miðvikudagur, apríl 18, 2007

Komin heim eftir tveggja vikna stuð á Fuerteventura






Já núna er Sigga Bára Min komin heim eftir að hafa dvalist með frændsystkinum sínum á Fuerteventura (mamma og pabbi voru auðvitað líka með!!)!! Mikið var gert í ferðinni, farið í dýragarð, vatnsleikjagarð, ströndina, eðlusafn og auðvitað leikið sér við laugina við hótelið. Sú stutta ætlaði að vera heima í dag með mömmu en var hvött til að mæta á náttfataball í skólanum. Hún er þar núna og var ekki alveg sátt við að vera skilin eftir enda vantaði aðal stuðboltana hann Olla frænda og Telmu frænku!!!


Bless í bú


6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Við segjum: Velkomin heim og gleðilegt sumar. Takk fyrir allar skemmtilegar stundir á liðnum vetri.
Bestu kveðjur frá Hildi Björgu og fjölskyldu.

Nafnlaus sagði...

Velkomin heim fallega fjölskylda og gleðilegt sumar. Voðalega er gott að vita af ykkur hérna heima en gaman að heyra að það hafi verið svona gaman. Fær maður ekki að sjá myndir ???

knús og sakn
Matthildur og gamla settið

Nafnlaus sagði...

Elsku Sigga Bára !
Sól og sandur og fjör í góðra vina hópi á sólarströnd - þetta hefur bara verið æði :)
Velkomin heim, gleðilegt sumar og takk fyrir samveruna í sundi í gær.
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.

Nafnlaus sagði...

Hæhæ...gott að geta dottið inn á skemmtilegar síður á meðan maður á að vera að lesa fyrir próf ;) Þú ert svo mikið krútt litla pæja ;**
Langaði bara að kvitta fyrir innlitið !!
Haa det bra ;D
kv.
Ragnheiður

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís
Rosalega varst þú heppin að vera í útlöndunum, það hefur örugglega verið mjög gaman.
Sjáumst vonandi í Hreyfilandinu á laugardaginn.
Bestu kveðjur í bæinn, Anna Bíbí og mamman

Álfrún og Viktor Noregsfarar sagði...

Gott að heyra að það hafi verið mikið stuð á ströndinni.... !!! Enda skvísan ekkert smá sæt með tígó og hamingjusamt bros á vör!!

Það var ekkert smá gaman að hitta fröken Sigríði í stuttu stoppi á klakanum .... hún er ekki lengi að heilla mann uppúr skónum!! Það líður ekki á löngu þangað til að ég get farið að kenna henni nokkur skvísutrix... hún er á góðri leið hahaha!!

Þið vitið að þið eruð sko meira en velkomin hingað til Lúðaström !!! Noregur er búinn að taka á mun jákvæðari mynd eftir að sólin byrjaði að skína!

Knús frá okkur til ykkar