fimmtudagur, maí 04, 2006

Bólusetningar loksins búnar - í bili


Í dag lauk bólusetningum í bili hjá Siggu Báru og eru bæði foreldrar og hún mjög fegin. Hún lagði glöð í bragði af stað upp á heilsugæslu mjög stolt, leiðandi hann Níels apa. Svo þegar búið var að mæla hana og vigta leist henni ekki á blikuna - svo stungan - ég ætla ekki að lýsa augnaráðinu sem barnið gaf móður sinni. En við sluppum lifandi frá Krisínu frábæra hjúkrunarfræðingnum sem hefur fylgt okkur í gegnum þetta allt saman. Að því loknu fór Sigga með baukinn sinn í bankann og fékk "æmmælisgjöööö" var mín ánægð eða hvað. Fékk kúta sem við ætlum að fara með í sund á eftir!!! Smá statistik - Sigga er núna 10, 4 kg og 82, 5 cm en þegar hún kom til landsins þann 20. júlí sl. var hún 7,7 kg og 71 cm. Drottningin......................bara blómstrar.
Bless í bú

4 ummæli:

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

Hæ sætu.
Tengdó hringdi og uppljóstraði því að þið mæðgur hefðuð verið í sundi í dag. Ég geri ráð fyrir því að það þýði að þú sért gróin sára þinna að mestu frú Gyða og er það vel.

Sunna spjallaði við ömmu sína um málið og niðurstaðan var að hún vill synda með Siggu Báru. Sem fyrst.

Blessi ykkur,
Sunna Herborg, mama D. og Styrmir

Nafnlaus sagði...

Já - það er alveg ljóst að Sigga Bára blómstrar - yndislegar myndir af henni :)

Bestu kveðjur,
Kitta í næsta hópi ;)

Nafnlaus sagði...

Sælar,
gott og gaman að heyra hvað gengur vel hjá fröken Siggu Báru og vonandi eru sárin gróin hjá þér Gyða. Tóta hefur ekki fengist á vikt síðustu vikuna en ungfrúin borðar á við 3!!! Já, ég lýg ekki!!! Hún hefur staðið á beit síðustu viku eða svo. Veit ekki hvað er að gerast, en hún blómstrar. Hlökkum til að hitta ykkur. Koss og knús frá Tótu.
Kristín og Tóta

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

j kjhjhg
s gggghnjhg 8779kjgfdtgk

Segir Sunna,
kannski skilur Sigga Bára þetta?

Blessjú,
mama D.