sunnudagur, mars 01, 2009

Öskudagurinn og næstu dagar




Öskudagurinn var hreint út sagt frábær. Sigga Bára var aldeilis ákveðin í því að vera ógnvekjandi - ógnvekjandi SJÓRÆNINGI! Það var sama hvað mamma reyndi að gera hana skelfilega, ekkert gekk upp. Hún varð bara fallegri og fallegri því meira sem reynt var (hlutdræg finnst ykkur.......alveg sama :-)


Um helgina hefur daman farið á aldeilis skemmtilegt leikrit hjá áhugamannaleikhóp Mosfellsbæjar sem hiklaust er hægt að mæla með fyrir yngri kynslóðina. Takk fyrir okkur Matthildur, Kristín og Gústi.


Svo var mikil vor stemming í hverfinu áðan þannig að við mægður dustuðum rykið af hjólinu og daman hjólaði og hjólaði. Það er gaman þegar dagur lengist og gleðitímar einnig.


Bless í bú

mánudagur, febrúar 09, 2009

Febrúar mánuður og fyrsta bloggfærslan


Tíminn líður hratt. Jólin voru tær snilld þetta árið þar sem fjölskyldan tók sér frí fram í byrjun janúar. Jólaboð, jólaböll og jóla jóla. Nýtt ár er hafið, Sigga Bára er ekki lengur 4. ára heldur 4 og 1/2 árs - við gerum mikinn greinamun á þessu tvennu. Farið er að spá í tónlistarnám fyrir haustið og stefnan sett á fiðluna en það getur breyst eins og allt annað því hún er allt í einu farin að vilja setjast fyrir framan píanóið og spilar frumsamin lög sem mörg hver eru betri en önnur og öfugt. Hún elskar að baka Maríukökur (marenskökur), veit að stærsti vöðvi líkamans er rasskinnin, fer mikið á skíði, er farin að fara í heimsókn eftir leikskóla og fá vini í heimsókn. Sigga er mikið að ræða um Kína og Kínaland og hvað fólk er að gera þar. Í fyrsta sinn fyrir viku síðan benti hún á konu í sjónvarpinu sem var frá Kína sem hún hefur aldrei gert áður. Einvherjar spurningar eru um upprunann, hvernig hún fæddist og hvernig hún endaði hér á Íslandi. Það er gott að ræða þetta og gott að hafa lesið góðu bókina um Hjartagull fyrir hana, því hún er okkar Hjartagull og veit það!

Bless í bú

fimmtudagur, desember 11, 2008

Það er komin jólastemming í húsið - nema hvað!!

Stekkjastaur kom fyrstur, stinnur eins og tré. Hann laumaðist í fjárhúsin og lék á bóndans fé. Hann vildi sjúga ærnar, -þá varð þeim ekki um sel, því greyið hafði staurfætur, -það gekk nú ekki vel.





Já það er búið að skrifa Stekkjastaur bréf - hann fær að vita af því hvað Siggu Báru þykir vænt um hann og að hún vorkenni honum mikið að þurfa að vera úti í vondu veðri og í myrkrinu. Hún ætlar að gefa honum líka mjólkursopa og smáköku þegar hann á leið framhjá. Heppinn hann Sveinki að hafa svona flottan aðdáenda!


Hér fylgja nokkrar stemmings myndir af Jóladísinni okkar
Bless í bú

fimmtudagur, júlí 10, 2008

Þrjú ár síðan við eignuðumst Siggu Báru Min





Í dag eru þrjú ár síðan við eignuðumst Siggu Báru, þrjú ár síðann veröldin breyttist algjörlega. Það var á Gloria Plaza hóteli í borginni Nanchang, Jiangxi héraði, sem 7 foreldrar biðu taugastrekktir í speglasal á annrri hæð hótelsins eftir að fá að sjá verðandi dætur sínar, biðin var löng og seinkun varð á komu þeirra. Leiðsögumennirnir reyndu að stytta okkur stundir með skemmtiatriðum sem tókust misvel því það mátti ekki falla rykkorn að hjörtu allra stoppuðust ......skyldu þetta vera þær á leiðinni???? En svo komu þær vinkonurnar frá Fuzhou - sjö kraftmiklar hetjur og ein þeirra var okkar. Sú sem saug mest fingurnar, sú sem huggaði sig við að strjúka eyrun, sú sem var í alltof stórum skóm og sú sem grét hæst af öllum - það var dóttir okkar. Sú sem í dag brosir mest í heimi, hlær hæst af öllum, sú sem enn sýgur fingurna það er hún dóttir okkar hún Fu Ling Min.


Til hamingju með daginn kæru vinir úr hópi 12


Bless í bú

sunnudagur, júlí 06, 2008

Það er kominn gestur - óvelkominn gestur

Já það hlaut að koma að því að Sigga Bára fengi hlaupabóluna eftir alla þá "veiku" sem hafa verið í kringum hana. Það hefur verið langur aðdragandi að þessu hjá henni eða um tvær vikur þar sem hún er búin að vera með hita, slöpp og bara ólík sjálfri sér.
Bólurnar eru nokkrar og alltaf erum við að finna nýjar sem mamma er ekki lengi að mála bleikar - það vill nefnilega svo heppilega til að kremið sem borið er á vinkonurnar er BLEIKT.
Já það væri munur ef allir skjúklingar væru eins fallegir og Sigga Bára með bleikt málað andlit - líkist einna helst Indjánastúlku.
Bless í bú

þriðjudagur, júní 24, 2008

Hún er 4. ára í dag




Sigga Bára Min er sko orðin 4.ára. Hún vaknaði í morgun brosandi út að eyrum og sýndi okkur foreldrunum hvað hún væri búin að stækka mikið þessa nótt. Hún tók sjálf þá ákvörðun að sofa ekki lengur í milli og hætta að sjúga fingurna.......já þegar við ætlum okkur eitthvað þá er það sko stórt. Sólin skein í dag og mamma sótti Siggu Báru snemma því allir vinirnir í leikskólanum voru á leið í afmælið og það átti eftir að blása blöðrur, tjalda úti í garði, klæða dömuna upp og svona ýmislegt. Allir vinirnir úr skólanum mættu og mikið rosalega var gaman hjá þeim. Það var leikið hlegið, hlaupið og ekkert rifist - þetta er sannleikur!!!! Svo voru auðvitað amma og afi og leynigestir litu við, Höddi vinur no.1 hjá Siggu, Selma og Bjarni Davíð.

Já núna er Sigga sofnuð - alveg uppgefin uppi í milli hjá mömmu og pabba, sýgur fingurna og dreymir vonandi vel.

Bless í bú

sunnudagur, júní 22, 2008

Það er niðurtalning....




Það eru í dag tveir dagar þar til litla daman verður 4.ára. Síðustu morgna hefur hún vaknað með bros á vör og spurt " Hver á afmæli í dag mamma?" og hingað til hefur það verið vonsvikin stúlka sem fer framúr - úff þetta er alltof lengi að líða þegar maður er svona lítill!!! En það er búið að bjóða leikskólavinum í afmæli, búið að búa til boðskort og senda þau, blöðrurnar tilbúnar og daman löngu tilbúin!!!!!

Á þriðjudaginn verður gaman að vakna þegar rétt svar við réttri spurningu fæst og sólin skín úr andlitinu hennar :-)

Bless í bú

sunnudagur, júní 01, 2008

Þrjú ár síðan við fengum myndina af Siggu Báru





Það eru liðin þrjú ár þann 2. júní síðan við fengum upplýsingamyndirnar af Siggu Báru. Þessi dagur er og verður mikilvægasti dagur okkar Kalla því þennan dag eignuðumst við Siggu Báru. Hún Sigga Bára er mikið náttúrubarn eins og sést á myndinni af henni - bara elskar blóm, búin að eignast lamb, búin að fara í fyrsta partýið eftir skóla með félögunum og er bara flottust í heimi!!
Við erum heppnust
Mamma og pabbi

sunnudagur, apríl 20, 2008

Vorið komið

Heimilislífið hjá SBM ber þess merki að vorið er komið. Sundlaugaferðum fjölgar stöðugt og sú stutta er farið að fara ein i rennibrautirnar og verður sífellt öruggari með sig.
Feðginardagurinn var haldinn þegar leikskólinn lokaði og var þeim gamla haldið við efnið meðal annars með tugum ferða í rennibrautina.
Ekki er síðan hægt að gleyma því að SBM hefur sofið fyrsta sinn hjá Ömmu og Afa við mikla gleði þar á bæ þar sem allt gekk vel eins vænta mátti. Fyrirhugaðar eru síðan fleiri gistingar á næstunni.

laugardagur, mars 22, 2008

Gleðilega páska











Það er þreytt lítil stúlka sem sefur værum svefni núna. Það hefur margt verið gert í fríinu undanfarna daga. Sigga Bára er til dæmis búin að vera á skíðum en stór hluti fjölskyldunnar hefur hist upp í fjöllum og eytt þar deginum með kakó, brauð og sól í hjarta.

Dagurinn í dag var hátíðisdagur en litla frænka í Noregi ( en þannig talar Sigga alltaf um litlu Álfrúnardóttur) var skírð í dag í Hjallakirkju. Þetta fallega barn fékk það fallega nafn Halla Elisabet. Eftir skírnina og veisluna höfðu foreldrar Siggu Báru ekki samvisku til þess að setjast niður með bökur, tertur, spínatsalat og kransakökur í maganum þannig að allir fóru í útigalla. Sigga skellti sér á hjólið og hjólaði alla leið til Bróa og Eddu. Blessað barnið að eiga svona ofvirka foreldra..... En á morgun veit hún að það verður súkkulaði í morgunmat mmmmmmmmmm hverjum hlakkar ekki til að vakna :-D


Bless í bú

sunnudagur, mars 16, 2008

Önnur skíðahelgi - stólalyftan og allt






Já daman er orðin sjóuð á skíðum enda með einkakennara sér til halds og trausts og svo var ekki verra að Hemmi frændi skíðagúrú var á staðnum líka til að létta lund og veita góð ráð. Sigga tók tvistinn um helgina, fór bæði laugardag og sunnudag. Þar var hálfgert ættarmót, Hemmi föðurbróðir, Þórhildur móðursystir, Hrafkell spúsi, Júlíana og ekki má gleyma því að amma og afi litu við til að sjá litlu dömuna í bruni. Sigga Bára fór meira að segja nokkrar ferðir með pabba í stólalyftuna og var ekki vitund hrædd heldur söng allan tímann upp og niður líka.....mamman mikið hrædd. Látum nokkrar myndir fylgja með frá helginni. Sjáumst sem flest í fjöllunum um páskana ef veður leyfir :-D

Bless í bú

miðvikudagur, mars 12, 2008

Fyrsta skíðaferðin

Um helgina var farið á skíði í fyrsta sinn. Það byrjaði með smá undirbúningi þar sem feðginin fór með skíðabúnaðinn ( gula skó og gul skíði) í brekkuna á Hofi. Eftir að hafa fengið smá tilfinningu fyrir því hversu frábært það væri að geta rennt sér var ákveðið að hefja undirbúning að því að fara í alvöru brekku. Fyrir valinu var Skálafellið og þangað komum við í sól og blíðu. Sagt er að góð saga eigi ekki að gjalda sannleikans og það skal haft í huga við lesturinn hér á eftir. Foreldrarnir voru svo spenntir að komast upp í fjöll á skíðin sem hafa verið ónotuð síðan á Ítalíu 2004 að þau gleymdu heima stórum hluta af hefðbundnum hlífðarbúnaði. Það kom ekki að sök því veðurguðirnir höfðu ákveðið að það yrði logn og sól og nánast óbærilega heitt. Sú stutta var nú ekkert á því að fara að labba neitt eða vandræðast heldur það átti að fara beint í lyftuna, ekki málið og það var mikil gleði og hlátur þegar farið var upp hratt og langt á undan mömmu.... jú við vorum í skíðakeppni... Sú stutta var ekki lengi að heillast af því að fara hratt niður brekkuna með pabba sínum þetta var ótrúlega gaman og hún skyldi bara alls ekki afhverju það mátti ekki fara strax í stólalyftuna hún var þarna við hliðina og fullt af lausum stólum sem við gætum setið í og farið hátt upp og hratt.
Amma og afi höfðu keypt undratæki sem er einskonar beisli sem notað er við skíðakennslu og það er ekki laust við að það hafi virkað vel. Brunað var ferð eftir ferð og sú stutta alveg klár á þvi að ganga á skíðunum og athafna sig eftir daginn, ótrulega gaman sagði hún eftir daginn.
Það er alla vega ljóst að gefi æðri máttarvöld einhverja möguleika á því þá verður brunað á hverjum degi um páskana upp í fjall og útiveruna notið. Við gömlu vorum bara næstum búin að gleyma því hversu frábært þetta væri

mánudagur, febrúar 11, 2008

Aftur orðin stóra frænka - eiginlega stærsta frænka

Það var margt sem var að gerast þann 24. og 25. janúar hjá tveimur frænkum Siggu Báru. Lítil frænka fæddist í Noregi þann 24. janúar, frumburður Álfrúnar frænku og Viktors. Já núna er pabbi Siggu Báru orðinn afabróðir!!
Það þurfti ekki að bíða lengi eftir næstu frétt en degi síðar, 25. janúar eignaðist Sigga Bára enn aðra frænku heima á Íslandi uppi í sveit sem nefnist Grafarholt. Hún Bína guðmóðir og móðirsystir og Geiri eignuðust þriðju prinsessuna sína.





Já hún Sigga Bára er rík lítil stóra frænka. Látum fylgja með mynd af Bínu dóttur sem við tókum í heimsókn þangað daginn eftir að hún fæddist og á fertugsafmæli móður hennar!!



Bless í bú

Ár Músarinnar gengið í garð




Sigga Bára kemur alltaf með góða frasa og núna í dag urðum við hreinlega að setja nokkra inn á síðuna. Þegar fjölskyldan sat og borðaði kvöldmatinn í kvöld hóf Sigga að segja frá atburðum dagsins og sagði okkur mjög alvarlega að vinkona sín í skólanum væri að fara til London bráðum með ömmu sinni og afa. Við spurðum hvort foreldrar hennar ætluðu ekki að fara með dóttur sinni til London en nei þá sagði Sigga að þau færu ein til Torrejeco!! Mamma endurtók Torrejeco en nei Sigga Bára varð að leiðrétta framburðinn sem var ekki rétttur hjá mömmu. Jebb London og Torrejeco - hvað eru börnin að ræða í hádeginu á leikskólanum annað en utanlandsferðir!!!!! Margar fréttir frá Kína hafa verið undanfarna daga vegna snjókomu þar í landi og eins og alltaf þegar Kínafréttir eru í sjónvarpinu hrópa allir upp og fylgjast með því sem þar kemur fram. Sigga Bára kallaði í síðustu viku " Ég sá hana, ég sá hana" og við spurðum hvern hún sá í fréttinni (mynd af fólki á járnbrautarstöð)? Jú hún sá konuna sem passaði hana í Kína það var þessi í "gulu peysunni", litla kraftaverkið okkar. Og svo er hlustað á Skilaboðaskjóðuna daginn út og inn, hún Sigga segir ekki fólki fréttir heldur segir hún fólki tíðindin, hún segir ekki að hún sé að grínast heldur er það djók og svo er það nýjasta sem sagt er oft á dag OH MY GOD!!!!
Já Sigga furðudvergur sem hitti í alvörunni Snigil njósnadverg og Dreitil skógardverg í gær!!! Hún var nefnilega alveg með það á hreinu að Gunni frændi "gerði leikritið" Ekkert smá gaman að fá að fara baksviðs og sjá allt gerast í alvörunni. Takk fyrir það Gunnar frændi Helgason!!
Bless í bú

laugardagur, desember 15, 2007

Jólasveinar, piparkökuhús og frí

Það eru nokkrir jólasveinar búnir að gefaSiggu Báru í skóinn og mikið var það áhyggjufull lítil stúlka sem átti að fara að sofa svo að Stekkjastaur gæti komið inn um gluggann þegar hún væri SOFNUÐ EIN í herberginu og sett í skóinn hennar!! Mamma reyndi að róa hana og sagði að jólasveinninn væri pínu galdrakarl sem kæmi aldrei inn um gluggann heldur galdraði í skóinn standandi fyrir utan!! Svo er Sigga Bára búin að skreyta sitt eigið piparkökuhús og farin að maula pínu af því líka en ..... það setur bara karakter á meistaraverkið eins og annað sem snillingurinn gerir. Mary Poppins er í uppáhaldi og Sigga Bára er stöðugt í víðum kjólum dansandi og hoppandi af borðum með regnhlífina upp spennta - sú kann að galdra
Já núna mega jólin bara fara að koma finnst henni Siggu Báru sem er komin í jólafrí með mömmu og það verður sko gaman!!!!!
Bless í bú

sunnudagur, desember 02, 2007

Fyrsti í aðventu og spennan eykst

Núna nálgast jólin óðfluga og Sigga Bára er komin í mikið jólaskap. Á kvöldin eru lesin kvæði Jóhannesar úr Kötlum og mikið þarf hún Sigga Bára að ræða afhverju Grýla dó í lokin og allt það sem viðkemur jólakettinum. Jólalögin eru komin á hreint og stöðugt sungið Í skóginum stóð kofi einn. Í dag fórum við í Húsdýragarðinn á jólahlaðborð, mikið búið að undirbúa þá stuttu undir það að meðal veislugesta yrðu þau mæðginin jólasveinnin og hin eina sanna Grýla. Það var róleg stúlka sem hitti þau enda búið að ræða það að pabbi er lögga og getur sko vel ráðið við eina Grýlu!!! Þegar Grýla nálgaðist var mín kjörkuð og leyfði henni að halda á sér en þegar Grýla sagðist vilja fara með hana birtust tárin og var nóg var til af þeim á lager. En um leið og mamma tók við henni var allt komið í besta lag og hún skellti sér upp á svið með frænskystkinum sínum og söng af miklum krafti jólalög. Svo var farið til ömmu og afa í aðventukaffi sem gladdi þá stuttu mikið. Hún er mikið jólabarn hún Sigga Bára og stemmings stúlka - búin að baka eina sort - já hún bakar líka og búin að skreyta smá í herberginu sínu.
Bless í bú

föstudagur, nóvember 16, 2007

Dagur íslenskrar tungu

Í dag tók Sigga Bára þátt í skemmtun á leikskólanum í tilefni af degi íslenskrar tungu. Litla daman var klædd eins og gömul kona (amma) og vinur hennar á deildinni sem gamall maður (afi) svo sungu þau hátt og snjallt "Afi minn og amma mín...." Hún stóð sig með prýði sú stutta og eigum við von á því að geta sett inn mynd af fyrsta performansinum (þetta orð sett inn af tilefni dagsins). Núna sitja þau feðginin saman og syngja lagið saman eða réttara sagt Sigga Bára er með einsöng og pabbi reynir í óþökk dömunnar að blanda sér í sönginn!
Nýjasta í málnotkun er Ota pota táfýla - veit ekki hvaðan það er svo er hún búin að fræða foreldrana um það að í gamladaga hétu buxur ekki buxur heldur BRÓK. Þar hafið þið það :-D
Bless í bú

föstudagur, október 26, 2007

Já þetta gerist hratt......

Já hún Sigga Bára er í þessum orðum rotuð í sínu rúmi kl. 17:15 á staðartíma og í sínu herbergi. Móðirin var í sínu herbergi og var kallað á milli herbergja, svona góðlátlegt spjall þar til allt í einu er kallað "Þú ert KÚKALABBI" Jebb mamma kúkalabbi - bældi niður hláturinn og krafðist afsökunarbeiðni sem barst úr hinu herberginu um hæl. Hún var spurð hver kenndi henni þetta orð og jú hún sagðist hafa bara lært þetta sjálf - maður kemur auðvitað ekki upp um vini sína!!
Já snillingurinn hún Sigga Bára Min klikkar ekki frekar en fyrridaginn. Bless í bú

laugardagur, september 29, 2007

Orðin STÓRA FRÆNKA




Já nú er hún Sigga Bára ekki Sigga Bára - nei, vinsamlegast ávarpið frökenina sem STÓRA FRÆNKA!! Hún hefur hreinlega fengið það stærsta hlutverk í lífi sínu til þessa. Olga litla móðursystir og Bjarkar eignuðust yndislega fallegan og stóran dreng á miðvikudag - Stóra frænka hefur fengið að hitta hann tvisvar og passar mikið upp á það að hún borði nú vel matinn sinn svo litli frændi verði ekki stærri en hún!!! Set hér inn myndir af litla frænda og svo fyrstu strætó ferð dömunnar með mömmu síðustu helgi - hún hreinlega brosti hringinn við að fá að sitja ein og ekki í neinu belti!!!!
Bless í bú

sunnudagur, september 16, 2007

Ég ætla að verða lögreglukona og slökkviðliðskona



Já það er búið að vera viðburðarík helgi hjá Siggu Báru. Hápunktur helgarinnar var án efa forvarnardagur Íslenskrar Ættleiðingar sem haldinn var á skólalóð Hlíðarskóla rigningar laugardaginn mikla. Fólk klæddi sig eftir veðri og hlustaði á lögregluna kenna litlu ungunum okkar hvernig þau og foreldrarnir ættu að haga sér í umferðinni og svo lærðu allir að ganga rétt yfir götu með nýju endurskinsmerkin sín. Hópurinn gekk svo í Skógarhlíð þar sem slökkvuliðið beið hópsins og fengu allir að skoða slökkvibíla, sjúkrabíla, fara um borð og svo voru allir leystir út með þessu líka fína barmmerki með honum Loga. Já ég held að það hafi margur unginn ákveðið ævistarf sitt þennan dag - allaveganna gerði fröken Sigga Bára það :-D
Bless í bú




Posted by Picasa