
Já hún Sigga hún er bara búin að læra trilljón ný orð í leikskólanum - allt í einu segir hún; ég nenni ekki út, ég nenni ekki bað, ógeðslega gott, ógeðslega vont, ógeðslega ljótt, láttu mig vera, ekki stríða, allir saman......... Það er alveg frábært að fylgjast með litla unganum sem núna er svo ánægð með leikskólann að hún varla hefur tíma til að kveðja foreldrana á morgnanna. Þegar hún er sótt þarf oft að bíða því hún er bara ekki alveg búin að púsla auk þess sem hún þarf að sýna margt. Í dag blasti við fögur sjón - Sigga var að leika við vinkonu sína úti, þær hlupu um allt svæðið og hlógu saman - þetta hefur hún ekki gert hingað til. Er ekki gaman að fá að upplifa þetta allt með henni Siggu Báru sjarmörínu línu?
Bless í bú
5 ummæli:
Jú það er sko gaman að fylgjast með henni Siggu Báru! Foreldrarnir skrifa líka svo skemmtilegan texta að maður skelli hlær. Það ber líka vitni um dugnað fjölskyldunnar að barnið lærir ekki frasann "ég nenni ekki" fyrr en það er komið á leikskóla. Þið standið ykkur öll glimrandi vel.
Bestu kveðjur,
Heidi und familie
Halló.
Það er einmitt svo gaman að fá að fylgjast með henni Siggu Báru þroskast og dafna og stoltum foreldrum!!
Við hér vorum reyndar farin að hafa áhyggjur af því að þessi síða væri að leggjast í dvala, við erum því "ógeðslega" ánægð með það að fá nýjar fréttir af unganum.
Vonandi sjáumst við sem fyrst.
Kær kveðja frá Hildi Björgu og gamla settinu.
Það er frábært að fylgjast með henni Siggu Báru og ykkur líka, bara gleði, gleði, gleði... svona á lífið að vera. Bestu kveðjur á bæinn frá okkur á Ísafirði
Heil og sæl!
við sitjum hér hjónin og dáumst að Siggu Báru. Hún er orðin svo stór, herre jössus! Gaman að heyra hvað hún nýtur sín vel í skólanum.
Eruð þið ekki farin að skipuleggja heimsókn til Amsturdam gott fólk?
Bestu heilsur,
Ágústa og Floris
hæ ,
mikið er gaman að heyra þetta með leikskólann og við urðum svo sannanlega vitni að þessum aukna orðaforða dömunnar í dag í hreyfilandi.
gott að síðan er komin í lag því það er svo gaman að kíkja við hjá ykkur.
bestu kv. Guðrún Edda og mamman.
ps. afsakaðu Sigga Bára mín ætlaði alls ekki að hoppa svona mikið á þig á trampólíninu í dag var bara svolítið aktív í dag !!!! kv. Guðrún Edda
Skrifa ummæli