miðvikudagur, ágúst 30, 2006

Þetta er allt að koma



Já hún Sigga er öll að koma til. Stúlkan er búin að vera lasin meira eða minna síðan á laugardag með hita, hálsbólgu og almennt kvef eins og það gerist best. Í dag var því farið í leikskólann í fyrsta sinn í þessar viku og hélt mamman að við færum 8 skref afturábak í aðlöguninni. En viti menn - það þurfti ekki að hafa áhyggjur af þessum degi. Þegar Sigga Bára var sótt í leikskólann í dag fékk mamman gleðifréttir - STÚLKAN SVAF Í HVÍLDINNI, BORÐAÐI VEL OG NÁÐI AÐ LEIKA SÉR!! Getur maður beðið um annað. Við foreldrarnir vitum vel hvað býr í þessari duglegu stúlku og hlökkum mikið til þegar kennarar hennar fara að sjá þá hlið á henni. Annars þá verð ég að taka hattin ofan fyrir kennurum Siggu Báru - þær hafa verið svo góðar og þolinmóðar við okkur, þá ekki síður foreldrana en Siggu Báru. Við segjum bara takk, takk, takk fyrir allt.
Hér eru myndir af fallegasta sjúklingi kjúklingi landsins og barasta heimsins
Bless í bú

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl sæta
Æ hvað er gott að heyra að það sé eitthvað að ganga betur. Kannski þurftir þú bara kvefpest til að átta þig aðeins á þessum breytingum í ró og næði heima. Veistu Sigga Bára, mér finnst bara rosa gaman á leikskólanum en reyndar ekkert sérlega gaman þegar ég mæti en svo lagast allt ;o)
Hafðu það gott og reyndu að losa þig almennilega við kvefið svo þú getir verið dugleg að róla og leika á leikskólanum. Og taktu bara þinn tíma í að aðlagast, það er lang best. Þetta er sko ekki bara erfitt fyrir þig, þetta er örugglega erfiðara fyrir mömmu þína og pabba.
Sjáumst, Anna Bíbí (sem er löööngu sofnuð) og mamman (sem er alveg að sofna)

Nafnlaus sagði...

Komið þið sæl.
Það er gott að heyra að allt sé á uppleið í leikskólanum, við þekkjum laaanga aðlögun vel!!
Vonandi er Sigga Bára búin með allan veikindapakka vetrarins, það er ekkert leiðinlegra en að vera lasinn!!
Vonandi sjáumst við fljótlega.
Bestu kveðjur frá Hildi Björgu og fjölskyldu.

Nafnlaus sagði...

Sigga Bára.....þú ert LAAAAANG flottust, rúllar þessum leikskóla upp þegar ÞÚ ert tilbúin !!!

Sakna þín "noahhh" mikið
Matthildur

Nafnlaus sagði...

Halló sæta Sigga Bára

Gott að heyra að leikskólinn sé ekki lengur þessi hræðilegi "dreki" sem hann var. Annars var mamma þín búin að segja að þú myndir sættast á hann þegar að þinn tími kæmi og hún hafði sko rétt fyrir sér kellan. Haltu áfram að standa þig vel og vera þú sjálf

bestu kveðjur til ykkar, Friðrik Daði Deb og mamma

Nafnlaus sagði...

Hæ sæta Sigga Bára!
Það var nú gott að heyra að þú gast tekið lúrinn þinn, borðað og leikið þér í leikskólanum. Gangi þér áfram vel að venjast þessum nýja lífstíl, hann er ekki sem vestur þegar maður hefur tamið sér hann. Sjáumst í skólanum!
Kveðja Guðný Sigurrós og mamma

Dóra Ísleifsdóttir sagði...

Hæ sæta fjölskylda. Gott að heyra að Siggu líði betur.
Knús og kram til ykkar allra.

Nafnlaus sagði...

Sæl öll,
gott að heyra að Sigga er öll að koma til. Alltaf gaman að fylgjast sem Siggu og co. Heyra hvernig gengur og skoða myndir.
Koss og knús frá Tótu og foreldrum.