sunnudagur, apríl 24, 2011

Gleðilegt páskaegg


Já svona óskaði Auður Edda öllum gleðilegra páska þessa fyrstu páska okkar saman. Það var mikl spenna þegar báðar dömurnar voru vaknaðar í morgun. Sigga Bára svaf að vísu svolítið mikið lengur en litla systir en þegar Sigga Bára var komin á stjá hófust páskarnir. Hún gerði ratleik fyrir foreldrana af svo mikilli snilli, örugglega 7 vísbendingar alveg ein, svo fóru systurnar í það að leita að páskaeggjunum sínum og þegar þeirri leit lauk hófst heljarinnar nammiát á fastandi maga. Svo þegar klukkan var að nálgast ellefu var skundað niðrí Húsdýragarð á árlegan páskasunnudagsskóla þar sem systurnar sungu af mikilli innlifiun og fengu að klappa páskakanínum. Sigga Bára fetaði í fótspor pabba og var tekin í sitt fyrsta sjónvarpsviðtal sem er hægt að finna hér
Um kvöldið kom svo Siggi Valur frændi og borðaði með okkur en í eftirrétt var framreidd kaka að hans ósk sem Sigga Bára bakaði og Auður Edda fékk að klára kremið úr skálinni - mikil samvinna hjá systrunun í eldhúsinu.
Núna er litla ljós sofnuð en stóra ljós vakandi og langar að horfa á hundamynd - það verður því kósýkvöld í kvöld.
Bless í bú

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilega páska kæra fjölskylda
Systurnar taka sig sannarlega vel út í myndbrotinu og Sigga Bára svo flott í viðtalinu.
Njótið ykkar vel.
Páskakveðjur, Sigurbjörg og feðginin