miðvikudagur, júní 30, 2010

Ferðaplan komið, flugseðlar keyptir og allt er að gerast!!

Jæja þá er þetta allt að gerast. Við fengum ferðaleyfið (TA) síðastliðinn föstudag og ferðaskipulagið í gær sem sést hér fyrir neðan:


Date Week Itinerary

Jul 15 Thu. Arrive in Beijing, a guide will receive you at the airport and send families to the hotel.

Jul 16 Fri. Visit the Great Wall, and have lunch near the Wall.

Jul 17 Sat. Visit the Summer Palace,

Jul 18 Sun. Transfer to adoption cities( Shanghai) by plane.

Jul 19 Mon. Receive the adopted child at adoption cities. The guide will help you buy some necessaries for the adopted baby.

Jul 20 Tue. Handle the adoption registration, notarization, passport process.

Jul 21 Wed. Shanghai: Visit Yuyuan, Chenghuangmiao, have a Chinese lunch.

Jul 22 Thu. Shanghai: Visit Jade Buddha Temple and Shanghai Bund.

Jul 23 Fri. Get the adopted child’s passports.

Jul 24 Sat. Return to Beijing by plane.

Jul 25 Sun. Go to Wangfujing Street for shopping.

Jul 26 Mon. Apply visa at Icelandic Embassy.

Jul 27 Tue. Get visa, visit the Beijing Zoo.

Jul 28 Wed. Departure.

Gengið var síðan frá flugi hjá frábæru bókunarfyrirtæki Visitor. Ferðaleiðin okkar verður gróflega á þessa leið en við höfum ekki enn fengið staðfestingu á flugi milli Peking og Shanghai:

10. júlí kl. 07:55 Keflavík - Helsinki– Peking

28. júlí kl. 10:55 Peking – Helsinki - Keflavík



Við forum því í loftið þann 10. júlí en akkúrat þann dag fyrir 5 árum fengum við hana Siggu Báru í fangið og því er þetta mikill lukku dagur. Við erum svo heppin að við munum búa hjá vinahjónum í Peking þann tíma sem við dveljum þar, hjá þeim Jóa og Jónu. Þau ætla að sýna okkur Peking með þeirra augum og er það sérstakt tilhlökkunarefni. Við stefnum á að fara á EXPO sýninguna líka í Shanghai.

Þann 19 júlí fáum við Auði Eddu í fangið. Byrjað er að þvo föt og undirbúa því dagarnir líða hratt. Sigga Bára er voða spent, þetta er síðasta vikan hennar í leikskóla og stórt ferðalag í vændum.

Bless í bú

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Frábært allt saman, gangi ykkur sem allra, allra best.
Kær kveðja, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.
P.S. Hlökkum til að sjá litlu, heppnu, Auði Eddu:-)

Kristín Vald sagði...

Bara óendanlega spennandi allt saman, bara 10 dagar í brottför...júhúúúúú

Þóra sagði...

Við verðum með ykkur í anda. Enn ein dýrmæt ferð til Kína!
Knús
Þóra

Nafnlaus sagði...

Við verðum með ykkur í anda. Enn ein dýrmæt ferð til Kína!
Knús
Þóra

Nafnlaus sagði...

Vúúú... allt að gerast og frábært að það sé komið ferðaplan - flott skipulag og vonandi gengur þetta allt snuðrulaust.
Teljum niður með ykkur ;o)
Knúsur, Sigurbjörg og co

Nafnlaus sagði...

Þvílíkt ævintýri framundan:) Hlakka mikið til að fylgjast með ykkur!!!:) Get ekki beðið eftir fyrstu myndinni af Auði Eddu í fjölskyldufaðminum!:)
Knús og kremjur,
Gígja.

Elín Henriksen sagði...

Vá....fæ bara gæsahús og vot augu við að lesa hér í gegn, gaman að sjá síðuna ykkar og lesa um undirbúninginn og ferð lífsins (í annað sinn) sem er framundan hjá ykkur. Gangi ykkur súper vel.
Elín og kó.

Nafnlaus sagði...

Spennandi - maður fær tár í augun við að lesa ferðaplanið. MIkið verður gaman að fylgjast með ykkur og hlakka mikið til að sjá Auði Eddu krúttilínu.
Sigga Bára er eins og íðifögur kvikmyndastjarna á myndunum frá útskrfitinni sinni- þvílík fegurð.
knús til ykkar
Día og co

Nafnlaus sagði...

Ohh maður fær bara gleðihroll fyrir ykkar hönd og samgleðst svo innilega!:) Ferðaplanið er mjög spennandi og alveg glænýtt að vera að fara til Shanghai, verður gaman að fylgjast með!!
Ótrúlega stutt í Auði Eddu lukkustelpu, þvílík hamingja!! :-)

Kær kveðja
Sigga, Lóa Guðrún og Daníel Hrafn

Blómvangurinn sagði...

12 dagar.....bommsarabomm.....og það eru bara 12 dagar síðan Sigga Bára átti afmæli...magnað !!!