"Það eru milljón hjörtu inni í mér núna. Jörðin er hjarta og pláneturnar eru hjarta"
Svona segir hamingjusöm lítil stúlka.
laugardagur, apríl 24, 2010
fimmtudagur, apríl 22, 2010
Gleðilegt sumar
Sigga Bára Min óskar öllum gleðilegt sumar. Hún kvaddi veturinn í gær með því að syngja með yfir 200 jafnöldrum sínum í Háskólabíói, á vegum Menningarhátíðar Barnanna, en það var stórkostleg upplifun að hlusta á ungmenni landsins svona stillt, prúð og fjölhæf. Þarna sást líka hvað Sigga Bára er heppin með kennara en þær stöllur eiga mikið hrós skilið.
Núna er Sigga Bára að hoppa á trampólíninu með Agnesi vinkonu sinni, en þær eru búnar að vera þarna úti í 2 klukkutíma og ekkert fararsnið á þeim!!! Sigga Bára fékk ósk sína uppfyllta í morgun en sumargjöfin var þáttaröðin Jörðin, en hún elskar að horfa á dýralífs- og náttúruþætti, að auki allt með íslensku tali. Núna verður bara rætt um dýr á næstunni.
Á eftir verður farið í skírn fröken Karolínu, móðir Siggu Báru fékk þann heiður að verða guðmóðir hennar, kæra þakkir fyrir það.
Veturinn kvaddi með fyrirheit um dásemdar sumar.
Bless í bú
Núna er Sigga Bára að hoppa á trampólíninu með Agnesi vinkonu sinni, en þær eru búnar að vera þarna úti í 2 klukkutíma og ekkert fararsnið á þeim!!! Sigga Bára fékk ósk sína uppfyllta í morgun en sumargjöfin var þáttaröðin Jörðin, en hún elskar að horfa á dýralífs- og náttúruþætti, að auki allt með íslensku tali. Núna verður bara rætt um dýr á næstunni.
Á eftir verður farið í skírn fröken Karolínu, móðir Siggu Báru fékk þann heiður að verða guðmóðir hennar, kæra þakkir fyrir það.
Veturinn kvaddi með fyrirheit um dásemdar sumar.
Bless í bú
sunnudagur, apríl 18, 2010
Í gær missti Sigga Bára Min tönn númer tvö
Í gær fyrir utan Laugaveg 3 voru tvær vinkonur með lausar tennur að labba þegar ein sagði hissa við mömmu sína "Mamma ég var að missa tönn!!" hin horfði á og sótti eina tönn og sagði "Ég var líka að missa tönn!!" Svona eru vinkonurnar tengdar - Matthildur missti tönn nr. 2 fyrst og svo var keppnisandinn í Siggu Báru sem rak hana áfram!! Þetta var ótrúlega fyndið að fylgjast með þessu. Á meðan þessu stóð voru Kalli og Gústi að sækja trampolín fyrir Siggu Báru á Þingvelli og við Sigga Bára og Matthildur vorum á Laugaveginum ásamt Kristínu og Karolínu eðaldömu þar sem leitað var stíft að skírnarkrossi. Tennur fuku, krossinn fannst og svo var bara hoppað það sem eftir lifði dags.
Vorið er komið og sumarið alveg að koma - þarf kannski keppnisskapið hennar Siggu Báru
Bless í bú
Vorið er komið og sumarið alveg að koma - þarf kannski keppnisskapið hennar Siggu Báru
Bless í bú
sunnudagur, apríl 04, 2010
Gleðilega páska
Fjölskyldan byrjaði þennan páskadag mjög snemma. Mamman var mætt í kirkjuna kl. 7 til að undirbúa morgunkaffi fyrir kirkjugesti eftir morgunmessuna. Mikil stemming sem því fylgir. Amma kom og svo mætti prinsessan og faðirinn akkúrat þegar kaffið var komið á borð. Það var svolítið mikið brauð eftir þannig að brunað var í morgunsólinni niður á Tjörn og það voru margar fuglafjölskyldur sem mettuðu litlu maga sína úr hendi Siggu Báru. Sundlaugin var heimsótt og auðvitað var farið til frændsystkina í Holtinu þar sem Sigga Bára prufaði í fyrsta sinn að aka um í kassabíl - núna er það efst á vinsældarlistanum - held að allir viti hver þyrfti að ýta...það yrði ekki mamman!! Kvöldið var svo fullkomnað með ömmu, afa og Sigga Val þar sem ungfrúin stjórnaði skemmtilegum leik sem hún fann alveg upp á sjálf.
Ein tönn laus þessa dagana og 6 ára jaxlinn kominn nánast alveg upp, litla stóra stelpan okkar dafnar vel.
Bless í bú
Ein tönn laus þessa dagana og 6 ára jaxlinn kominn nánast alveg upp, litla stóra stelpan okkar dafnar vel.
Bless í bú
miðvikudagur, febrúar 10, 2010
Fyrsta tönnin farin
Jæja þá er það byrjað, fyrsta barnatönnin datt í dag og skottan er núna að byrjar að vera tannlaus. Þetta er auðvitað eitt merkið um aukin þroska og kemur í sömu viku og foreldrarnir fengu bréf frá borginni um að skrásetja skyldi dömuna í skóla sem fyrst. Siggu Báru fannst þetta auðvitað alveg frábært að fara í alvöru skóla með skólatösku og getur ekki beðið eftir haustinu.
Spennandi tímar og kannski þarf fjölskyldan bara að vera á fljótandi fæði um páskana því fáar tennur verði eftir, nei varla
Spennandi tímar og kannski þarf fjölskyldan bara að vera á fljótandi fæði um páskana því fáar tennur verði eftir, nei varla
fimmtudagur, desember 24, 2009
Gleðileg jól
Sigga Bára og fjölskylda óskar öllum gleðilegra jóla.
Aðventan hefur verið róleg og notaleg. Búið er að baka smákökur, búa til konfekt og gera jólaföndur. Sigga Bára er líka búin að taka þátt í tveimur tónleikum í fiðlunni og staðið sig eins og hetja, er farin að spila 8 lög!
Fyrsta tönnin losnaði líka á aðventunni og núna er pínu skrýtið að bíta í matinn finnst henni þannig að búast má við að lítil tönn verði eftir í einhverjum karamellubitanum um hátíðarnar.
Jólasveinninn kom í morgun og heimsótti Siggu Báru og söng daman fyrir hann Jólasveinar einn og átta. Núna er stefnan tekin til ömmu og afa í möndlugraut og svo verður það kirkjan í kvöld.
Gelðileg jól kæru vinir og fjölskylda
Sigga Bára Min og foreldrar
sunnudagur, nóvember 29, 2009
Fyrsti í aðventu
Góðan og gleðilegan hvítan sunnudag. Nýfallinn snjór er úti og Sigga Bára með pabba að sjá um að fuglarnir fái nóg að borða. Epli sett í tréin og fræpokar hanga eins og jólakúlur í trjánum.
Það er búin að vera skemmtileg stemming hjá Siggu Báru undanfarna daga. Piparkökumálun hjá ömmu er yfirstaðin, piparkökuhúsið skreytt og svo er búið að baka eina sort. Hún Sigga Bára er sannkallaður héraðsstubburbakari, mömmu til mikillar gleði. Hún deilir áhugamáli móðurinnar og kallar hástöfum þegar Nigela eða Jóhanna Vigdís birtast á skjánum!
Nema hvað hún er líka búin að hitta merkilega manneskju í mánuðinum og tók mamma mynd af því tilefni. Palli frændi hennar - sá mikli snillingur - hefur skrifað ævisögu Vigdísar Finnbogadóttur og bauð Siggu Báru í hóf til að fagna útgáfu bókarinnar. Þegar Sigga sér þessa mynd segir hún það sem Vigdís sagði þennan dag " Það sem kom fyrir mig getur komið fyrir allar litlar stúlkur líka!" og með þessi orð í huga labbar sú stutta teinrétt út í lífið.
Bless í bú!
föstudagur, október 30, 2009
Tíminn flýgur áfram
Það er svo gaman að vera til. Sigga Bára er búin að vera í Ensku húsunum með vinkonum sínum Matthildi, Stínu, Sunnu, Söru, Önnu Kristínu og Tótu. Auðvitað má ekki gleyma litlu englunum þeim Karólínu og Högnu. Já við vorum umvafin prinsessum þessa helgina.
Svo er Sigga Bára búin að vera mjög dugleg að æfa fiðluna og mamma má hafa sig alla við svo daman rjúki ekki á undan henni í lærdómnum. Hún er líka búin að fara á Söngvaseið með Þóru frænku - ekki amalegt það og svo fór hún líka í bíó með Matthildi - sáu myndina um hana Skellibjöllu.
Núna vorum við að koma frá Blómvangi. Fengum dýrindis súpu og sætan eftirmat. Alltaf gaman að hitta góða vini - við erum rík.
Bless í bú
Svo er Sigga Bára búin að vera mjög dugleg að æfa fiðluna og mamma má hafa sig alla við svo daman rjúki ekki á undan henni í lærdómnum. Hún er líka búin að fara á Söngvaseið með Þóru frænku - ekki amalegt það og svo fór hún líka í bíó með Matthildi - sáu myndina um hana Skellibjöllu.
Núna vorum við að koma frá Blómvangi. Fengum dýrindis súpu og sætan eftirmat. Alltaf gaman að hitta góða vini - við erum rík.
Bless í bú
mánudagur, september 28, 2009
Sigga Bára hjólaði ein og óstudd
Í dag eftir leikskóla fóru mamma og Sigga Bára út í skóla á hjólinu hennar Siggu Báru. Það sem er stórkostlegast við þessa ferð er að daman ákvað að hjóla ein og gekk svona vel. Hún þarf hjálp við að komast af stað en svo er hún óstöðvandi og hjólaði hring eftir hring. Mikið var mamma stolt af dömunni. Svo er hún líka svona klár í að stoppa, dettur út á hlið en stendur samt.
Þú ert bara snillingur Sigga Bára Min!!!!
Bless í bú
Þú ert bara snillingur Sigga Bára Min!!!!
Bless í bú
þriðjudagur, september 22, 2009
Byrjuð í nýjum skóla
Sigga Bára er byrjuð að læra á fiðlu og það er mjög spennandi. Mæðgurnar fóru í síðustu viku og versluðu fiðlu sem er lítl og falleg, alveg eins og tónlistarneminn. Foreldrarnir eru líka í námi til að byrja með og finnst þeirri stuttu gaman að fylgjast með sarginu í þeim en svo koma bara fallegir tónar frá henni.
Þetta verður spennandi vetur.
Bless í bú.
Þetta verður spennandi vetur.
Bless í bú.
þriðjudagur, ágúst 25, 2009
Síðasta leikskólaárið hafið
Sigga Bára er stór stelpa um þessar mundir. Góðir vinir á leikskólanum farnir í barnaskóla og hún því orðin stóra stelpan í leikskólanum. Þetta er ábyrgðarmikið starf , daman labbar teinrétt og skilur vel að hún er fyrirmynd og á leið í skólahóp. Það er ekki nóg að vera elst heldur er annað spennandi í nánd - tennurnar fara að detta!! Oft á dag koma spurningar spurningar hvenær hún missi fyrstu tönnina, ýtir svolítið á þær í neðrigóm og fylgist með örhreyfingum tannanna í speglinum. Jú maður er bara ekki frá því að þær hreyfist pínu, eða hvað? En daman er líka að hefja nám í fiðluleik sem er mjög spennandi. Fyrsta mæting er í næstu viku og mikið búið að spegulera. Eitt er víst að fingur eiga að vera hreinir og auðvitað eru allar fiðlustelpur í kjól með hárið uppsett. Búið er að týna mikið af rifsberjum og sulta, hún er svo iðin þessi stúlka og svo bíður okkar rabbabari sem daman og mamma eiga eftir að ákveða hvað skal gera með. Hún amma fór nefnlega með okkur mæðgur í sveitina um helgina og fylltum við poka af rabbabara - heppnar við.
Daman er sofnuð og á morgun er prinsessudagur með ömmu sem engann svíkur.
Bless í bú
Daman er sofnuð og á morgun er prinsessudagur með ömmu sem engann svíkur.
Bless í bú
föstudagur, júlí 10, 2009
Fjögur ár síðan við sameinuðumst
Lífið með Siggu Báru eru eintómir hátíðardagar og í dag er enn einn slíkur. Það eru í dag fjögur ár síðan við fengum hana Siggu Báru fyrst í fangið á Gloria Plaza hóteli í borginni Jiangxi. Litla píslin sem var létt eins og fjöður, með fallegu augun sín sem voru svo lífsreynd. Þakklætið er óendanlega mikið hjá okkur foreldrunum.
Gleðin heldur áfram. Í dag er fyrsti dagurinn okkar í fríi - tilhlökkunin hefur verið mikil. Það á að gera margt þessar fjórar vikur og því fékk daman nýja strigaskó því nú skal gengið, hjólað, sippað og hlaupið! Já hátíðardagar ótrúlega margir hér á bæ!!
Við pabbi erum svo heppin!!!
Bless í bú
Gleðin heldur áfram. Í dag er fyrsti dagurinn okkar í fríi - tilhlökkunin hefur verið mikil. Það á að gera margt þessar fjórar vikur og því fékk daman nýja strigaskó því nú skal gengið, hjólað, sippað og hlaupið! Já hátíðardagar ótrúlega margir hér á bæ!!
Við pabbi erum svo heppin!!!
Bless í bú
miðvikudagur, júní 24, 2009
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag....
hún á afmæli hún Sigga Bára, hún á afmæli í dag. Elsku hjartans dýrgripurinn okkar varð fimm ára í dag. Stórkostlegur dagur, sólin skein úti sem inni. Daman vaknaði hálf sjö stærri, vitrari og þroskaðri en kvöldið áður. Hún fór að skreyta kökur fyrir fjölskylduafmælið, fór í afmælisbaðið en lét ekki þar við sitja. Hún varð að fá Carmen rúllur líka fyrir leikskólann!! Það var því tekinn upp hárblásari og allt var sett á fullt, rúllurnar hitaðar, fundið pils sem snýst mikið og svo var mín tilbúin. Tilbúin til að vera stjarna dagsins og það var hún svo sannarlega. Fáninn dreginn að húni á leikskólanum og þar bakaðar pönnukökur fyrir afmælisbarnið. Svo tók næsta veisla við, vinkonur úr leikskólanum og Matthildur mættu í sannkallað prinsessu afmæli - þær voru allar svo flottar, það var dansað, farið í pakkaleik, út í garð og hoppað á trampolini. Svo tók næsta veisla við, öll ættin og vinir mættu til að fagna þessum merkis áfanga. Frændsystkini og vinir voru úti í garði að leika og pabbinn grillaði hamborgara. Þegar kominn var tími til að fara að hátta var FIMM ára daman orðin þreytt, svo ánægð með hvað margir komu og samfögnuðu með henni. Fyrir hönd dömunnar í draumaheimi þökkum við ykkur öllum fyrir frábæran dag.
Bless í bú
þriðjudagur, júní 23, 2009
Afmælið er á morgun
Ef þetta er ekki búið að vera stórkostlegt að fylgjast með og taka fullan þátt í þessum spennandi aðdraganda afmælisins !!!! Sigga Bára er búin að baka, skreyta kökurnar, smakka nammið ( sumt oftar en einusinni ), fara í gegnum morgundaginn í huganum og þykjustinni og meira að segja semja lag um eina stelpu sem á afmæli í júní!!!! Hve maður er ríkur að fá að upplifa tæra einlæga og sanna tilhlökkun með Siggu Báru
Þú ert bara best og flottust Sigga Bára!
Bless í bú
miðvikudagur, júní 17, 2009
"Það eru sjö dagar þangað til....
...og á morgun þegar ég vakna þá eru það sex dagar þangað til." Já það er vika í 5 ára afmæli Siggu Báru og ekki vandamálið að vekja þá stuttu á morgnanna - niðurtalningin er alveg á hreinu.
Við áttum frábæran þjóðhátíðardag fjölskyldan, löbbuðum í bænum og hittum góða vini, skrifuðum boðskort í afmælið til vinkvenna, settum á þau frímerki og svo var þeim skellt í póst. Síðan var farið í Garðabæinn til ömmu og afa. Það er ekki til betri staður til að vera á svo ekki sé minnst á þjóðhátíðarmat frú Ernu ömmu!! Hakkabuff og marenge ala ömmu Sí!! Sigga Bára borðaði svo mikið að mömmu var ekki farið að lítast á blikuna.
Eitt af því sem Sigga þurfti að gera fyrir svefninn var að naglalakka sig, bæði tær og fingur og sefur nú vært nýlökkuð og fín.
Hún er bara yndislegust í heimi og tilhlökkunin fyrir afmælið svo smitandi að maður er að springa úr spenningi sjálfur - er ekki gaman að vera foreldri??
Bless í bú
Við áttum frábæran þjóðhátíðardag fjölskyldan, löbbuðum í bænum og hittum góða vini, skrifuðum boðskort í afmælið til vinkvenna, settum á þau frímerki og svo var þeim skellt í póst. Síðan var farið í Garðabæinn til ömmu og afa. Það er ekki til betri staður til að vera á svo ekki sé minnst á þjóðhátíðarmat frú Ernu ömmu!! Hakkabuff og marenge ala ömmu Sí!! Sigga Bára borðaði svo mikið að mömmu var ekki farið að lítast á blikuna.
Eitt af því sem Sigga þurfti að gera fyrir svefninn var að naglalakka sig, bæði tær og fingur og sefur nú vært nýlökkuð og fín.
Hún er bara yndislegust í heimi og tilhlökkunin fyrir afmælið svo smitandi að maður er að springa úr spenningi sjálfur - er ekki gaman að vera foreldri??
Bless í bú
þriðjudagur, júní 02, 2009
Fjögur ár síðan við litum prinsessuna fyrst augum - á mynd

Það er eins og gerst hafi í gær að símtalið langþráða barst. Pabbinn var sá heppni sem svaraði í símann því mamman var ekki í símasambandi. Það var sól, fallegt veður og tréin græn.
Í dag skín sólin, kannski ekki úti en hérna heima svo sannarlega :-)
Kæru vinir í hópi 12 til hamingju með þennan merka dag, daginn sem við brostum hringinn og urðum ríkust í heimi!!!
Sara til hamingju með 5 ára afmælið þitt - Sigga Bára getur varla beðið eftir að verða jafngömul.
Bless í bú
mánudagur, apríl 13, 2009
Páskarnir
Núna eru páskarnir liðnir. Sigga Bára hafði hlakkað mikið til þessa helgidaga. Þetta byrjaði allt á afmælisveislu hjá Sigga Val en kappinn er núna orðinn 36 ára og ber aldurinn vel. Svo voru Bláfjöllin mikið heimsótt og hefur dömunni farið mikið fram, hætt að vera í beisli niður brekkurna og skíðar oft alltof hratt finnst mömmu!!! Á páskadagsmorgun hafði pabbinn útbúið skemmtilegan ratleik sem endaði niðrí þvottahúsi en eggið hennar Siggu var falið inni í þvottavél sem henni fannst mjög fyndið - en fyndnast af öllu var staðurinn sem hún hafði valið fyrir páskaeggið hennar mömmu - ÓHREINATAUSKARFAN var valið hennar og skríkti hún mikið þegar mamma þurfti að kafa langt niður til að finna fjársjóðinn!!
Núna er lítil dama mikið þreytt í rúminu sínu, búin að vera í fjöllunum, fara í sund og spila fótbolta með Telmu frænku OG horfa á Kína þáttinn í sjónvarpinu sem hún fylgist reglulega mikið vel með. Hún vill samt ekki búa í Kína því það er barasta ekkert vatn til þar (þátturinn fjallaði mikið um eyðimörkina) sussum svei.
Myndina tók afi af ljósinu okkar og fegursta páskaunga heims á afmælisdegi frænda heima á Strandvegi.
Bless í bú
sunnudagur, mars 01, 2009
Öskudagurinn og næstu dagar


Öskudagurinn var hreint út sagt frábær. Sigga Bára var aldeilis ákveðin í því að vera ógnvekjandi - ógnvekjandi SJÓRÆNINGI! Það var sama hvað mamma reyndi að gera hana skelfilega, ekkert gekk upp. Hún varð bara fallegri og fallegri því meira sem reynt var (hlutdræg finnst ykkur.......alveg sama :-)
Um helgina hefur daman farið á aldeilis skemmtilegt leikrit hjá áhugamannaleikhóp Mosfellsbæjar sem hiklaust er hægt að mæla með fyrir yngri kynslóðina. Takk fyrir okkur Matthildur, Kristín og Gústi.
Svo var mikil vor stemming í hverfinu áðan þannig að við mægður dustuðum rykið af hjólinu og daman hjólaði og hjólaði. Það er gaman þegar dagur lengist og gleðitímar einnig.
Bless í bú
mánudagur, febrúar 09, 2009
Febrúar mánuður og fyrsta bloggfærslan

Tíminn líður hratt. Jólin voru tær snilld þetta árið þar sem fjölskyldan tók sér frí fram í byrjun janúar. Jólaboð, jólaböll og jóla jóla. Nýtt ár er hafið, Sigga Bára er ekki lengur 4. ára heldur 4 og 1/2 árs - við gerum mikinn greinamun á þessu tvennu. Farið er að spá í tónlistarnám fyrir haustið og stefnan sett á fiðluna en það getur breyst eins og allt annað því hún er allt í einu farin að vilja setjast fyrir framan píanóið og spilar frumsamin lög sem mörg hver eru betri en önnur og öfugt. Hún elskar að baka Maríukökur (marenskökur), veit að stærsti vöðvi líkamans er rasskinnin, fer mikið á skíði, er farin að fara í heimsókn eftir leikskóla og fá vini í heimsókn. Sigga er mikið að ræða um Kína og Kínaland og hvað fólk er að gera þar. Í fyrsta sinn fyrir viku síðan benti hún á konu í sjónvarpinu sem var frá Kína sem hún hefur aldrei gert áður. Einvherjar spurningar eru um upprunann, hvernig hún fæddist og hvernig hún endaði hér á Íslandi. Það er gott að ræða þetta og gott að hafa lesið góðu bókina um Hjartagull fyrir hana, því hún er okkar Hjartagull og veit það!
Bless í bú
fimmtudagur, desember 11, 2008
Það er komin jólastemming í húsið - nema hvað!!
Stekkjastaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar, -þá varð þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfætur, -það gekk nú ekki vel.


Já það er búið að skrifa Stekkjastaur bréf - hann fær að vita af því hvað Siggu Báru þykir vænt um hann og að hún vorkenni honum mikið að þurfa að vera úti í vondu veðri og í myrkrinu. Hún ætlar að gefa honum líka mjólkursopa og smáköku þegar hann á leið framhjá. Heppinn hann Sveinki að hafa svona flottan aðdáenda!
Hér fylgja nokkrar stemmings myndir af Jóladísinni okkar
Bless í bú
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)