Þá er dagur að kvöldi kominn. Sigga Bára Min varð 7 ára í dag. Eins og alla aðra afmælisdaga gladdi sólin okkur og dreifði geislum sínum yfir afmælisbarnið, fjölskyldu og vini enda sólin að hitta sólina ekki satt! Hún vaknaði klukkan 4 í nótt tilbúin í daginn og varð frekar fúl yfir því að vera sagt að sofa lengur en hún hlýddi og vaknaði ekki fyrr en foreldrarnir og litla systir vöktu hana með söng. Búið var að setja sjö afmæliskerti hringinn í kringum karamellu kleinuhring og svo blés hún á þau öll uppi í rúmi, tók upp pakkann frá nöfnu sinni henni Báru og sveif fram í eldhús. Þar var pabbi búinn að gera uppáhalds morgunmatinn, beikon og amerískar pönnukökur. Svo kom amma í heimsókn beint úr bakaríinu og veislan hélt áfram. Hápunktur dagsins var þegar fjölskyldan og vinir komu í veisluna sjálfa, sunginn var tvisvar sinnum afmælissöngurinn þar sem Siggi Valur varð að syngja sönginn með loftgítar tilþrifum - hann klikkar ekki sá töffari.
Núna er litla ljós sofnað eftir góðan dag, stóra ljós vakir og horfir á dýralífsþátt með sínum besta vini honum pabba.
Takk kæru vinir og fjölskylda fyrir daginn.
Takk kæra dóttir fyrir gleðina sem skein út frá þér allri á deginum þínum.
Bless í bú
föstudagur, júní 24, 2011
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Takk fyrir yndislegan dag Sigga Bára og fjölskylda.Amma og afi
Til hamingju með 7 ára afmælið Sigga Bára. Dásamlegur dagur sem þú hefur átt og þannig á það að vera :)
bestu kveðjur
Stína og co
Vart hægt að hugsa sér fallegri og samheldnari fjölskyldu. Megi guð og gæfan fylgja ykkur í hverju spori. Kveðja, Jómmi
Skrifa ummæli