miðvikudagur, maí 25, 2005

Myndir komnar frá Bandaríkjunum

Í gær var hægt að skoða myndir sem bárust bandarískum foreldrum sem eru að ættleiða frá Kína. Þetta voru myndarlegustu börn og furðu vakti að mörg þeirra voru mjög ung auk þess sem í hópnum voru tvíburar og einn drengur. Núna fer að líða að því að við hér á Íslandi fáum einhverjar upplýsingar.

mánudagur, maí 23, 2005

Þetta voru engar kjaftasögur

Í dag hittust verðandi mæður í hádegismat á Kaffi Sólon. Mikið var rætt um tímasetningar og gengið hart að Kristínu V. að láta okkur vita um leið og fréttir bærust frá Bandaríkjunum. Hún benti okkur réttilega á það að það væri mánudagur þar líkt og hér auk þess sem tímamunurinn væri mikill og því ekkert að frétta þaðan frá því á föstudag þar sem það væri varla kominn morgun þar. En Kristín var dugleg og komst að því þegar hún mætti aftur til vinnu að myndirnar væru farnar að berast til verðandi foreldra í USA. Þetta vakti mikla lukku. Þannig að ef maður heldur áfram að "spekulera" þá ættum við að frétta eitthvað í næstu viku.

sunnudagur, maí 22, 2005

Undirbúningur að fara á flug :-)

Á síðustu dögum hefur undirbúningur hjá okkur tekið á sig nýjar myndir. Gyða stýrir verklegum framkvæmdum sem núna felast í því að lakka barnarúm og snyrta þannig að til sóma verði. Svefnherbergi sem til þessa hefur verið fyrir "lítið" frændfólk sem hefur fengið næturgistingar fær nýjan og góðan tilgang og mun í framtíðinni verða fyrsta barnaherbergi okkar, ekki dónalegur tilgangur það! Gert er ráð fyrir að mála og snyrta til í herberginu með því að loksins verði gólflistar festir formlega en þá fengum við tilsnyrta frá fyrri eigendum íbúðarinnar fyrir ekki svo löngu. Kannski best að segja sannleikann það eru rúmlega tvö ár og við stilltum þeim bara upp og þar sem þeir stóðu á eigin "spýtum" þá var ekkert verið að vesenast í því að festa þá formlega. Jæja læt nægja um gólflistana en þeir verða semsagt festir upp þegar búið er að skella upp veggfóðri sem keypt var sérstaklega með það í huga að geta hentað vel hvort sem barnið verður stúlka eða piltur. Hvað frúin ákveður síðan að verði næstu skref veit ég ekki en það verða ábyggilega göfug og eitthvað sem er alveg bráðnauðsynlegt að gera strax.... Þeir sem til þekkja vita að verklegar framkvæmdir eru nú ekki sterkasta hliðin þannig að ekki fækkar gráu hárunum á næstu vikum :-)

föstudagur, maí 20, 2005

Kjaftasögur af spjalli

Jæja - í dag heyrði ég kjaftasögu sem ég kýs að trúa að sé sönn. Komið hefur fram á spjallsíðum bandarískra foreldra sem eru að ættleiða að myndir og upplýsingar séu á leiðinni til þeirra. Núna fer hugurinn á flug og er maður núna að láta sig dreyma um að fá upplýsingarnar í fyrstu viku júní. Nú er bara að sjá og bíða.

þriðjudagur, maí 10, 2005

Hittingur hjá félögum í hópi 12

Í gær hittist hópur 12 á Hofteigi. Það var mjög góð mæting hjá hópnum sem endranær. Mikil spenna er byrjuð að myndast og allir voru að spekulera og spá í sama hlutinum þ.e. "Hvenær ætli upplýsingarnar berist"? Farið var að telja fram og til baka en loka niðurstaðan var eiginlega sú að það er ekkert og þá ekkert að gera annað en að bíða og bíða. Kristín okkar frábæri upplýsingafulltrúi hefur tekið það að sér að vera dugleg inn á bandarísku spjallsíðunum og fylgjast með hvenær þau fái sínar upplýsingar en reynslan hefur sannað það að við megum vonast til að fá upplýsingar um ungana okkar u.þ.b. 10 dögum eftir að Bandaríkjamenn hafa fengið sínar upplýsingar. Farið var að skoða barnaföt sem gestgjafarnir höfðu verslað og er það ljóst að það er búið að undirbúa komu lítillar prinsessu á heimilið. En það er mikið búið að vara okkur við því að gera ráð fyrir stelpu þar sem það liggur ljóst fyrir að bráðlega mun annar drengur bætast við þann hóp kínverskra barna sem hafa verið ættleidd hingað - en þangað til þá lítum við á tölfræðina sem segir 95% líkur á stúlku.

miðvikudagur, maí 04, 2005

Smá misskilningur

Var að frétta það að login dagsetningin hafi verið 11.11.2004 en ekki 03.11.2004 eins og ég sagði frá í fyrri pósti mínum. Það vonandi breytir ekki miklu nema hvað það verður sífellt heitara og heitara í Kína sem líður á sumarið :-)

mánudagur, maí 02, 2005

Mánuðir líða

Á morgun þann 3. maí eru liðnir 6 mánuðir frá því að umsókn okkar var móttekin í Kína. Þessi tími hefur liðið hratt og þá sérstaklega síðustu mánuðir. Það hjálpar mikið við biðina hve mikið er til að efni á vefnum og svo ekki sé minnst á ferðalag þeirra í hópi 11. En núna er viku frí í Kína og blessað fólkið sem er að vinna með umsóknirnar okkar að njóta þessa frítíma. Biðtíminn er áætlaður 6-7 mánuðir og því má segja að það verður stutt í það að við fáum einhverjar fréttir. Framundan er að fara að tæma herbergið sem ætlað verður unganum en við ætlum að bíða með að innrétta það þar til við fáum upplýsingarnar.

mánudagur, apríl 25, 2005

Legacy of an Adopted Child

Once there were two women.
Who never knew each other.
One you do not rember.
The other you call Mother.
Two diffrent lives shaped to make your one
One became your guiding star
The other became your sun.
The first gave you life
The second taught you to live in it
The first gave you the need for love
And the second was there to give it.
One gave you a nationality
The other gave you a name
One gave you the seed of talent
The other gave you an aim.
One gave you emotions
The other calmed your fears
One saw your first sweet smile
The other dried your tears.
One gave you up .... It was all she could do
The other praid for a child
And god led her straight to YOU.
And now you ask me through your tears
The age old questions through the years.
Heredity or enviroment.....
Which are you the product of.
Neither my darling......neither
Just two kinds of love.

fimmtudagur, apríl 21, 2005

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Heimasíða fyrir hóp 11 - þau sem fara á undan

Í dag fengum við slóðina að heimasíðu hóps nr. 11. Þetta er skemmtilega uppbyggð síða sem verður skoðuð á hverjum degi hjá okkur hjónum. Við óskum þeim öllum góðrar ferðar og til hamingju með þessar yndislega fallegu dætur þeirra.

laugardagur, apríl 16, 2005

Hópur 11

Jæja. Núna er komin ferðadagsetning fyrir hóp nr. 11. Þau munu fara út þann 2. maí og koma aftur til Íslands þann 18. maí. Þetta er allt að verða raunverulegra og raunverulegra fyrir okkur og upplifum við mikið stemminguna hjá þeim sem eru að fara út og reynir að setja sig í spor þeirra. Nokkrar myndir hafa verið settar á netið af þeim og eru þær allar gullfallegar og hraustlegar að sjá.

þriðjudagur, mars 22, 2005

Myndir í mars

Fréttir bárust af því að hópur nr. 11 hafi fengið upplýsingar um börn sín í dag. Þetta voru 9 stúlkur sem munu koma til landsins vonandi í byrjun maí og eru þær allar fæddar á tímabilinu apríl-maí árið 2004. Þetta er orðið spennandi - næstu myndir verða fyrir okkar hóp nr. 12

laugardagur, mars 12, 2005

Undirbúningur og Námskeið

Í dag var haldið námskeið sem ber heitið "Umönnun ungbarna" og var þar fjallað um helstu atriði sem foreldrar sem eru að ættleiða þurfa að hafa í huga. Þetta var virkilega fræðandi námskeið sem Íslensk Ættleiðing stendur fyrir og var Kristín S. Jónsdóttir mjög greinagóð og upplýsandi.
Þetta námskeið er í okkar huga viss áfangi í okkar ættleiðingarferli - það er verið að huga að ferðinni. Það var gaman að finna fyrir spenningi þeirra í hópi 11 sem eru þessa dagana að bíða eftir upplýsingum um börnin sín og um leið og það gerist erum við orðin næst í röðinni. Spennandi!

laugardagur, febrúar 19, 2005