sunnudagur, júlí 09, 2006

Fyrsta/Frysta útilegan



Sigga Bára hefur farið í sína fyrstu útilegu. Það var löngu ákveðið að fjölskyldan ætlaði sér að fara á útilegu Íslenskrar Ættleiðingar sama hvernig veðurspá yrði. Þetta var frábær ferð, fórum samferða Matthildi og fjölskyldu og hittum fullt af skemmtilegu fólki . Við tjölduðum við skólann á Reykhólum og þar var öll aðstaða til fyrirmyndar stórt leiksvæði fyrir ungana að hlaupa á, gæsluvöllur fyrir neðan húsið, leikfimissalur sem var fullnýttur allan tímann og frábær aðstaða inn í skólanum(stærðar matsalur, eldhús, sjónvarpskrókur og salernisaðstaða). Veðrið var ágætt og þó..... há sumar og ábyggilega rúmlega 4 stiga hiti og talsverð rigning allan tímann, það var nátturulega "bara skítkalt" alla vega fyrstu nóttina. Talið var að hátt í 150 manns voru á svæðinu þegar leikar stóðu sem hæst og rífandi stemming. Þegar fjölskyldan hafði verið á Reykhólum frá föstudegi fram á laugardagskvöld var ákveðið að kveðja þennan fallega stað. Það hafði verið svo kallt fyrstu nóttina að við hreinlega lögðum ekki í aðra nótt með prinsessuna í tjaldið. En mikið var gaman og viljum við þakka öllum fyrir frábæra skemmtun og samveru.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með fyrstu útileguna og takk fyrir komuna í dag.
Á morgun mun vera eitt ár síðan þú varst tekin í faðm fjölskyldunnar.
Til hamingju með það líka.

Nafnlaus sagði...

Halló Sigga Bára og foreldrar!
Innilega til hamingju með eins árs samveruafmælið ykkar. Vonandi eigið þið skemmtilegan hátíðisdag framundan.
Kveðja frá Ísafirði
Laufey og Ásgerður Jing (sem eiga 3ja ára samveruafmæli 14. júlí)

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með daginn í dag, eins árs samveruafmælið. Okkur finnst ótrúlega stutt síðan við fylgdumst spennt með fréttum frá nýbakaðri fjölskyldu. Á þessu ári hefur prinsessan svo sannarlega þroskast og dafnað.
Hafið það alltaf sem best.
Kær kveðja, Þórdís, Kristján, Hjalti og Hildur Björg.

Nafnlaus sagði...

Elsku Gyða, Kalli og Sigga Bára !
Hjartanlega til hamingju með samveruafmælið – skemmtilegir tímar líða sannarlega hratt.
Haldið áfram að njóta lífsins,
Bestur kveðjur og takk fyrir skemmtilega útilegu,
Berta Rögn og mamma.