![]()
![]()
![]()
![]()
Það er stór dagur hjá okkur í dag því í dag er eitt ár liðið frá því við eignumst Auði Eddu Jin. Margt sem fer í gegnum hug okkar frá þeim degi í Kína að hitta loksins þessa fallegu prinsssu. Síðan þá hefur hún verið mikill gleðigjafi í okkar lífi. Hún og Sigga Bára Min eru bestu systur sem hægt er að hugsa sér og Auður Edda Jin er sko ekki svikin af stóru systur. Hún sýndi það heldur betur í dag þegar við fórum í frábæran dýragarð með þær systur. Sigga Bára hafði komið þangað áður og tók að sér fararstjórn með kort og allt og valdi leiðir og hvaða dýr ætti að skoða auk þess að ákveða hversu lengi var dvalið á hverjum stað. Auður Edda skottaðist á eftir og fylgdi stóru systur sem skugginn. Eftir góðan dag í dýragarðinum fór Sigga Bára með litlu systur í búð í garðinum og keypti handa henni tuskudýr til minningar um daginn. Ekki var nægjanlegt fyrir þessa orkubolta að vera á fullu í dýragarðinum heldur var haldið áleiðins niður í bæ og arkað um miðbæinn, yfir síki og næstum undir líka.:-). Þegar heim var komið var farið í "fótabolta" í garðinum og fagnað þegar skorað var eins og á að gera. Foreldrunum tókst þokkalega þreyttum eftir daginn að koma þeim baðum dömunum í svefn og síðan var eldaður góður matur fyrir fullorðna fólkið til að fagna tilefni þessa merka dags í fjölskyldunni.
Takk Auður Edda Jin fyrir þig.
2 ummæli:
Gyða Kalli,Sigga Bára og AuðurEdda
Til hamingju með daginn. Við á Sjálandinu vorum að tala um það í dag hvort það væri í dag eða morgun sem þið fenguð Auði Eddu í fangið. Erna Hrund og Halla voru hjá okkur og það vantaði auðvita Siggu Báru og Auði Eddu. Annars allt gott af okkur að frétta Valur er að fara á morgun í ferð , Og aftur til hamingju og bestu keðjur til allra. Amma og afi
Kæra fjölskylda
Innilega til hamingju með árið ykkar saman.
Það er alveg ótrúleg breyting á henni Auði Eddu á þessu eina ári, orðin svo ótrúlega flott og sjálfsörugg stelpa enda ekki skrýtið með svona yndislega fjölskyldu og vini í kringum sig :-)
Njótið nú tímans saman í útlandinu. Hlökkum til að sjá ykkur þegar þið komið heim.
Blómvangsbændur
Skrifa ummæli