mánudagur, febrúar 11, 2008

Aftur orðin stóra frænka - eiginlega stærsta frænka

Það var margt sem var að gerast þann 24. og 25. janúar hjá tveimur frænkum Siggu Báru. Lítil frænka fæddist í Noregi þann 24. janúar, frumburður Álfrúnar frænku og Viktors. Já núna er pabbi Siggu Báru orðinn afabróðir!!
Það þurfti ekki að bíða lengi eftir næstu frétt en degi síðar, 25. janúar eignaðist Sigga Bára enn aðra frænku heima á Íslandi uppi í sveit sem nefnist Grafarholt. Hún Bína guðmóðir og móðirsystir og Geiri eignuðust þriðju prinsessuna sína.





Já hún Sigga Bára er rík lítil stóra frænka. Látum fylgja með mynd af Bínu dóttur sem við tókum í heimsókn þangað daginn eftir að hún fæddist og á fertugsafmæli móður hennar!!



Bless í bú

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl og blessuð sæta fjölskylda, hef ekki kíkt á þessa síðu lengi frábært að sjá hvað dóttir ykkar Sigga Bára Min er orðin flott stúlka. Bestu kveðjur til ykkar og kvitta að sjálfsögðu fyrir innlitið.

Nafnlaus sagði...

Þetta líkar mér að sjá! Síðan aftur orðin virk;)

Nú stóla ég á að fá að sjá þig, og vonandi ykkur mæðgur....kíkið til okkar í kaffi við tækifæri...:)

Kossar og knús,
Ragnheiður hin dökkhærða

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís og takk fyrir samveruna í sundinu í dag.
Við erum sannarlega kjarnakerlur, látum engar pestar stoppa okkur af í sundinu ;o) og þú ert alveg ótrúlega mikill sundgarpur.
Knús og kveðjur í hús, Anna Bíbí og mamman