sunnudagur, mars 01, 2009

Öskudagurinn og næstu dagar




Öskudagurinn var hreint út sagt frábær. Sigga Bára var aldeilis ákveðin í því að vera ógnvekjandi - ógnvekjandi SJÓRÆNINGI! Það var sama hvað mamma reyndi að gera hana skelfilega, ekkert gekk upp. Hún varð bara fallegri og fallegri því meira sem reynt var (hlutdræg finnst ykkur.......alveg sama :-)


Um helgina hefur daman farið á aldeilis skemmtilegt leikrit hjá áhugamannaleikhóp Mosfellsbæjar sem hiklaust er hægt að mæla með fyrir yngri kynslóðina. Takk fyrir okkur Matthildur, Kristín og Gústi.


Svo var mikil vor stemming í hverfinu áðan þannig að við mægður dustuðum rykið af hjólinu og daman hjólaði og hjólaði. Það er gaman þegar dagur lengist og gleðitímar einnig.


Bless í bú

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sætasti sjóræninginn í bænum ;-)

knús og sakn

Kristín og Matthildur

Heiða Árna sagði...

Sæl kæra fjölskylda, ég kíki annað slagið hingað inn, líður reyndar stundum langt á milli. En alltaf gaman að frétta aðeins af ykkur og sjá myndir af fallegu prinsessunni!
Ég varð bara að segja þér Gyða að mig dreymdi þig svo sterkt í nótt, þú varst ólétt og tókst þig rosalega vel út ;) Er kannski systir á leiðinni frá Kína?
Ég rekst einmitt annað slagið á Kára og Vallý hér á Egilsstöðum sem að eiga Heklu og Hildi frá Kína, dásamlegt að sjá hvað þau eru öll ánægð með hvert annað. Enda las ég einhvers staðar að fólk sem að ættleiðir börn sín eyða mun meiri tíma með þeim en líffræðilegir foreldrar barna.
kær kveðja frá Egilsstöðum
Heiða (fyrrum ÚTL-staff)