Ef þetta er ekki búið að vera stórkostlegt að fylgjast með og taka fullan þátt í þessum spennandi aðdraganda afmælisins !!!! Sigga Bára er búin að baka, skreyta kökurnar, smakka nammið ( sumt oftar en einusinni ), fara í gegnum morgundaginn í huganum og þykjustinni og meira að segja semja lag um eina stelpu sem á afmæli í júní!!!! Hve maður er ríkur að fá að upplifa tæra einlæga og sanna tilhlökkun með Siggu Báru
Þú ert bara best og flottust Sigga Bára!
Bless í bú
3 ummæli:
Til hamingju með skvísuna, hún er nú ekkert smá heppin líka að eiga svona stolta og góða foreldra :)
Njótið dagsins...
kv frá EGS
Amma og afi voru sko ánægð þegar þau opnuðu tölvuna. Hún Sigga Bára Min er sko flott 5 ára stelpa. Og amma og afi eru líka stolt að eiga pínulítið í henni. Til hamingju Sigga Bára Gyða og Kalli. Amma og afi
Halló fallega sólskinsbarn.
Hjartanlega til hamingju með fimm ára afmælið yndislega Sigga Bára. Sólin skín sannarlega fallega fyrir þig í dag. Þú hefur örugglega átt skemmtilegan afmælisdag á leikskólanum með kórónu og tilheyrandi. Og svo færðu alveg örugglega fullt af knúsi og kossum, gómsætum kræsingum og góðum gjöfum í tilefni dagsins.
Afmælisknús og kveðjur til þín og þinna, Anna Bíbí og foreldrarnir
Skrifa ummæli