Þá er lagalegum frágangi okkar lokið hérna í Nanchang borg. Við fórum í morgun öll saman og það tók kínverjana ekki nema tæpa 3 tíma að ganga frá ættleiðingum á þessum sjö fallegu stúlkum sem við fengum í hendur í gær. Allt var frábærlega vel skipulagt og undirbúið. Fararstjóranir okkar búnar að hjálpa okkur að fylla allt út og ganga frá. Síðan fengum við í hendur formleg gögn um að stúlkan væri okkar formlega og á föstudaginn fáum við vegabrefið hennar í hendur.
En þið verðið að afsaka að við munum ekkert hvað við sögðum í pistlinum í gær og því kunnum við að endurtaka eitthvað í dag og á morgun en þið fyrirgefið okkar það. Ástæðan er nefnilega einföld, tilfinningaþunginn var slíkur hjá okkur að við vissum ekki hvort við ættum að gráta eða hlæja eða eitthvað þar á milli, eins og að vera í rússibana nema við vissum ekki hvert hann var að fara.
Kvöldið var nokkuð erfitt, daman ekki alveg sátt við þetta nýja fólk og lái henni hver sem vill. Hún kallaði stanslaust eftir mama og benti á dyrnar á hótelherberginu og tók mikil ekkaköst á milli og borðaði nánast ekki neitt. En við gengum með hana um og gáfum okkur vel að henni. Útsýnið út um gluggann á 12 hæð vakti athygli hennar enda hin myndarlegaasta brú sem blasir við. Flott hönnun sem svei mér þá gæti bara hafa verið teiknuð af Helga frænda svo flott var hún!. Nú síðan liða þeir niður ánna hinir sérstöku fljótabátar sem hér eru notaðir til að ferja varning milli staða sem var gaman að horfa á úr fjarlægð.
En daman sofnaði loksins og svaf í alla nótt en hinir nýbökuðu foreldrar sváfu ekki neitt að telja, voru vakandi yfir hverri hreyfingu en daman ferðaðist hring eftir hring í rúminu sínu og virtist una sér vel. En þegar hún vaknaði þá var hún ekki alveg sátt við lífið en þó læddist fram bros þegar henni tokst að pissa yfir pabbann sem var búinn að klæða sig upp fyrir morgunmatinn. Bara látið flakka enda ókunnugur maður á ferð!
Smátt og smátt höfum við séð miklar breytingar á henni strax í dag, hún er farinn að gleyma sér og brosa var voða fyndin að mata pabba sinn af appelsínu og Palli frændi hefði verið stoltur þegar stríðnisglott færðist yfir þetta litla andlit þegar hún var að leika við Matthildi vinkonu sínu og fela fyrir henni hluti en þóttist svo alsaklaus og ekki kannast við neitt. Engin smá púki á ferðinni og efnileg í stríðnispúkafélagið.
Mamman er auðvitað í aðalhlutverki í dag og daman unir sér alltaf betur og betur og ekka hljóðin og gráturinn eru núna smátt og smátt að fjara út. Ef fram fer sem horfir þá er það fyrr en við töldum.
Nú á eftir á að fara í Wall Mart verslun sem er staðsett á hátiðartorgi borgarinnar. Hljómar mjög sérstakt einkum ef haft er í huga að hér var upphaf alþýðubyltingarinnar í kína og borgarbúar mjög stoltir af því. Mikið torg er í miðbænum sem ber heitið 1. ágúst torgið og hefur þannig vísan til upphaf byltingarinnar og þar hefur verið reistur mikinn minnisvarði og allt í kring minnir á byltinguna. Þetta var nú smá útidúr en við keyptum reglhliðfakerru á 1500 kall, mjög flott og miklu vandaðaðri en þær sem hótelið leggur til auk þess sem við getum notað hana áfram í Peking og síðan flugvellina, nægur burður þar og hlaup þó ekki þurfi að hafa hana á öxlunum.
Síðan fórum við með hana á veitingastað á hótelinu, hún fékk að borða sjálf spagetti og raðaði í sig af mikilli ánægju en samt var hún búin að borða mikið af vatns melónu sem er hennar uppáhald.
Nú á morgun förum við síðan ferð á barnaheimilið hennar Siggu Báru, þar ætlum við að færa heimilinu smá gjöf sem haft var samráð við forstjórann um í dag. Nú veit maður ekki hvort það kallar eitthvað fram hjá stúlkunum og ekki alveg klárt hvort allir í hópnum taki dömurnar með eða annað foreldrið fari og kynni sér aðstæður. Þarna eru við fyrst og fremst að hugsa til þess þegar daman fer að spyrja um uppruna sinn og leita eftir svörum við eðlilegum spurningum sem hljóta að koma fram á einhverjum ákveðnum tímapunkti í lífi hennar.
mánudagur, júlí 11, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
17 ummæli:
Innilegar hamingjuóskir. Þetta hljómar allt mjög vel. Njótið tímans í Kína með barninu þó tilhlökkunin sé auðvitað mikið að koma heim.
Kær kveðja,
Helgi Jóh. & co.
Gott er að sjá að Mínfríður litla er að líkjast mömmu matargati og finnst gott að borða. Það verða margir tilbúnir, þegar tími verður til kominn og hún orðin sátt, að passa eina og eina nótt og leyfa mömmu og pabba að sofa út...
Corleones.
Hún er það fallegasta sem eg hef séð!!! og drífiði ykkur að koma heiiiiim!!!! kv.gunna:D
Það er gaman að heyra að hér er lítill stríðnispúki á ferð. Olgeir er enn sem fyrr með ímyndaða frænku sína í fanginu og fór með hana á traktorinn sinn í morgun. Það verður gaman þegar litlu frændsystkinin hittast.
Talaði við Þórdísi í morgun og sagði henni frá að litla frænka væri komin til mömmu og pabba - það vægast sagt ískraði í litlu dömunni.
Á flestum bæjum er það svo að lífið snýst um að heyra frá ykkur. Það fyrsta sem við gerum á morgnana og það síðasta á kvöldin er að kíkja á síðuna ykkar.
Kveðja, Olga og fjölskylda.
Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára Min. Til hamingju með daginn. Myndinar eru yndislegar og stórkostlegt að horfa á hina nýbökuðu foreldra þótt í gegnum tölvu sé. Ó já stríðnin sést langnar leiðir í augunum hennar og henni finnst matur góður - semsagt lík foreldrum sínum. Elsku þið öll sömul til hamingju með daginn. Ég var að lesa textann og lýsa myndunum upp fyrir ömmu sem ekki enn er komin í tölvusamband. Við prentuðum myndir út fyrir ömmu og Sigga Val og er SVV er nú búinn að setja Siggu Báru Min inn í ættarbókina sína - sko hann.
Ykkar Þóra
TIL HAMINGJU!!!!!!!!! ;)
Hlakka til að sjá ykkur litla fjölskylda og gott að heyra að litlu sætu Siggu Báru frænku er farið að lítast vel á foreldra sína enda eru þar ekkert smá myndarlegt fólk á ferð.... skrýtið að hún taki ekki eftir hárinu á pabba sínum hehehe!!! ;) Pabbi verður örugglega ýkt ánægður með nýjasta meðliminn í stríðnisfélaginu og hann getur örugglega kennt henni endalaus triks...hehe!!
Mér fannst mjög fyndið að sjá að hún sýgur puttann og fiktar í eyranu sínu alveg eins og ég gerði til 10 ára aldurs....;) líst vel á þetta ;) Hún er ein sú fallegasta sem ég hef séð !!
óstjórnleg ást yfir hafið og gangi ykkur vel elsku Kalli, Gyða og Sigga bára ****
Jæja .aá er þetta komið endalega og allir spenntir hér heima á að sjá dömuna. Þetta ,eð strðni neita ég að finnist í fjölskyldunni þetta er bara séstök tegund af gletni sem allir hafa gaman af. Ég hef tekið eftir því að daman er sérlega íþróttamannslega vaxinn og minni foreldrana á mikla hæfileika kínverskra kvennna í tuðrusparki. Ég tel mig sjálfkrafa þjálfara ig leiðbeinenda hennar í þeirri listgrein í framtíðinni.
Neí bara smá gletni. Enn og aftur til hamingju. Ef þíð vorðuð ekki búinn að fatta það þá er það Álfrun sem gleymdi að setja nafnið sitt hér fyrir framan mig
Hemmi
Enn og aftur til hamingju og gangi ykkur vel í ferðinni á morgun. Við fórum bæði og Katrín Lára með á barnaheimilið, hún þekkti greinilega fóstruna sína en tók þessu ekkert illa. Sé ekki eftir að hafa tekið hana með og fyrir okkur var þessu stund ógleymanleg að sjá hvar hún hafði verið og taka myndir, getum sagt henni eitthvað í framtíðinni.
Kveðja
Kristín Svala, Jens og Katrín Lára hóp 9
Gaman að sjá Sigga Bára (Keisarynjan) er svona mikill stíðnispúki og hefur hún það öruglega frá hann afa Val og á eftir að smellpassa inn í fjölskilduna
Dífið ykkur nú heim því ég vill fá að sá keisarynjuna
P.S. Frábærar myndir=-)
hún er svo falleg að það nær ekki nokkurri átt:) hlakka mikið til að hitta ykkur öll ástarkveðja íris frænka!!!
Úff hún er æði rosastór og algjör fegurðardrottning :D
tetta er svo spennandi og madur hugsar stødugt til ykkar og er ad imynda ser hvernig malin ganga hja litlu frænku.hlakka audvitad rosalega ad sja hana med timanum.gangi ykkkur sem best med fallega ungann.kv fra torhildi og alfheidi . kossar til ykkar allra
verd ad bæta vid ad eg tarast tegar eg se hana hun er svo falleg og yndisleg i alla stadi....er pinu abboooo!!!!gud eg hlakka til ad klipa i hana
torhildur frænka aftur og aftur
Innilega til hamingju með þetta Gyða og Kalli. Það er ánægjulegt að heyra og sjá hvað allt hefur gengið vel. Kveðja, Jómmi og Stína.
Við erum búin að horfa aftur og aftur á myndirnar í dag. Það er gaman að sjá breytinguna á SBM frá í gær. Varfærnislegt glott komið á mína en ekki alveg fullmyndað bros,... styttist í það þó.. við bíðum spennt eftir að sjá meira. Þið verðið að fara að drífa ykkur heim svo þetta verði ekki varanleg geðröskun hjá Olgeiri jr því eins og þið vitið þá leiðir hann um allar jarðir ímyndaða frænku sína og keyrir um allt með hana á traktornum sínum...
Don og Edda Corleone..:)
TIL HAMINGJU ...i have seen pictures of litle girl ..she is so cute.nice to see those pictures.i will go back and be her baby sitting ...fon
Ég græt og græt yfir yfir myndunum. Takk fyrir að leyfa okkur að fylgjast með, Innilega til hamingju.
Bestu kveðjur khs og Skapti
Skrifa ummæli