
Já í dag er 18. nóvember og það er mikill merkisdagur. Í dag eru 17 ár frá því að frænka mín hún Guðrún Helga leit fyrst dagsins ljós og finnst mömmu eins það hafi gerst í gær. Mikið vonum við að Sigga Bára verði ekki allt í einu orðin 17 ára áður en við deplum auga!! Nema hvað að Sigga Bára er núna að undirbúa sig fyrir sundnámskeiðið sitt í þessum skrifuðu orðum og svo verður farið á Furðufataball Íslenskrar Ættleiðingar seinnipartinn - það verður spennandi og vonum við að vinkonur úr hópi 12 komi sem flestar. Sigga Bára ætlar að vera fiðrildi, bleikt og fallegt :-D Við setjum svo inn myndir af ballinu síðar.
Bless í bú
1 ummæli:
Elsku litla fiðrildi
Takk fyrir skemmtilegan tíma í gær, bæði í sundinu og á ballinu. Já, það verður sko gaman þegar við verðum orðnar 17 ára á leiðinni á böllin okkar. Ætli pabbarnir okkar hleypi okkur nokkuð út úr húsi ??? Veit ekki ;-)
knús knús í kuldanum frá Línu langsokk
Skrifa ummæli