Já það er búið að skrifa Stekkjastaur bréf - hann fær að vita af því hvað Siggu Báru þykir vænt um hann og að hún vorkenni honum mikið að þurfa að vera úti í vondu veðri og í myrkrinu. Hún ætlar að gefa honum líka mjólkursopa og smáköku þegar hann á leið framhjá. Heppinn hann Sveinki að hafa svona flottan aðdáenda!
Hér fylgja nokkrar stemmings myndir af Jóladísinni okkar
Bless í bú
4 ummæli:
Sigga Bára þú ert alltaf jafn flott og fallega í ömmu augum, það er svo langt síðan að amma og afi hafa séð þig núna . Við hlökkum svo til sunnudagsins.
Ástarkveðjur amma og afi
Hæ,
Mikið ert þú flott jólastelpa Sigga Bára og Stekkjastaur heppinn að fá svona gott að borða hjá þér.
Gyða hvar fenguð þið kjólinn? Hann er mjög flottur.
Jólakveðjur
Kristín og Tóta
Kæra fjölskylda.
Sendum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
Þökkum allt gott á liðnum árum.
Jólakveðja frá Hildi Björgu og fjölskyldu.
Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda!:) Innilegt þakklæti fyrir stundirnar á Tenerife:) Heppin við að fá að kynnast ykkur ... svoooooooo einstaklega yndisleg öll þrjú!:)
Knús og kveðjur að norðan,
Gígja, Tommi og María Mist.
Skrifa ummæli