fimmtudagur, júní 02, 2011

Það eru 6 ár síðan við fengum upplýsingarnar um Siggu Báru Min

Tíminn líður hratt - það eru liðin 6 ár frá því við foreldrarnir fengum símtalið þar sem okkur var tilkynnt að í Jiangxi héraði í Kína biði litla Fu Ling Min eftir að komast í okkar fang. Það er ljúft að hugsa til baka og tilfiningarnar streyma um mann allan, þessar tilfingingar eru dásemd ein.
Lífið hefur verið okkur gott og gjöfult frá þeim degi og erum við þakklát fyrir það. Dagurinn í dag var fallegur og góður. Við fórum dömurnar með ömmu á Selfoss þar sem Sigga Bára tók þátt í fiðlunámskeiði sem endaði í Eden í Hverargerði þar sem hópurinn hélt tónleika. Brói og Edda hittu okkur þar og svo var slegin upp heljarinnar ís veisla og að lokum farið og keyptar plöntur í matjurtargarðinn og Sigga Bára fékk þrjár jarðaberjaplöntur sem hún hefur óskað sér frá því vorið leit dagsins ljós hér í garðinum.
Takk Sigga Bára Min fyrir þig - þú ert frábær!!
Bless í bú

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

elsku þið öll til hamingju með daginn ykkar! Sigga sæta Bára er bara æði.
Kveðja frá Akranesi
R + J + G.S. + S.K.
(Svona skrifa stórfjölskyldur undir;))

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Innilega til hamingju með hamingjudaginn ykkar.
Frábært að fá að kynnast ykkur og fylgjast með yndislegu Siggu Báru og Auði Eddu vaxa og dafna.
Hafið það alltaf sem best.
Kær kveðja, Þórdís, Kristján, Hjalti og Hildur Björg.

Nafnlaus sagði...

það var sko gaman að fara á Selfoss og hlusta á Siggu báru spila og fara með Auði Eddu í Blómaval á Selfossi .það er sko ótrúlegt hvað þessi 6.ár líða fljótt en eru skemmtileg. Amma