
Jú það var á sunnudaginn sem litlu dömunni datt í hug að það væri nú kannski í lagi að prufa þennan hjálm - það var svo ekkert slæmt. Það sést vel á myndinni hvað pabbinn var stoltur þar sem hann hefur verið sveittur við að prufa ýmiskonar ráð til að fá hana Siggu Báru til að nota hjálminn. Í dag hefur hún farið út að hjóla nokkrum sinnum og berst ekkert gegn því að setja hjálminn á sig - við krossum bara fingurna og vonum að það breytist ekki!!!
1 ummæli:
Komið þið sæl.
Hún Sigga Bára tók sig svo sannarlega vel út á hjólinu, með hjálminn í Húsdýragarðinum í dag. Verst að það var bara mamman sem hitti litlu, flottu prinsessuna. Hún var svo kúl!!
Bestu kveðjur, Hildur Björg og Þórdís.
Skrifa ummæli