

Sigga er búin að vera mjög dugleg frá síðustu skýrslu hér á síðunni. Hún fór nefnilega í sveitina og fékk að fylgjast með nýfæddum lömbum - gaf þeim meira að segja nebbaknús sem ekki allir fá frá frökeninni. Það var tekið á móti okkur á Hvammi í Landsveit eins og höfðingjum hjá Pálma og fjölskyldu - þúsund þakkir fyrir okkur kæra fjölskylda.
Nú síðan liðu dagarnir og kosningar voru á næsta leiti. Hann Hemmi frændi hennar Siggu var í framboði fyrir Vinstri græna og tókst honum að snúa öllum í fjölskyldunni sér í hag og vann flokkurinn mikin sigur - til hamingju Hemmi frændi :-) Við tölum svo ekki um nýmyndaða borgarstjórn þar sem það á ekki heima hér á síðu fallegrar stúlku.
Svo verður að minnast á heimsókn í nýja húsið hennar Elvu Gests en það var svo gaman að heimsækja hana og Heiðrúnu vinkonu sem er að bíða eftir að lítill ungi komi í heiminn ;-) Spennandi Heidi eða hvað!!!!
Nú pabbi hennar Siggu Báru er að útskrifast á laugardaginn og erum við að hefjast handa við að undirbúa móttöku hér á bæ - Sigga Bára er búin að vera svo dugleg að vinna í garðinum og er hann bara orðinn flottur hjá henni. Mamma er ánægð með skottu.
Jæja höfum þetta ekki lengra í bili og takk fyrir allar kveðjur kæru vinir!!!!!!
Bless í bú
2 ummæli:
Mikið er hún falleg þessi stúlka og heppin með foreldra.
Gyða, þú varst að tala um að þið væruð að fara út - hvenær fariði?
Katrín Brynja (hittumst í Laugum um daginn;) )
Halló Katrín - ertu með e-mail? Mitt netfang er gydao@simnet.is
Skrifa ummæli