sunnudagur, júní 10, 2007

Heiðmörk og vinir




Í dag fórum við ásamt ömmu Ernu í Heiðmörk. Þar var sumargrill og fjör Íslenskrar ættleiðingar. Þar hittum við marga vini okkar og skemmtum okkur vel. Aðstaðan er hreint út sagt frábær, við bara skiljum ekkert í okkur að fara ekki oftar í Heiðmörkina - núna verður bætt úr því :-D Svo var farið heim, labbað til Kobba vinar, versluð sumarblóm og svo var dagurinn toppaður með matarboði hjá Einari Erni og fjölskyldu en vinkonur Siggu Báru Min, þær Júnía og Laufey voru á landinu.

Það er þreytt lítil stúlka sem sefur núna vært enda hver væri það ekki eftir svona erilsaman dag!!!

Bless í bú

2 ummæli:

Unknown sagði...

Hæ sæta snúlla! Það var gaman að hitta þig í Kringlunni um daginn! ;D

Nú er veðrið orðið svo gott að við erum hvorug "með 11" eins og í vetur...HA HA HA!!

Bestu kveðjur til fjölskyldunnar

Ragnheiður og co

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Hellú ! Sit hér í lúðaström brosandi yfir myndunum af litlu hörkutólinu ykkar!! Hún er algjört met ... !! ég kem í stutt stopp á klakann 2. júlí og panta smá tíma með skvísunni ( og jú auðvitað foreldrunum líka) !!

hlakka til ...

Knús og koss á línuna frá okkur hér í norska landinu

Ha de