
Það eru í dag tveir dagar þar til litla daman verður 4.ára. Síðustu morgna hefur hún vaknað með bros á vör og spurt " Hver á afmæli í dag mamma?" og hingað til hefur það verið vonsvikin stúlka sem fer framúr - úff þetta er alltof lengi að líða þegar maður er svona lítill!!! En það er búið að bjóða leikskólavinum í afmæli, búið að búa til boðskort og senda þau, blöðrurnar tilbúnar og daman löngu tilbúin!!!!!
Á þriðjudaginn verður gaman að vakna þegar rétt svar við réttri spurningu fæst og sólin skín úr andlitinu hennar :-)
Bless í bú
2 ummæli:
Elsku besta vinkona
Innilegar hamingjuóskir með 4 ára afmælið þitt. Þetta er fallegur dagur fyrir fallega stúlku.
þangað til við getum knúsað þig þá færðu bara stórt ((((((netknús)))))
þín vinkona
Matthildur og gamla settið
Kæra Sigga Bára.
Innilega til hamingju með fjögurra ára afmælið. Ekki amalegt að eiga afmæli á svona fallegum degi.
Vonandi ertu búin að njóta dagsins í fjölskyldu- og vinafaðmi.
Bestu kveðjur, Hildur Björg og fjölskylda.
Skrifa ummæli