sunnudagur, júní 24, 2007

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag...hún Sigga Bára






Já það var erfitt að sofna í gær því Sigga Bára vissi að þessa nótt myndi hún allt í einu verða 3. ára - allt í einu, sofna 2. ára og vakna 3. ára - hvernig gerist þetta eiginlega allt saman. Blessunin var vakin með söng foreldranna, bleik kaka og bleik kerti og pakki með bleikum dúkku stól til að setja á bleika hjólið!!!! Sú stutta setti á bleiku Barbapabbakökuna og svo komu gestirnir :-D Frænkur, frændur, vinir, amma og afi - hún er rík hún Sigga Bára og hún veit af því. Það var sunginn söngurinn sem við höfum þurft að bíða svooooo lengi eftir og það sem var mesta sportið "afmælisbarnið fær fyrst af kökunni" jebb, klikkar ekki á smáatriðunum!!! Allir fóru út að leika, búið var að setja upp tjald, sápukúlur fyrir alla og svo var hlaupið út á leikskóla. Sú stutta er sofnuð núna í nýju bleiku náttfötunum sem hún klæddi sig alveg sjálf í því hún er sko 3. ára í dag.

Takk allir fyrir frábæran dag og elsku Sigga Bára TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ÞITT !!!!

Bless í bú

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilegar hamingjuóskur með 3ja ára afmælið þitt flotta stelpa - Sigga Bára :D - aldeilis flottur kjóllinn þinn og kakan :)

Bestu kveðjur - Kitta og Elísabet Xiang ;)

Nafnlaus sagði...

Flott kakan Gyða :-)

Enn og aftur til hamingju með daginn !! Afmælissöngurinn var sunginn í Blómvangi í dag til heiðurs Siggu Báru.

knús

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Jii hvað tíminn líður!!!
Innilega til hamingju með afmælið sæti sykurmoli!!
Vild við hefðum getað verið til fagna þessum mikla áfanga með þér ****

Geggjuð kaka Gyða ;)

Komum heim eftir viku og hlökkum til að sjá færni Siggu á nýja flotta hjólinu!!

Knús frá Álfrúnu og Viktori

Nafnlaus sagði...

Já flott kaka Gyða, og Sigga Bára enn og aftur til hamingju með daginn. Mikið er kjólinn flottur.
Tóta og Kristín

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára !
Hjartanlega til hamingju með þriggja ára afmælið. Vá hvað þú varst glæsileg og fékkst æðislega köku :) fékkstu svo líka hjól eins og ég - það er líka dúkkusæti á mínu :)
Bestu kveðjur og sjáumst bráðum skvís.
Berta Rögn og mamma.

Nafnlaus sagði...

Halló skvís

Rosalega var Barbapabba-afmæliskakan þín glæsileg, og girnileg jömmí jömm.
Þú ert líka svaka flott í fallega afmæliskjólnum þínum og svo ertu líka búin að eignast svona rosaflott tvíhjól - ég á nú víst eitt líka sem ég á ekki að fá að vita af alveg strax enda er ég svo sem alveg sátt við þríhjólið ennþá ;o)

Sjáumst, Anna Bíbí og mamman

Nafnlaus sagði...

Til hamingju fallega stúlka með 3ja ára afmælið þitt. Mér finnst bleikt líka fallegt. Bestu kveðjur til foreldra þinna úr blíðunni á Ísafirði