laugardagur, mars 22, 2008

Gleðilega páska











Það er þreytt lítil stúlka sem sefur værum svefni núna. Það hefur margt verið gert í fríinu undanfarna daga. Sigga Bára er til dæmis búin að vera á skíðum en stór hluti fjölskyldunnar hefur hist upp í fjöllum og eytt þar deginum með kakó, brauð og sól í hjarta.

Dagurinn í dag var hátíðisdagur en litla frænka í Noregi ( en þannig talar Sigga alltaf um litlu Álfrúnardóttur) var skírð í dag í Hjallakirkju. Þetta fallega barn fékk það fallega nafn Halla Elisabet. Eftir skírnina og veisluna höfðu foreldrar Siggu Báru ekki samvisku til þess að setjast niður með bökur, tertur, spínatsalat og kransakökur í maganum þannig að allir fóru í útigalla. Sigga skellti sér á hjólið og hjólaði alla leið til Bróa og Eddu. Blessað barnið að eiga svona ofvirka foreldra..... En á morgun veit hún að það verður súkkulaði í morgunmat mmmmmmmmmm hverjum hlakkar ekki til að vakna :-D


Bless í bú

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gleðilega páska elsku fallega Sigga Bára Min og foreldrar:)
Mikið var gaman að sjá ykkur aðeins á afmælishátíð ÍÆ:) Sigga Bára og pabbinn voru það fyrsta sem við sáum þegar við komum inn og mamman alveg starði á barnið;) Svo gaman að sjá hana:)
Rosalega er SB dugleg að vera farin að fara á skíði! Nokkuð ljóst að næsta vetur verða foreldrarnir á þessum bænum að kaupa skíði handa allri fjölskyldunni og lufsast upp í fjall með barnið!
Þessa páskana ætlum við hins vegar að láta nægja að vera dugleg í páskaeggjaáti og afslöppun;) Engin hætta á að við sláum ekki met í þeim efnum!
Páskaknús og kossar til ykkar frá okkur,
Gígja og fjölskylda.