

Elsku hjartans dóttir okkar á afmæli í dag og er orðin tveggja ára!!!!! Foreldrarnir eru núna að bíða eftir því að gestirnir banki á dyrnar - stoltir og ánægðir. Hún Sigga Bára fattar alveg að hún á afmæli - búin að opna nokkra pakkana og fengið s.s. vörubíl (frá Þórhildi feminista), útilegustól, garðáhöld og ekki má gleyma stóra sandkassanum sem afi og amma gáfu prinsessunni af tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn hjartans dóttir okkar!!!!!!!
13 ummæli:
Með jörðin undir fótum þínum vera blómum stráð hvar sem þú kemur í lífinu Sigga Bára.
Blessi þig,
þínir vinir á Egilsgötunni
http://www46.123greetings.com/card/06/24/08/36/ZAW80624083656623.html
Hæ sæta afmælisstelpa! Til lukku mð daginn ;)
Bestu kveðjur frá Freyju og co
Halló Sigga Bára og innilega til hamingju með tveggja ára afmælið. Stór og flott stelpa sem hefur heldur betur dafnað vel í foreldrafaðmi síðasta árið. Hafðu það ætíð sem allra best
kveðja, Stína, Nonni og Friðrik Daði Deb
Elsku fallega Sigga Bára !
Innilegar hamingjuóskir með tveggja ára afmælið þitt.
Vonandi áttirðu frábæran dag.
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.
Halló fallega Sigga Bára,
Hjartans hamingjuóskir með afmælið í gær - ´frábært að halda upp á afmælið sitt í svona fallegu veðri.
Til hamingju
kv. Guðrún Edda og mamman
Elsku Sigga Bára,
innilega til hamingju með afmælið. Þetta hefur verið aldeilis fín afmælisveisla hjá þér.
Koss og knús frá Tótu.
Sjáumst vonandi fljótlega.
Tóta og foreldrar.
Elsku Sigga Bára,
Hjartanlegar hamingjuóskir með tveggja ára afmælið fallega afmælisbarn!! Bestu kveðjur til mömmu og pabba.
Hlökkum til að hitta ykkur í sumar.
Kærar kveðjur, Sara Xiao og mamma
Sæl elsku Sigga Bára
Innilega til hamingju með stórafmælið, þetta er jú enginn smá áfangi að verða tveggja. Þú hefur örugglega átt góðan dag í faðmi fjölskyldu og vina.
Megi framtíðin verða þér hlý og björt. Afmælisknús, Anna Bíbí og foreldrarnir
Halló fallega blómarós!
Innilega til hamingju með 2ja ára afmælið þitt. Flottar allar myndirnar af þér á heimasíðunni. Sjáumst kannski í útilegunni.
Afmæliskveðja frá Ísafirði
Laufey og Ásgerður Jing
TIL HAMINGJU SÆTA!! ohhh þú ert orðin svo stór...ekkert baby lengur...bara 2ja ára skvísa!!!
Halló sæta.
Vá, flottar myndirnar úr afmælinu, þetta hefur greinilega verið frábær dagur hjá ykkur öllum.
Vonandi sjáumst við fljótlega.
Bestu kveðjur, Hildur Björg og mamma.
Hæ litla Sigga Bára.
Rakst á síðuna þína í gegnum síðuna hennar Matthildar. Hjartanlegar hamingjuóskir með tveggja ára afmælið. Megirðu eiga gott sumar með mömmu þinni og pabba.
Kær kveðja,
Elín og Bjarni Anton
Síðbúnar afmæliskveðjur til þín Sigga Bára - yndisleg ertu :)
Bestu kveðjur - Kitta í hópi 15 :)
Skrifa ummæli