miðvikudagur, mars 22, 2006

Aldursforseti


Sigga Bára og móðir ákváðu að skella sér á mömmumorgun í frábæru kirkjunni okkar í morgun. Það var gaman að hitta þessar hressu mömmur og ungana þeirra. Sigga var nú samt aldursforsetinn þarna og fékk því að ráða svolítið miklu hvaða kubba hún léki sér með og hvaða dýr ættu að vera hjá henni, eðlilega!!! Svo var farið heim að borða og út í kerru að sofa á meðan mamman labbaði með ungann sofandi. Sigga vaknaði svo ekki fyrr en eftir langa göngu, við kvakið í gæsunum í Grasagarði - það er alltaf jafn gaman að skoða fuglana. Hún er núna með mikið Línu æði og vill bara hlusta á Línu í bílnum sama lagið aftur og aftur og aftur og aftur. Klappar og lætur apann sinn dansa með. Mamman er ánægð með það þar sem Lína er hennar uppáhald og mun hvetja hana til ýmissa prakkarastrika í framtíðinni - já varið ykkur bara ;-)
Bless í bú og von bráðar munu birtast safnalbúm með mánuðunum.
Línu kveðjur
Sigga og Gyða

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar mæðgur,
gaman að sjá myndir af Siggur Báru, hún er orðin svo mikil dama. Tótu og mömmu finnst voða gaman að skoða myndir af kínasystrum henna Tótu, því hlakkar okkur til að sjá meira af Siggu Báru og heyra hvernig gengur. En sjáusmt hjá Sunnu á morgun.
Kveðja í bili.
Tóta og mamma.

Nafnlaus sagði...

Hæ, hæ.
En hvað það er gaman að sjá nýjar myndir og færslur á þessari síðu, við höfum alltaf kíkt annað slagið og ekki gefið upp alla von!!
Það er líka frábært að sjá hvað Sigga Bára hefur dafnað og þroskast hjá mömmu og pabba.
Gangi ykkur allt í haginn.
Bestu kveðjur, Þórdís, Hildur Björg og karlarnir okkar.