur upp svo svakalegan púkasvip stundum að við skellum bara uppúr enda ekki annað hægt. Talandi um Púka Púkadóttir! Það hefur aðeins borið á smá öfund frá móðurinn sem segir að Pabbinn hafi aldrei sýnt þessa ”knúshlið sína áður”. Erfitt að rata milliveginn maður! En myndirnar tala sínu máli um þetta allt hjá okkur. Við erum orðin frekar spennt að koma heim en á morgun förum við aftur til Peking og því verður örugglega einhver bið í næsta blogg frá okkur því það er ekki nettenging á hótelherginu þar sem við dveljum þar því miður. En núna förum við að pakka og gera klárt fyrir fyrstu flugferð keisaraynjunar sem var borin af ”háöldruðum” foreldrum sínum í kerrunni sinni í dag 5 hæðir og þótt það bara alveg sjálfsagt.... Er þetta það sem koma skal?
fimmtudagur, júlí 14, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
21 comments:
Jú þetta hefur verið stíllinn hjá keisaraynjum að láta bera sig. Ég á eina sem finnst gott að láta stjana við sig - þótt 16 ára sé. Góða ferð til Peking hlakka til að sjá ykkur
Hemmi
Já nú var Hemminn fyrstur - meira að segja á undan Þórhildi :-) Það er frábært að lesa þessar frásagnir og gaman hvernig karakter litlu snótarinnar er farinn að koma í ljós - það sést sko á myndunum. Við hlökkum óstjórnlega til að sjá ykkur. Hér hefur veðrið ekki verið sérstakt en í dag skín sólin. Gyða: Flott í appelsínugula bolnum - ég vona að þú hafir sett upp varalitinn líka á þessari hátíðlegu stund.
Kveðja, Þóra
Elsku Kalli, Gyða og Sigga Bára.
Gaman að sjá myndirnar og ég hlakka til að sjá ykkur. En ég er að fara til Hollands í æfingarbúðir í kvöld og kem ekki aftur fyrr en eftir tvær vikur.
Sjáumst þegar ég kem aftur til Íslands.
Siggi Valur
P.S. Svabbi er að fara að gifta sig næsta sumar !
Til hamingju með prinsessuna. Hún er yndisleg og er bara nokkuð lík pabba sínum.Frábær penni hér á ferð.Gaman að lesa pistlana frá ykkur.
Takk fyrir að leifa okkur að fylgjast með.
kv Gullý mamma Þórhildar Nilam frá Indlandi og Freydísar Malin.
já náði ekki að vera fyrst enda skín sólin og þá er ekkert annað sem kemst að hjá mér en að ná geislunum öllum:))þetta er eina veikin mín eins og kalli veit....já já hvað á maður að segja en frábært og stöðugt er hugurinn hjá ykkur og púkadóttur ykkar.
xx Þórhildur frænka
Drífið ykkur heim svo maður geti étið þetta krútt!!!
Bína
Það er enginn miskun fyrst þið hafið ekki vanð hana á að labba upp 5 hæðir! En maður leggur nú ymislegt á sig fyrir svona stubb.
Þvílíkt krúttintúttintútt þessi dúlla.
Við á 143 erum að spá því að þessi dama verði til þess að auka meðalhæðina amk Landlystarmegin verulega þar sem fæstir ná því að vera mannhæðarháir, amk kvennamegin...hehe
Don Corleone et familia grande
ok.herra don!!! já kannski nær unginn að hækka okkur upp í 169cm.og bara láta þig vita kalli sem fylgist vel með sóldýrkun minni þá er ég vel brennd eftir daginn og enginn álpappir:))hlakka til að lesa næstu skrif.gangi ykkur vel á næstunni.x
Ohh hún er svo mikið krúttípútt segar hún er brosandi.
Ég er svo ágnægður þvá ég byrjaði að keisarynju og nú er það nafn notað og nú er loksins farið að hefja förina heim =OD
kv.Maggi fændi
Frábærar myndir. Voðalega eruð þið öll sæt en prinsessan er hreinn gullmoli maður nánast heyrir í henni í gegnum myndirnar. Við erum svo spennt að sjá hana og ykkur auðvitað líka.
Gangi ykkur vel það sem eftir er. Allir biðja að heilsa
Geir Jón
Elsku Gyða Kalli og Sigga Bára við afi erum búin að skoða nýjust myndirnar og spenningurinn við að fá að snerta og knúsa keisaraynjuna er að verða óþolandi en allt líður þetta nú og óðum styttist tíminn. Ég skrifaði lángt bréf um daginn sem ekki skilaði sér það hefur sjálfsagt verið of langt.allt er gott að frétta af Strandvegi Maggi Valur tengdi tölvuna og við fylgjumst með ykkur á full þó sendingarnar hverfi eitthvað út í bláinn. Við vorum að kveðja Sigga Val hann var mjög spenntur og afi biðður að heilsa hann er að elda. Bless bless í bili amma og afi
leiðréttingar:Ohh hún er svo mikið krúttípútt segar(þegar) hún er brosandi.
Ég er svo ágnægður þvá(því) ég byrjaði(á að kalla hana) keisarynju og nú er það nafn notað og nú er loksins farið að hefja förina heim =OD(góða ferð)
kv.Maggi fændi(var aðeins að flýta mér af því ég er svo spenntur)
Gleymdi að segja góða ferð til Peking og svo alla leið heim ef við heyrum ekki frá ykkur fyrr.
Kossar Þóra
P.S. Þórhildur - enginn álpappír en hvað með matarolíuna (þ.e. á skrokkinn)? :-)
Innilegar hamingjuóskir héðan af Reynigrund. Það var kapphlaup að tölvunni þegar við komum úr okkar Strandaferð í dag. Hún er mikill karakter og virðist sem keisaraynjan eigi vel við og alveg ónotað í uppnefnaflóru fjölskyldunnar - svo er hún með "puttastand" og allt! Ákaflega kunnuglegt alltsaman.
ohh hún er yndi, uuu já pabbi auddað læt ég þig stjana við mig enda einkadóttir og alger prinsessa ;) Kalli og Gyða þið eigið eftir að skilja þetta allt eftir nokkur ár eða þegar hún uppgötvar að það er gaman að versla og fara í kringluna og skoða ;D_;D
en ég er ótrúlega spennt annars er farin að monnta mig við aðra hverja manneskju sem ég hitti sýnandi myndir hér og þar með mynd af henni í displayinu á msninu jafnvel búiin að blogga sjálf og setja myndir á bloggsíðuna mína http://blog.central.is/meyjarnar ;D
en jú ég efast ekki um að hún verði hávekin og myndarleg stúlka mér virðist alla vega á myndunum að hún sé stærri en flestar hinna en ætli hún fari samt ekki létt með það að ná konunum okkar megin líka það er ekki alveg eins og það sé erfitt ;)
en var að tala við Gunnu í dag hún er greinlilega ekki díður spennt en ég sagðist ætla að liggja bara í glugganum svo ætli ég kannski veiti henni félagsskap eitthver tíman við stóru frænkurnar sem eigum án efa eftir að dekstra mikið við hana :D:D:D:D
Erna Hrund
p.s. góða ferð til peking hlakka til að sjá ykkur þið virðist líka hafa nælt ykkur í vænan lit
Hæ hæ, frábærar myndir svo ekki sé meira sagt. Ég óska ykkur góðrar ferðar til Peking og heim. Á Fróni bíða allir spentir eftir ykkur, bæði að hitta litlu frænku og ekki síður að hitta ykkur - nýbakaða foreldrana.
Sjáum ykkur þegar við komum heim frá Danmörku.
Kveðja,Olga og fjölskylda.
ps.takk fyrir sms-ið.xxx
Keisaraynjan er yndisleg og það er svo gaman að fylgjast með allri hamingjunni á þessu bloggi, ég fæ gilligogg í magann. Bestu kveðjur frá Ísafirði.
Elsku Gyða og Kalli til hamingju með prinsessuna,,, Hafið það sem allra best með litla gullinu.
Knús Telma Huld og Kúlíó.
Halló litla fjölskylda!
Við Haukur óskum ykkur innilega til hamingju með fallegu prinsessuna ykkar, það er svo gaman að fylgjast með ævintýri ykkar, hamingjan er svo gríðarleg, ég fæ bara sand í augun.
kossar og knús til ykkar
Ásta og Haukur
Jæja, ég var að koma úr hálendisferð þar sem ég hef ekkert komist í tölvu sl. viku. Frábært að skoða myndirnar og sjá hvað þið eruð öll faggleg og glöð : ) Þetta er nú meiri sjarmaboltinn sem þið hafið fengið! Ég hlakka mikið til að hitta ykkur. Gangi ykkur vel það sem eftir er.
Kossar og knús, Heiðrún
Skrifa ummæli