
Í dag var merkisdagur hjá Siggu Báru en við fórum í sund seinnipartinn í dag með sundfélögum úr hópi 12. Það er fastur liður áður en farið er út í laug að skella dömunum á vigtina og svo er mikið spekúlerað í þyngd hverrar og einnar. Sigga hefur verið sú eina sem ekki hefur komist í tveggja stafa tölu en það gerðist í dag - ekki lengur níu komma eitthvað heldur hreint og flott 10 hvorki meira né minna!!!!! Varð bara að skrásetja þetta hér á þessa síðu svo við gleymum ekki þessum degi. Það var svo haldið upp á þetta með því að fara í Vesturbæinn eftir matinn í þá bestu ísbúð í Reykjavík og keyptur "gamli ísinn" og heit karamellusósa to go!!!
Sigga er svo sofnuð núna kannski tíu komma eitt (eftir ísinn)
Bless í bú
Gyða
2 ummæli:
Júhúúú....loksins orðin 10 kíló...ekki slæmt...innilega til hamingju !! Vildi bara senda þér kveðju vinkona og segja þér að það var rosa gaman í sundi í dag. Sjáumst vonandi sem fyrst.
þín vinkona
Matthildur....sem er 10.5 kg (algjör bolla ;-))
Hæ Sigga Bára !
Mikið var gaman að skoða allar fallegu myndirnar þínar – þú ert algjör listamaður og fegurðardís !
Svo ertu orðin búin að rjúfa 10 kg. múrinn – til hamingju :)
Sjáumst vonandi í Hreyfilandi á laugardaginn og í sundi á þriðjudaginn.
Bestu kveðjur,
Berta Rögn og mamma.
Skrifa ummæli