sunnudagur, júní 19, 2005
Ferðadagsetning komin
Síðast liðinn mánudag var haldinn ferðafundur þar sem við fengum hagnýtar upplýsingar um ævintýraferðina okkar. Fyrir liggur að fara frá kóngsins Kaupmannahöfn að kvöldi 5 júlí og þjóta um loftin blá beint til Peking þar sem keisarans hallir skína eins og segir einhvers staðar :-) . Við leggjum liklega sólarhring fyrr af stað og hyggjumst eiga góða stund í köpen. Ekki er hægt að neita því að þessi fundur setti undirbúning allan á annað stig því nú þarf að halda vel á spöðunum, aðeins tvær vikur til brottfarar. Hjónin tóku sig því til undir öryggri forustu húsfrúarinnar og máluðu herbergið Sigríðar og síðan voru keypt ný ljós. Þrátt fyrir andmæli varð hinn nýbakaði faðir að hætta sér í að festa þau upp. Til öryggis var allt rafmagn tekið af íbúðinni ef ekki húsinu öllu og sumir segja að dimmt hafi orðið á Hofteignum öllum um stund, slíkt var öryggið eða kannski öllu heldur vanþekking á tengingum og vírum. En upp fóru ljósin og taka sig vel út, smá frágangur eftir sem frúin gaf leiðbeiningar um hvernig ætti að vera þannig að þessu er ekki að fullu lokið. Þrátlát kvefpest föðursins veittum honum engan umbuð eða samúð, herbergið yrði að verða tilbúið innan tíðar, ekkert væl. Siggi Valur fór með í verslunarleiðangur og gaf foreldrunum leiðbeiningar á ýmsu því sem okkar datt til hugar að við yrðum að hafa aðgengilegt, nú ekki sleppti hann að segja sína skoðun á nauðsynlegum fatnaði og fyrst kom í huga hans arsenal treygja. Klikkar ekki á smáatriðum pilturinn sá og ekki slæmt að hafa svona ráðleggingar sem auðvitað varð að verðlauna með góðri ísferð þar sem Gunna stóra frænka kom einnig með í. Nú er frúin að "skella" í nokkrar tertur enda afmælisdagur hennar á morgun og síðan á prinsessan litla afmæli á föstudaginn og aldrei að vita nema við blásum á eitt kerti ef einhver verða eftir á bænum eftir fjöldann sem nota verður á morgun.....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Kæru Gyða og Kalli
Innilegar hamingjuóskir með dótturina, nú fer tíminn að líða hratt og styttist óðum í að þið fáið hana í hendur. Okkur fannst við standa í þessum sporum í gær. Gangi ykkur sem best við undirbúninginn og góða ferð.
Sigurbjörg, Axel og Anna Bíbí (sem kom heim frá Kína 18 maí sl.)
Við viljum óska nýju mömmunni hjartanlega til hamingju með afmælið í dag:-) Njóttu hans vel Gyða mín....síðasti barnlausi afmælisdagurinn !!!
Kristín, Gústi og Fu Chun Jing
Til hamingju - ég hlakka til að hitta litlu frænku mína. Mér er alveg sama þótt að ég sé enn eini strákurinn (barnabörn Ernu og Vals) í hópi frændsystkina því Sigríður Bára Min er lang-flottust. Loksins fær amma að halda á litlu barni aftur og hún á eftir að verða mjög ánægð býst ég við :-)
Maggi Valur
Nú er fjölskyldan í Gvendargeisla 78 (eins gott að taka númerið fram þar sem nánast allir ættingjar Kalla og Gyðu búa í Gvendargeisla) búin að skoða þessa frábæru síðu ykkar. Við erum búin að prenta út mynd af frænku okkar og setja hana í fjölskyldumyndahilluna okkar. Enn og aftur til hamingju!
Kær kveðja Þóra (og Hemmi frændi sem er alveg sammála Sigga Val með arsenaltreyjuna)
Elsku Kalli og Gyða innilega til hamingju með nýju dótturina ég get ekki beðið eftir að fá að sjá litlu krúsídúlluna.
Erna Hrund :)
smá sein á ferð en sorry litla frænka að þórhildur og gunna frænkur hafi gleymt deginum þínum en það var bara vegna þess að frænka ákvað að mála heima.þú og þið fyrirgefið þetta í þetta sinn ha?? bæti siggu báru min þetta upp með einhverju dekri ójá:))
kveðja Þórhildur og gunna
Skrifa ummæli