mánudagur, ágúst 15, 2005

Garðvinna, kínasystur og klipping

Myndir
Ungfrú Sigríður Bára tók sig til og aðstoðaði foreldra sína við garðvinnu fyrr í vikunni. Sendi reyndar lofthræddan og aldraðan föður sinn upp á húsþak að mála og veifaði honum af og til svona rétt til að telja í hann kjark. Þá fannst henni móðurin ekki týna grasið nægjanlega hratt úr beðunum svo hún borðaði slatta til að auka yfirferðina svo allur dagurinn færi nú ekki í svona verkefni. Henni fannst þetta nokkuð gaman en skemmtilegra er þó að sitja í kerrunni og horfa á heiminn og hver getur ekki tekið undir það?
Hún er orðinn ótrúlegur orkubolti og foreldrarnir þurfa að hafa sig alla við til að annast hana. Sigga Bára vill helst ganga ( með aðstoð) um alla íbúðina, aftur og aftur og bendir síðan á það sem henni líst best á hverju sinni og vill skoða nánar. Bognir í baki en með viljann fyrir verki eru vaktaskipti hjá þeim "gömlu" til að allt sé nú gert eftir "pedagoginu"
Í dag hittum við síðan kínasystur hjá Matthildi í Mosanum og það var gleðistund og gaman að sjá hversu miklar framfarir eru hjá þeim öllum. Hafa mikið stækkað og styrkst auk þess að luma á einu og einu nýju "trixi" sem sjálfsagt er meira fyrir egóið hjá okkur foreldrunum en mat á þroska stúlknanna.
Nú á leiðinni heim var farið í fyrstu klippinguna sem tókst vel, ekkert væl eða neitt heldur bara góð fagmennska hjá þeim í stubbalubbum í Grafarvoginum

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ vinkona

Takk fyrir heimsóknina í dag, það var rosa gaman að hitta þig og hinar stelpurnar og leika. Hlakka til að hitta þig sem fyrst aftur. Flott nýja klippingin...við erum nú meiri pæjurnar ;-)

knús
Matthildur

Nafnlaus sagði...

Hæ, hæ. Ég kíki oft á síðuna ykkar, líður samt eins og njósnara líkt og að ég sé að "spæja" einkalífið ykkar. Ákvað að kvitta núna. Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur Kristbjörg Hrund

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ
Gaman að sjá ykkur tilsýndar um daginn, takið ykkur vel út með barnakerruna. Mér finnst gaman að hafa getað fylgst með í gegnum Arndísi frænku og séð myndir af ykkur á þessari síðu. Þetta er mikil hamingjusíða og kemur manni í gott skap að kíkja á ykkur þar.
Kveðja
Fjóla Gunnars

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ, gaman að sjá myndirnar af prinsessunni ykkar. Hún er alveg stórglæsileg.
Magga og Bjarni

Lotta biður að heilsa

Nafnlaus sagði...

Rosalega flott stelpa! Gaman að vita af nýrri nöfnu heima a Fróni.
Þið þurfið bara að fara að bæta fleirum og svo ennnnn fleirum við í hópinn.
Hún er svaka flott og rosaleg dúlla!
Til Hamingju Kalli og Gyða og Sigríður Bára fyrir að hafa fundið svona skemmtilega fjölskyldu og ástkært heimili.

Sirrý frænka

gaman væri að fá emailið ykkar og takk fyrir allar bækurnar Kalli :D