Núna er hægt að greina frá því að fjölskyldan stækkar bráðum. Við skrifuðum undir í dag LOA eða samþykki fyrir að ættleiða yndislega stúlku sem við höfum nefnt Auði Eddu Jin, en kínverska nafnið hennar er Wu Jin Fang. Hún er fædd þann 19.desember árið 2007 og býr í Shanghai.
Við erum núna orðin mikið spennt yfir að fá að hitta hana þó svo að allt ferlið okkar hafi gengið ótrúlega hratt hingað til. Upplýsingarnar bárust okkur á síðasta vetradag þannig að hún er stóra sumargjöfin okkar.
Sigga Bára er ofboðslega spennt og stolt. Getur varla beðið eftir því að fá litlu systir í fangið en aðal málið hjá henni er hvort hún geti ekki örugglega haldið á henni. Auðvitað getur hún það enda að byrja í grunnskóla í haust!
Núna biðjum við til guðs að allt gangi vel í framhaldinu hjá okkur og að við fáum fljótt að hitta litla ungann okkar.
Bless í bú
miðvikudagur, maí 19, 2010
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
Kæra fjölskylda.
Gleðileg tíðindi, innilega til hamingju með hana Auði Eddu. Vonandi ganga öll pappírsmál hratt og vel fyrir sig svo þið getið farið sem fyrst að sækja litla gullið ykkar.
Hafið það sem allra, allra best.
Kær kveðja, Þórdís, Kristján og Hildur Björg.
Frábært elsku þið og vonandi svo stutt þar til Sigga Bára stóra systir og þið frábæru foreldrarnir fáið að hitta fallegu Auði Eddu. Svo yndislegt að þetta sé að gerast og við fögnum sannarlega með ykkur.
Knúsur, Sigurbjörg og feðginin
Yndislegt, enn og aftur til hamingju elsku vinir !!
Hlökkum svoooo til að hitta hana Auði Eddu Jin og knúsa hana í kaf.
Vonum að ferðaleyfið berist fljótt og örugglega svo þið komist sem fyrst út til Kína að ná í litla ungann !
knús í hús
Blómvangsgengið
Frábært, til hamingju með þennan áfanga :)
Njótið ykkar vel í hreiðurgerðinni og vonandi kemur ferðaleyfið fyrr en varir. Hlakka til að sjá mynd af stóru systur halda á litlu systur :)
Bestu kveðjur og knús frá Unni Vald
vá en gaman, ég verð á fá að hitta nöfnu mína einhvern tímann ;0)
til hamingju og njótið vel
Auður H Sig
Jahérna hér, ekki hafði ég hugmynd um þetta!!! Innilegar hamingjuóskir elsku fjölskylda!!!:) Mikið verður gaman að sjá litla gullið ykkar:)
Knús og kveðjur,
Gígja og co.
Kæra fjölskylda. Ég hef nú ekki kíkt hjá ykkur lengur færslur en sé að það er aldeilis margt búið að vera í gangi.
Sigga Bára að útskrifast úr leikskólanum og þið að fara að eignast nýja stúlku.
Innilega til hamingju með þetta all saman :) Bara yndislegt að lesa og sjá hvað er í gangi hjá ykkur. Vona að þið fáið litlu dömuna sem fyrst í fangið.
Bestu kveðjur - Kitta :)
Enn og aftur til hamingju með Auði Eddu, svo fallegt nafn, það verður gaman að sjá myndir. Hún gæti ekki verið heppnari með foreldra og stóru systur :)
Skrifa ummæli